Vinnan


Vinnan - 25.10.1979, Blaðsíða 6

Vinnan - 25.10.1979, Blaðsíða 6
JÓHANNES SIGGEIRSSON HAGFRÆÐINGUR ASÍ SKRIFAR: Kaupmátturinn 1973-1979 í 3.—4. tbl. Vinnunnar 1977 er rakin þróun kaupmáttar meðalkauptaxta verkamanna 1972-1977 og getið þeirra kauphækkana, sem urðu á tímabilinu. Einnig er gerð grein fyrir hvernig kaup- máttur er reiknaður út. A mynd 1 er sýnd þróun kaupmáttar meðaltaxta verkamanna m. v. meðaltals- stöðu í hverjum mánuði frá ársbyrjun 1973 og fram til september 1979 og á- ætlun um kaupmátt fram til desember 1979. Á mynd 2 er sýnd þróun kaup- máttar fyrir árin 1978 og 1979. Er þar áætlað fyrir tímabilið frá september ’79 eins og á mynd 1. Miðað er við vísitölu framfærslukostnaðar. Árið 1973 hélst kaupmáttur nokkurn veginn óbreyttur frá fyrra ári en hann hafði hækkað mikið frá árinu 1971. Með febrúarsamningunum 1974 verður mikil kaupmáttaraukning, en sá ávinn- ingur tapast aftur þegar á því ári vegna óðaverðbólgu og afnáms vísitölubóta. Á myndinni sést hvernig niður- greiðsluaukningin í maí 1974 lyfti kaupmættinum í júníbyrjun. Þá sést móta fyrir jafnlaunabótunum í október 1974. Kauphækkanir samninganna ’75 og ’76 lyfta kaupmætti tímabundið en eru ekki nægilegar til þess að snúa þró- mt uninni við. Með samningunum í júní ’77 hækkar kaupmáttur hins vegar veru- lega. I byrjun desember 1977 er kaup- máttur þannig svipaður og um mánaða- mótin mars-apríl 1974. Fyrri hluta ársins 1978 fer kaup- máttur hins vegar hækkandi, þar sem verðbætur voru helmingaðar 1. mars. Kaupmáttur hækkaði hins vegar mjög verulega 1. júní bæði vegna grunn- 4 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.