Vinnan - 01.12.1951, Side 14

Vinnan - 01.12.1951, Side 14
þegasamtökin sjái að verulegu, leyti um framkvæmd á. 2. Tryggt verði nægilegt framboð nauðsynja- vara á hverjum tíma við því verði, sem reiknað er með í vísitölu framfærslukostn- aðar. 3. Lækkaðir séu til muna tollar á nauðsynja- vörum og afnuminn söluskattur af þeim og innheimta hans gerð einfaldari, á meðan hann að einhverju leyti er innheimtur. 4. Persónufrádráttur verði hækkaður til muna og lækkaðir skattar af lágum tekjum, jafn- framt því sem komið verði á strangara eftir- liti með skattaframtölum þeirra, er sjálfstæða atvinnu stunda. 5. Vísitala framfærslukostnaðar verði nú þeg- ar endurskoðuð, þannig að hún sýni réttari mynd en nú er af þeim breytingum, sem á honum verða.“ Atvinnuleysið. „Fundurinn telur, að öllum megi nú vera ljóst orðið, að um tíma hefur átakanlegt atvinnuleysi ríkt í mörgum kaupstöðum og kauptúnum lands- ins, og sá mikli samdráttur, sem orðið hefur og síeykst í iðnaði landsmanna og fleiri þáttum at- vinnulífs þjóðarinnar, miði að því að veita hung- urvofunni brautargengi inn á alþýðuheimilin í landinu. Fundurinn fordæmir því allar þær aðgerðir stjórnarvalda landsins, er sinn þátt eiga í því að hið ömurlega ástand hefur skapazt í atvinnumál- um þjóðarinnar og skorar á öll samtök launa- manna, hvar í stétt eða flokki sem þeir standa, svo og á samtök atvinnurekenda að láta einskis ófreistað til að rétta á ný við atvinnurekstur lands- manna og tryggja honum sem öruggasta afkomu, um leið og hann þá veitti alþýðu manna, sem fullkomnast öryggi til að búa við mannsæmandi lífskjör. Og vill fundurinn benda á nokkur atriði, sem verða mættu til þess að bæta mjög úr ríkj- andi ástandi atvinnumálanna.“ Rdðstafanir gegn atvinnuleysi. „í þessum efnum vill fundurinn benda á eftir- farandi: 1. Nú þegar verði látin fram fara allsherjar athugun á því, á hvem hátt verði sem bezt og til frambúðar ráðið fram úr árstíðar- bundnu atvinnuleysi, er herjar á kaupstaði og kauptún landsins. 2. Útgerðarfélögum sé gert unnt að leggja upp afla skipa sinna hér á landi til sem fyllstrar verkunar, m. a. með því að tryggja þeim auk- in rekstrarlán, og hraðfrystihúsum eða fisk- kaupmönnum, sem kaupa aflann, verði séð fyrir auknu lánsfé til starfsemi sinnar. Haf- izt verði handa um raunhæfar ráðstafanir til þess að tryggja útgerðinni nauðsynjar sínar á sannvirði. 3. Ríkisstjórnin hlutist til um að dreifa afla togaranna á þann veg, að við það skapist allsherjaratvinnuaukning í landinu, og sem flestum kaupstöðum og kauptúnum verði gert mögulegt að taka á móti afla þeirra og hagnýta hann í sem stærstum stíl. Telur sambandsstjórnin, að skylda mætti togara- eigendur til að hlíta fyrirmælum ríkisvalds- ins í þessum efnum, þar sem ríkið hefur út- vegað togarana og lánað kaupverð þeirra að miklu leyti, enda gæti líka framlag af ríkisfé, ef með þyrfti, til atvinnumiðlunar sem þess- arar verið þjóðhagslegur ávinningur. 4. Endurskoðaður sé rekstursgrundvöllur báta- útvegsins með tilliti til þess að spara í rekst- urskostnaði slíkra fyrirtækja, einkum stjórn- arkostnaði, þannig að unnt verði að létta að. einhverju leyti af almenningi þeim byrðum, er á hann eru lagðar með styrkjum til hans. 5. Hlúð verði að innlendum iðnaði eftir megni og honum séð fyrir meira og hagstæðara lánsfé en hann á kost á nú. Því samþykk- ir fundurinn að skora á alþingi það, er nú situr, að samþykkja framkomið frumvarp til laga um iðnaðarbanka. Takmarkaður verði innflutningur á þeim iðnaðarvörum, sem hægt er að framleiða í landinu og inn- flutningur á hráefnum til iðnaðar látinn sitja í fyrirrúmi fyrir fullunnum iðnaðar-. vörum.“ Uppsögn samninga að öðrum kosti. „Ef alþingi og ríkisstjóm sinna eigi á viðhlítandi hátt þeim ábendingum, er að framan greinir í verðlags-, dýrtíðar og atvinnumálinn, samþykkir sambandsstjóm að beita sér fyrir uppsögn samn- inga og þess samkomulags um verðlagsuppbót, er gert var 21. maí s. 1., og felur miðstjóminni að vinna að því að sameina alla krafta verkalýðs- samtakanna til baráttu fyrir því að knýja fram úrbætur, svo að hlutur launþega verði réttur varðandi afkomu þeirra og atvinnuöryggi.“ 4 VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.