Vinnan - 01.12.1951, Side 20
ÞAÐ ER MÁLA SANNAST, að sjaldan hefur
horft uggvænlegar um afkomumöguleika alþýðu
manna en einmitt nú. Hvaðanæva berast
fregnir um ördeyðu atvinnulífsins ásamt skil-
merkilegum upplýgingum um atvinnutekjur
verkamanna, sem undantekningarlaust eru mjög
lágar, ærið oft allt niður í nokkur hundruð krón-
ur á mánuði. En það ber vitaskuld skýlaust vitni
þess, að möguleikar verkafólksins til að sjá sér
og sínum fyrir sæmilegu lífsframfæri eru þar með
að engu orðnir.
Vestfirðir munu vera sá hluti landsins, sem
einna harðast hefur orðið úti við atvinnuleysið.
Á Bíldudal fór t. d. nýlega fram atvinnuleysis-
skráning. Kom þá í ljós, að þeir fjölskyldumenn,
sem skráðir voru atvinnulausir, höfðu aðeins haft
200 kr. í október til framfæris hverjum fjöl-
skyldumeðlim. Ekki munu nærri allir atvinnu-
lausir hafa mætt til skráningar, og kunnugum
ber saman um, að tekjur alls þorra verkafólks
þar séu mjög svipaðar tekjum þeirra, sem til
skráningar mættu. Á ísafirði má segja, að um
lengri tíma hafi verið um algert atvinnuleysi að
ræða. Þar byggja bæjarbúar afkomu sína einvörð-
ungu á fiskveiðum og fiskverkun. Hraðfrystihús
og aðrar fiskverkunarstöðvar standa auðar og
aðgerðalausar, aðallega sökum hráefnaskorts, því
að fisklaust er á grunnmiðum að kalla. Alger-
lega gegnir sama máli um önnur kauptún þar
vestra, svo sem Súðavík, Flateyri, Patreksfjörð
og Bolungarv-ík.
Á Norðurlandi hefur sömuleiðis verið mjög
tilfinnanlegt atvinnuleysi að undanförnu, tekjur
verkamanna af sumaratvinnu mjög rýrar sökum
þráláts aflabrests á síldveiðum.
Strax og síldarvertíð lauk, myndaðist atvinnu-
leysi í stórum stíl norðan lands, en sökum afla-
brestsins á vertíðinni voru sumartekjur verka-
fólksins mjög rýrar, höfðu aðeins nægt fyrir nauð-
þurftum líðandi dags, og var því fyrirsjáanlegt,
að langvarandi atvinnuleysi væri fólkinu óbæri-
legt. Þar er nú hið hörmulegasta ástand. Á Siglu-
firði hefur t. d. verið gjörsamlega atvinnulaust,
síðan síldarvertíð lauk. Atvinnuleysisskráningu
er nú nýlokið á Ólafsfirði. Þar létu 80 manns skrá
sig atvinnulausa með á þriðja hundrað manns á
framfæri sínu, og vitað er þó um allmarga atvinnu-
lausa verkamenn og konur, sem eigi mættu til
skráningar. Á Sauðárkróki munu tekjur fjöA-
margra verkamanna 8—9 fyrstu mánuði ársins
vart hafa farið fram úr þriggja mánaða launum,
Jón Hjálmarsson:
ATVINNU-
LEYSIÐ
og á Drangsnesi og Hólmavík á Ströndum hefur
verið algert atvinnuleysi frá því í sumar, svo að
við liggur hreinu neyðarástandi. Þannig mætti
lengi telja og fara stað úr stað kringum allt land
alls staðar er sama sagan. Og enda þótt bæja og
kauptúna á Austurlandi hafi ekki verið getið hér
sérstaklega, þá er atvinnuástandið þar mjög svip-
að því, sem hér hefur verið lýst.
Allir bæir og þorp, sem atvinnuleysið leggur
nú sína dauðu hönd á, eiga það sameiginlegt, að
allir afkomumöguleikar íbúanna byggjast á fisk-
veiðum og fiskverkun. Víðast hvar eru myndar-
leg hraðfrystihús og aðrar fiskverkunarstöðvar
fyrir hendi. Til byggingar þeirra hefur verið varið
miklu fjármagni, enda hefur alþýða manna tengt
allar vonir sínar um stöðuga vinnu og örugga lífs-
afkomu við sleitulausan rekstur þeirra. Nú hefur
hins vegar alger stöðnun orðið á rekstri þessara
fyrirtækja. Fyrir verkafólkið er ekki í annað hús
að venda, engin önnur atvinnutæki eru fyrir
hendi, sem veitt geti fólkinu atvinnu í staðinn.
Þess vegna er ástandið svo geigvænlegt, atvinnu-
leysið í algleymingi og skorturinn á næsta leiti.
Þessari stöðvun á rekstri fiskvinnslustöðvanna
veldur aðallega hráefnaskortur. Fiskafli hefur að
undanförnu gersamlega brugðizt fyrir Vestur- og
Norðurlandi, þannig að enda þótt bátar hafi róið,
þá hafa þeir á engan hátt getað séð vinnslustöðv-
unum fyrir nægilegu hráefni. Og vandinn liggur í
því, hvernig hægt sé að skapa þeim nægilegt hrá-
efni til vinnslu.
Reykjavík og Akureyri hafa sérstöðu miðað við
aðra bæi, sökum þess að þar er um allmikinn og
fjölbreyttan iðnað að ræða. Iðnrekstur er mun
öruggari atvinnugrein en sjávarútvegurinn, því að
hann er hvorki háður tíðarfari né aflaleysi. Ekki
er þó svo að skilja, að atvinna sé hlutfallslega
mun meiri í Reykjavík og Akureyri.. Það er sann-
10 VINNAN