Vinnan - 01.12.1951, Page 13

Vinnan - 01.12.1951, Page 13
Ályktun jullskipaðrar stjórnar Alþýðusambands íslands um verðlags-, dýrtíðar- og atvinnumál: Dýrtíðin verði stöðvuð og næg atvinna tryggð Annars beitir Alþýðusambandið sér fyrir uppsögn samninga til að rétta hlut launastéttanna „FUNDUR FULLSKIPAÐRAR STJÓRNAR A. S. í., haldinn 17.—18. nóv. 1951, vill minna á samþykktir tveggja síðustu Alþýðusambandsþinga um dýrtíðarmálin, þar sem gerð var sú lágmarks- krafa af hendi verkalýðssamtakanna, að dýrtíð- in yrði algjörlega stöðvuð og síðan lækkuð. Yrði sú krafa að vettugi virt, var sambandsstjórn falið að beita sér fyrir kauphækkun, sem aukinni dýrtíð næmi, svo að kaupmáttur heildarlaunanna héldist í sem mestu samræmi við verðlag í landinu. Þessa síðari leið til kjarabóta telja verkalýðs- samtökin þó hreint neyðarúrræði og miður æski- lega og líta á hana sem algera nauðvörn.“ Heimatilbúin dýrtíð. „Á þremur síðustu árum hefur miðstjórn sambandsins margítrekað kröfur verkalýðs- samtakanna við stjórnarvöld landsins um að stöðva og síðan lækka dýrtíðinia, svo að forðast mætti óæskilegt kapphlaup milli verðlags og kaupgjalds. En þessa leið hafa stjórnarvöld landsins ekki óskað að fara nema að litlu leyti, þar eð ýmsar ráðstafanir hafa verið gerðar af alþingi og ríkisstjórn, er orðið hafa til þess að auka stórlega dýrtíð og verðbólgu í landinu, og má þar m. a. nefna: gengislækkunina, bátagjaldeyrinn svo nefnda, hinn illræmda söluskatt og nú síðast afnám verðlagsákvæða og verðlagseftirlits, er hefur haft í för með sér skefjalaust álagn- ingarokur á nauðsynjmn almennings. Sambandsstjórn er það ljóst, að það er ekki á valdi ríkisstjórnar eða alþingis að koma í veg fyrir þá aukningu dýrtíðar, er orsakast af hækkuðu verði erlendis, á þeim vörum, er þjóðin verður að kaupa og flytja inn. En það verður að teljast sannað mál, að mikill hluti hinnar sívaxandi dýrtíðar er heima- tilbúinn og bein afleiðing ýmissa tilskipana og laga ríkisstjórnar og löggjafans. Vegna framangreindra og annarra slíkra ráð- stafana, er ýtt hafa undir sívaxandi dýrtíð, þá hefur miðstjórn Alþýðusambandsins þrásinnis orð- ið að hvetja til kauphækkana og knýja þær fram til þess að jafna metin. Vill fundurinn benda á þá hættu, sem af kann að hljótast, ef stöðugt er haldið áfram ,á braut sívaxandi dýrtíðar, sem svo leiðir af sér stórfelldan samdrátt atvinnulífsins eða jafnvel algera stöðvun þess. Með tilliti til þess, sem að framan greinir, tel- ur sambandsstjórn, að vegna ört vaxandi dýrtíð- ar sé lífskjörum og atvinnuöryggi launafólks stefnt í þann voða, að við svo búið verði ekki unað, og vill benda á, að þess er engin von, að verka- lýðssamtökin eða önnur samtök launþega uni því, að kaup launafólks á sjó og landi sé að veru- legu leyti bundið á sama tíma, og heilli stétt er í sjálfsvald sett að raka saman tugmilljóna gróða.“ Róðstafanir gegn dýrtíðinni. „Fundurinn skorar því á alþingi og ríkisstjórn að hefjast nú þegar handa um ráðstafanir, er koma mættu að gagni til þess að hefta frekari dýrtíð og verðþenslu. Vill hann í þessum efnum benda m.a. á eftirfarandi: 1. Komið verði í veg fyrir óhóflega verzlunar- álagningu með því m. a., að fulltrúar laun- þega hafi á hverjum tíma aðgang að öllu því, er máli skiptir til upplýsinga á verð- lagi og vöruálagningu og eigi rétt á því að birta hverjar þær upplýsingar, er þeir telja almenning miklu varða; enn fremur, að sett verði hámarksálagning á nauðsynjavörur og verðlagseftirlit tekið upp að nýju, er laun- VINNAN 3

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.