Vinnan - 01.09.1947, Blaðsíða 22
' —----------------------------------N
SAMBANDS-
tíðindi
v.___________________________________________
NÝIR SAMNINGAR
Nýr kjarasamningur á Hjalteyri
Hinn 7. júlí s.l. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkamannafélags Arnarneshrepps og H.f. Kveldúlfs á Hjalt-
eyri. Samningur þessi er í öllum aðalatriðum í samræmi viS
hina nýju samninga sambandsfélaganna á Norðurlandi við sfld-
arverksmiðjurnar, er gerðir voru 5. júlí s.l. og skýrt var frá í
síðasta hefti Vinnunnar.
Brynja á Siglufirði gerir nýja kjarasamninga
Hinn 8. júlí s.l. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkakvennafélagsins Brynju á Siglufirði og Vinnuveitendafé-
lags Siglufjarðar. Samkvæmt samningnum hækkar tímakaup í
almennri vinnu úr kr. 2.05 í kr. 2.15 á klst. og í íshúsvinnu úr
kr. 2.15 í kr. 2.25 á klst. Næturvinna greiðist nú með 100%
álagi á dagvinnu allt árið, nema frá því að byrjað er að salta
síld og til 15. sept., þann tíma greiðist hún með 60% álagi.
Greiddir kaffitímar í sólarhring hverjum eru nú einni klukku-
stund lengri en áður var.
Þá fékk Brynja nýja grein í samninginn, sem er mjög mikil
réttarbót að. Atvinnurekendur við síldarsöltun eru nú skuld-
bundnir til að kalla stúlkur út til vinnu eftir númerum, svo að
vinnan skiptist jafnt niður og lágmarkstryggingin komi að til-
ætluðum notum. Þá eykst og tillag atvinnurekenda til hjálpar-
sjóðs Brynju úr 2 aurum á hverja útskipaða síldartunnu í 3
aura.
Kjarabætur á Akranesi
31. júlí, s.l. varð samkomulag milli Verkalýðsfélags Akraness
og atvinnurekenda um framlengingu og breytingu á áðurgild-
andi samningi um kaup og kjör. Tímakaup karla hefur hækkað
um kr. 0.15 pr. klst. eða i kr. 2.80 í dagvinnu, þ. e. Reykjavík-
urkaup. Tímakaup kvenna í dagvinnu hfur hækkað úr ekr. 1.89
í kr. 2.04 á klst. — Auk þess er nú konum, sem vinna við söltun
á fiski og óverkaðan saltfisk, greitt karlmannakaup.
Nýir kjarasamningar á Bíldudal
Hinn 7. ágúst voru undirritaðir nýir kjarasamningar milli
Verkalýðsfélagsins „Varnar" á Bíldudal og atvinnurekenda þar.
Samkvæmt hinum nýju samningum hækkaði grunnkaup verka-
fólks sem hér segir (gamla kaupið í svigum): Almenn dagvinna
karla kr. 2.56 á klst. (2.40). Skipavinna kr. 2.85 (2.75). Kol,
salt, sement og umhleðsla þess í húsi kr. 3.24 (2.75). Almenn
dagvinna drengja 14—15 ára kr. 1.92 (1.75) og drengja 15—16
ára kr. 2.10 (1.75). Almenn dagvinna kvenna kr. 1.92 (1.75).
Oll eftirvinna greiðist með 50% álagi og nætur- og helgidaga-
vinna með 100% álagi á dagvinnukaup.
Verkfall hafði staðið yfir á Bíldudal frá 1. ágúst.
Breyting á samningi Vörubílstjórafélagsins Þróttar
Hinn 8. ágúst s.l. undirrituÖu Vörubílstjórafélagið Þróttur og
Vinnuveitendafélag Islands samkomulag um þá breytingu á
gildandi kjarasamningi, að grunnkaup bílstjóra skuli hækka úr
kr. 3.00 á klst. í kr. 3.25 á klst. Grunnkaup bílstjóra er eins og
áður innifalið í kaupi bifreiðarinnar.
Nýr kjarasamningur á Stokkseyri
18. ágúst s.l. gekk í gildi breyting á áðurgildandi kjarasamn-
ingi Verkalýðs- og sjómannafélagsins Bjarma á Stokkseyri við
atvinnurekendur þar. Samkvæmt því er nú dagkaup kr. 2.80 á
klst. fyrir karlmenn, en kr. 1.65 fyrir konur.
Nýr kjarasamningur Hlífar í HafnarfirSi
Þann 16. ágúst s.l. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði og atvinnurekenda
þar. Samkvæmt þessum samningi hækkaði grunnkaup verka-
manna í Hafnarfirði sem hér segir: Almenn dagvinna úr kr.
2.55 í kr. 2.80 á klst., bryggjuvinna úr kr. 2.85 í kr. 3.05 á klst.
og kemur einnig undir þann taxta öll sú þungavinna, sem um
getur í hinum nýja samningi Dagsbrúnar. Boxa- og katlavinna
hækkaði úr kr. 3.53 í kr. 3.75 á klst. Yfirleitt er samningur þessi
í öllum meginatriðum samhljóða Dagsbrúnarsamningi. Samn-
ingur þessi gekk í gildi 22. ágúst og gildir til 15. okt. n.k. og er
uppsegjanlegur með eins mánaðar fyrirvara. Sé honum ekki sagt
upp framlengist hann í sex mánuði með sama uppsagnarfresti.
Nýr kjarasamningur
Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar
Þann 29. ágúst s.l. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar annarsvegar og atvinnu-
rekenda á Akureyri hinsvegar. Hinn nýi samningur er í öllum
aðalatriðum í samræmi við hin nýju Dagsbrúnarkjör og er
Verkamanafélag Akureyrarkaupstaðar fimmta félagið, sem nær
sömu kjörum og Dagsbrún.
TILNEFNINGAR í NEFNDIR
Dómnefnd um beztu ritgerð
um afsal íslenzkra landsréttinda 1946
Halldór Kiljan Laxness rithöfundur hefur sem kunnugt er
ákveðið að verja skáldalaunum þeim, er honum voru úthlutuð
á s.l. ári, til verðlauna fyrir beztu ritgerð um „afsal íslenzkra
Iandsréttinda árið 1946“. Skulu ritgerðirnar metnar af þriggja
manna dómnefnd og á Alþýðusamband Islands einn fulltrúa í
nefndinni. Var Stefán Ogmundsson tilnefndur af hálfu sam-
bandsins í nefnd þessa á miðstjórnarfundi 27. júní s.l.
Verðlagsnefnd landbúnaðarafurða
A fundi miðstjórnar sambandsins 27. júní s.l. var Ingólfur
Gunnlaugsson skipaður fulltrúi þess í verðlagsnefnd búnaðar-
vara.
„Ekki vil ég láta brenna mig,“ sagði kerlingin. „Ég
vil láta grafa mig, eins og ég er vön.“
*
Eitt sinn lýsti karl einn hörðum vetri, sem hann
mundi eftir á þessa leið: „Það kom átta vikna skorpa
á þorranum og níu vikna skorpa á góunni, og var sá
vetur kallaður lurkurinn langi.“
200
VINNAN