Vinnan - 01.12.1951, Side 23

Vinnan - 01.12.1951, Side 23
Úr hraðfrystihúsi á Akranesi: Flökun. á liðnu ári betri hlut en almennt hefur verið á ]peim togurum, sem afla sinn hafa selt erlendis. Orsakast það af því, að togarinn getur verið fleiri daga að veiðum, þegar enginn tími fer í siglingu, og þess vegna verður meira aflamagni skilað á land. Og rekstrarafkoma togarans hefur að minnsta kosti verið eins góð eða jafnvel betri en meðan hann lagði afla sinn upp erlendis. Reynslan hefur því leitt í ljós, að með þessu fyrirkomulagi á afsetningu á afla togaranna, er að engu leyti teflt í tvísýnu, heldur þvert á móti, að allir aðilar mundu á því hagnast. Verkafólkið fær við það atvinnu, sem svo mjög hefur skort, rekstursafkoma togaranna er jafnörugg og áður og þjóðarheildinni skapast verulega auknar gjald- eyristekjur við breytingu hráefnisins í fullverkaða og unna vöru. Þess vegna er það hrein og bein þjóðfélagsleg nauðsyn og skylda stjórnarvaldanna að tryggja, að afli togaranna sé að eins miklu leyti unninn hér heima og nokkur tök eru á. Nú síðustu dagana virðist vera að komast skrið- ur á þetta mál, því að nokkrir togarar munu farn- ir að landa afla sínum til vinnslu í hraðfrystihús- um hér í Reykjavík, og vissulega ber að fagna þessu, og þess ber að vænta, að sá háttur verði upp tekinn af öllum togaraflotanum. Hér hefur verið bent á tvær leiðir, sem mjög verulega mundu bæta úr hinu gífurlega atvinnu- leysi, ef farnar væru, og báðum þessum leiðum er það sameiginlegt, að þær skapa beinan og veru- legan þjóðhagslegan ávinning. Við höfum vissu- lega ekki efni á að láta þær ófarnar. Úr hraðfrysti- húsi á Akranesi: Fiskurinn settur í umbúðir. VINNAN 13

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.