Vinnan - 01.12.1951, Qupperneq 35

Vinnan - 01.12.1951, Qupperneq 35
„Hér á þá að byrja í dag. Holtið verður erfitt. Hér eru blágrýtisklappir. Þetta verður ágæt undirstaða,“ segir ungur maður og lítur fránum augum út yfir mógrátt ósnert holtið fyrir austan borgina. „Við verðum að sprengja“, segir verkstjórinn, „hér eiga allar nýju göturnar með goðanöfnunum að koma. Þetta verður fallegt hverfi, sólin skín fyrst á það á hverjum morgni. Göturnar eiga að verða næstum því helmingi breiðari en í Vestur- bænum. Það er víst búið að veita um tvö hundruð byggingaleyfi hérna í holtinu. Hér vilja allir byggja, en bæjarstjórnin leyfir ekki nema stór og góð hús.“ í þessu kemur Stígur hlaupandi. Hann er kóf- sveittur og móður: „Kem ég of seint?“ segir hann lafmóður, „Það er svo óvenjulegt að fá vinnu. Eg kom seint heim í gærkveldi og þá lá kortið á borðinu. Svo svaf ég helzt of lengi“. „Nei,“ segir verkstjórinn. „Þú kemur ekki of seint. En klukkan er komin“. Svo blæs hann í flautu, „Hvað á ég að gera?“ segir Stígur. Hann tví- stígur óviss með hitabrúsa í hendinni og lítur upp á verkstjórann, sem er með flautuna í munninum. „Taktu haka inni í skúr og settu þig svo ein- hvers staðar niður í flokknum. Það verður þú að finna út sjálfur.“ Og Stígur hlýðir því. Hann leggur brúsann og bitann sinn inn fyrir dymar á skúrnum, grípur haka og hleypur svo til flokksins, sem er búinn að raða sér á auðnina. Svolítil merkisspjöld eru þarna og mennirnir fara eftir þeim. Verkstjórinn segir fyrir verkum, og svo hefst vinnan. Hakarnir grafast í holtið, svartur svörður með grænum grastóum tætist sundur og skóflurnar grafast í moldina. Þar sem grjótið er, er tætt í kringum það, reynt að bylta því með járnköllum, en þar sem það tekst ekki, þar sem eru jarðföst björg, er haldið framhjá þeim og þau skilin eftir. Þau verð- ur að sprengja. Stígur Stígsson er fremstur með Þormóði Kol- brúnarskáldi og báðir eru með haka. Þórmóður sönglar lag, en Stígur þegir. Báðir vinna af kappi. Á eftir þeim koma skóflumenn og grafa. Þeir eiga aðeins að rífa svörðinn, losa, svo að hinum veit- ist léttara. Báðir vinna af kappi. Þó að Stígur sé lágur vexti og ekki kraftalegur, er hann fljótvirkur og vinnusamur. Hann heggur í sífellu og sparkar í hnullunga, sem hann hefur rifið upp. Hann er orðinn sveittur, og stundum réttir hann úr bakinu, lítur upp og austur mót sólu, strýkur ljósa lokk- ana burt af enni sér og um leið svitaperlur, sem búa til titrandi geisla á því hvelfdu og heiðu. Varir hans eru samanbitnar. — Það er eitthvað í hug hans. Hann vinnur lengi þögull, — en svo segir hann allt í einu um leið og hann hefur hakann á loft: „Við ryðjum borginni braut.“ Þórðmóður Kolbrúnarskáld er í miðju lagi og anzar ekki strax. Og Stígur heldur áfram, eftir dálitla þögn: „Við komum í hópum neðan úr Skuggahverfi, ráðumst á þessi öræfi, byltum grjóti og mold, leggjum götur — og borgin eltir okkur. Ekki getum við byggt okkur ný heimili hérna.“ Þá segir Þormóður: „Nei, en borgin vex. Þeir stækka hana, sem ráð- in hafa. Það þarf mikla peninga til að geta byggt hér. Það er ekki fyrir fátæklinga. Hér verða byggðar eintómar steinvillur. Það geta ekki aðrir en heildsalar og útgerðarmenn.“ „En finnst þér það ekki skrýtið, að við streym- um út úr Skuggahverfi á morgnana, út úr léleg- ustu íbúðunum, sem þekkjast í þessari borg og ráðumst á grjótið, ryðjum fyrir götunum og leggj- um þær — og svo koma aðrir og byggja sér heim- ili, stór og fögur heimili við þessar götur? Við komum þama að neðan úr svakkanum, og eng- inn okkar á heimili, sem hann unir sér í og getur alið upp börn sín í, við komum á hverjum morgni allt árið og meira að segja þökkum fyrir að fá vinnuna og leggjum grundvöllinn að nýjum góð- um heimilum, en við eigum þau ekki sjálfir. Aðrir renna í slóð okkar og byggja við þessar götur. Það er allt svo öfugt.“ Þormóður hvílir sig um stund, styðst fram á hakann: „Við erum allir jafnir fyrir kolareyknum.“ Hann er kankvís, spottandi. . Stígur hættir við að láta hakann ríða að sverð- inum, nemur staðar: „Kolareyknum?“ „Já, sérðu ekki, að hann grúfir jafnt yfir allri borginni?“ Og Þormóður bendir upp í loftið yfir borgina, en hún er hulin þykku svörtu skýi, þó að sólin gylli austurloftið. Þórmóður vex í augum Stígs. Hann er svona. Hugsar meira en menn halda. Já, rykið er jafnt fyrir alla. Þeir vinna viðstöðulaust, hamast við að bylta VINNAN 25

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.