Vinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 25

Vinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 25
Sitt af hverju tagi SKIP LIGGUR við festar í höfn. Kaðalstigi hangir út fyrir borðstokk þess, og eru fimmtán þrep í stiganum, en þrjátíu sentímetrar milli hvers þreps. I höfn þessari er hæðarmismunur sjávarborðs um flóð og fjöru níutíu sentímetrar. Sé neðsta þrep kaðalstigans tíu sentímetrum ofar yfirborði sjávar á fjöru, hvað færast þá mörg þrep hans i kaf um háflæði? -—o— ARABAHÖFÐINGI einn átti tvo sonu, og var svo mikill metnaður þeirra og ofurkapp, að það olli gamla manninum hugsýki. Ræddi hann oft við þá, að kapp væri bezt.með forsjá, en þeir léðu fortölum hans ekki eyra. Hann ákvað þá, að gera tilraun til að sýna þeim fram á þetta með svo ljósum og óvefengj anlegum rökum, að þeir mættu lengi muna, kallaði þá báða fyrir sig og til- kynnti þeim, að hann hefði hugsað sér að leggja fyrir þá þraut að vinna, og skyldi sá, er sigraði hljóta fjárfúlgu mikla að launum. Þegar bræðurnir heyrðu þetta, þótti þeim heldur en ekki hlaupa á snæri sín, og báðu hann segja sér þrautina sem fyrst. „Jú“, sagði öldungurinn, „þið eruð báðir hesta- menn miklir, og hef ég valið þrautina með tilliti til þeirrar íþróttar ykkar. Þið skuluð heyja kappreið milli hinna helgu borga eða frá Medína til Mekka, og skal eigandi þess hestsins, sem seinni verður til Mekka, hljóta verð- launin“. Þeir bræður litu hvor á annan og þótti nú ekki jafn gott í efni og þeir hugðu áður, en ákváðu samt að taka karl á orðinu og reyna með sér um verðlaunin. Þeir riðu greitt af stað frá Medína og ekki liðu margir sólarhringar unz þeir sáu mjóturnana í Mekka gægjast upp yfir sand- öldurnar. 6. Að margt fólk hefur hlotið alvarlega at- vinnusjúkdóma vegna þekkingarleysis á hættum þeim, sem fólgnar eru í störfum þess. Þannig mætti margt upp telja, því að mörgu er áfátt í þessum efnum, en læt þó þetta nægja að sinni. Að lokum skal það tekið fram, að ég tel, að við höfum eigi efni á að fóma lengur lífi, limum og heilsu manna vegna aðgerðaleysis í þessum málum. Að vísu hefur Reykjavíkurbær stigið stórt spor í rétta átt með samþykkt um heilbrigðis- eftirlit. En það er ekki nóg. Þetta er mál allra landsmanna, hvort sem störf þeirra eru unnin á sjó eða landi. Því er það sameiginleg krafa okkar allra, að alþingi samþykki lög um öryggi á vinnu- stöðum nú þegar. En þegar þeir áðu hestum sínum í þeirri vin, sem næsi var borgarmúrum Mekka, þótti þeim heldur vandast málið, og vildi hvorugur leggja upp þaðan síðasta spölinn, fyrr en hinn væri kominn af stað, þar eð báðir vildu þeir láta sinn hest verða seinni að borgarhliðinu. Þrættu þeir um þetta og körpuðu nokkra hríð. Að síðustu kom þó yngri bróðurnum ráð í hug til að jafna deiluna. Og er hann hafði sagt bróður sínum það, stigu þeir báðir á bak í skyndi, og knúðu hestana eins hratt og þeir komust að hliði hinnar helgu borgar, og vildu nú báðir um fram allt verða fyrstir í markið. Og nú er það spurningin, sem þið skuluð brjóta heil- ann um ... I hverju var ráð yngri bróðurins fólgið? —'O— TVÆR járnbrautarlestir leggja af stað frá New York til Denver á hverjum degi, og sömuleiðis leggja tvær lestir daglega af stað frá Denver til New York. Ferðin með járnbrautarlest milli þessara borga tekur þrjá sólar- hringa. Hve mörgum járnbrautarlestum myndir þú mæta á leiðinni, ef þú ferðaðist með lest frá Denver til New York? Ráðningar á bls. 34. —o— ÉG HAFÐI heimsó.tt gamla kunningjakonu mína; mað- urinn hennar var ekki heima, og einhverra hluta vegna var hún í því skapi, að henni varð einkar skrafdrjúgt um ýmsa galla hans; sérstaklega varði hún mörgum orðum til að lýsa eyðslusemi hans á öllum sviðum. Og seinna, þegar hún sýndi mér húsið, og við komum í miðstöðvar- herbergið, benti hún á slökkvitæki, sem hékk þar á vegg og sagði: „Þama sérðu nú sönnun þess, að það eru ekki ýkjur, þegar ég held því fram, að hann sé eyðslukló á fé. Þetta slökkvitæki kostaði nú hvorki meira né minna en hundrað krónur, — en hann lét sig ekki muna um það. Og síðan hengdi hann það þarna og hefur ekki látið sér til hugar koma að nota það . . .“ —o— LÍTIL STÚLKA, dóttir kunningja míns, kom til mín um daginn. Hún starði lengi á hillurnar i bókaskápum mínum, sem allar voru hlaðnar bókum, og mælti síðan: „Við fáum líka lánaðar bækur . . . en við skilum þeim alltaf aftur“. —o— VIÐGERÐAMAÐUR barði að dyrum: „Er það hérna, sem komið hefur leki að miðstöðvarkatlinum?" spurði hann. „Já, og það er mikið, að þér komið“, svaraði húsmóðirin reiðilega. „Það eru nú liðnir þrír dagar, síðan ég hringdi til ykkar . . . jú, ég hringdi til ykkar þann níunda, svo að það eru þrír dagar . . .“ „Afsakið frú“, mælti viðgerðamaðurinn, „en þá á ég víst að fara í annað hús. Húsmóðirin, sem ég átti að lag- færa miðstöðvarketilinn hjá, hringdi þann fimmta. Sæl- VINNAN 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.