Vinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 36

Vinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 36
um holtinu. Þeir eru kappsamir, vinna eins og þeir geta. Þeir vita hvers vegna. Þeir eru ekki vanir því að selja svikna vöru. Eldri mennirnir stjórna fartinni, þeir yngri fylgja á eftir. Svo er allt í einu kallað hvellri röddu: ,,Kaffi“ og mennirnir leggja niður haka og skóflur og flykkjast inn í skúrinn. Þeir taka skrínur sínar, bita og brúsa, setjast á bekkina tvo, eða bara á gólfið og taka til snæðings. Það er þögult í fyrstu, meðan menn matast, en svo kemur orð af orði, eins og af sjálfu sér. Það eru yngri mennirnir sem ríða á vaðið. „Steinn Klakan er að teygja sig yfir allt, það er meiri andskotans völlurinn á þeim manni,“ segir ungur maður svarthærður. Hann er einsýnn og hallar við, þegar hann er að borða. „Já, hann breiðir sig yfir allt. Hann hefur keypt tvo togara og er farinn að gera út. Hann átti ekki nokkurn skapaðan hlut, en hann er framúrskar- andi duglegur. Slíkum mönnum verður vel til fjár. Hann er að verða voldugasti maðurinn hérna í horginni.“ „Já, mér er sagt, að hann hafi sótt um tuttugu lóðir hérna og ætli að byggja heilt hverfi og selja svo íbúðirnar.“ „Það verður dáfalleg álagningin á þær.“ „Ég hef heyrt, að hann hafi sótt til bæjarstjórn- arinnar um leyfi til að kaupa allar lóðir með- fram Klakastíg, allt frá húsinu sínu og niður að sjó. Hann kvað ætla að byggja bryggju þar fram- undan og reisa geymsluhús. Það er voðaleg drift á honum.“ „Ég á nú minn bæ og mína lóð undir honum,“ segir Stígur. Hann er órór. Hann hefur ekki heyrt þetta fyrr. „Hver á eiginlega Skuggahverfi?" spyr ungur maður og hvatlegur. Hann situr út við dyr. „Það eiga ýmsir“. „Ég á mitt hús“, segir gamli maðurinn. „Og ég á mitt,“ segir annar. „Já, en er ekki Steinn Klakan og kó búnir að ná því næstum öllu undir sig? Hann er búinn að kaupa fiskstasjónina og allt þar í grennd?“ „Jú það er sagt svo“, segir gamall maður. „Steinn Klakan er ekki einn af þeim verstu. Hann vinnur sjálfur eins og þræll. Hann kemur alltaf fyrstur á morgnana. Hann er ekki einn af þeim, sem liggja í bælinu til hádegis. Ég vil alltaf viður- kenna manndóminn, hvar sem hann kemur fram.“ „Ætli það verði ekki þröngt um kofann þinn Stígur, ef Steinn Klakan kaupir alla lengjuna frá strætinu og niður að sjó?“ segir ungi einsýni maðurinn og lítur útundan sér til Stígs, sem situr úti við dyr, réttum beinum. „Mér er andskotans sama,“ segir Stígur. „Við mamma eigum bæinn, og við látum hann ekki, hvað sem í boði er. Ég veit, að mamma vill ekki flytja. Hún hefur lifað næstum því alla sína ævi í bænum okkar.“ „Við erum þrælar“ segir ungur maður með hrafnsvarta lokka og bólgnar hendur. „Við verð- um að hírast niðri í Skuggahverfi, við siglum skipunum þeirra, við leggjum göturnar fyrir þá. Við fáum rétt í magann og ekki meira. Þeir fá nýjar og fagrar götur, ný heimili. En hvað fáum við? Ekki neitt, aðeins Skuggahverfi eins og áður, innilokun í þægð og umkomuleysi, vonleysi, — ég sé ekki betur.“ „Hefur þú ekki verið á sjó, Jóhann?“ spyr Stígur unga manninn. „JÚ, en skipið var selt. Hann fór á hausinn. Það er allt í lögfræðingnum. Við eigum allir kaupið inni. Allir gengu slyppir frá nema hann. Það er eins og vant er. Þeir, sem vinna og þræla bera alla áhættuna, þó er sífellt verið að tala um áhættu hinna. I hverjum andskotanum liggur sú áhætta? Þeir skrifa bara á víxla, klófesta skip fyrir þessa víxla, ráða menn á það, senda það út á sjóinn til að fiska, en sitja sjálfir í landi. Ef vel gengur, hirða þeir ágóðann, en ef illa fer, töpum við og bankarnir, og bankarnir er sama og við. Ég er búinn að vera vinnulaus síðan við hættum. Ég fékk kort í gær. Ég hefði orðið að leita til bæjarins þá og þegar. Þessi vinna frestar því nokkuð.“ „Já, það er verst að fara á sveitina," segir Þormóður. „Fátæktin sjálf er ekki verst, en að finna það að vera kominn upp á aðra er lakara.“ „Nei, atvinnuleysið er verra. Það er eins og það drepi eitthvað innan í manni. Maður linast upp. Éyrst eftir að ég verð atvinnulaus, æði ég um allt, rýk á fætur fyrir allar aldir og hendist stað úr stað. En svo fer ég að linast og að lokum vil ég helzt liggja fyrir eða hanga einhvers staðar og reyna ekki neitt. Ég hugsa, að allir séu svona.“ „Já, að minnsta kosti yngri menn“, svarar Þor- móður. „Við hinir eldri, sem erum aldir upp í sveit og höfum eytt öllum beztu árum okkar við sveitastörf þolum þetta betur. Við sóttum lífs- afkomu okkar beint í náttúruna, en hér er eins og við þurfum að biðja um hvern bita. Við réðum sjálfir yfir okkur, en nú þurfum við að mæta með 26 VINNAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.