Vinnan


Vinnan - 25.10.1979, Blaðsíða 8

Vinnan - 25.10.1979, Blaðsíða 8
Fjópföld afmælis hátfð f Eyjum Um mánaðamótin nóvember/desember nk. verður haldin vegleg afmælishátíð í Vestmannaeyjum. Tilefnið er fjórfalt, en aðaltilefnið er þó 50 ára afmæli Al- þýðuhússins. En auk þess á Verkalýðs- félag Vestmannaeyja 40 ára afmæli, Sjó- mannafélagið Jötunn verður 45 ára og Verkakvennafélagið Snót á 47 ára af- mæli á árinu. Eins og Valur Valsson hjá Sjómannafélaginu Jötni orðaði það: „Það má segja að aðaltilefnið sé 50 ára afmæli Alþýðuhússins, en þar sem við lítum á Alþýðuhúsið sem sameining- artákn félaganna, var ákveðið að sam- einast um hátíðahöldin.“ Þessi magnaða afmælishátíð hefst miðvikudaginn 28. nóvember, en þann dag verða opnaðar „þrjár“ sýningar. Klukkan 15 verða opnaðar myndlistar- sýningar á vinnustöðum, kl. 20 mál- verkasýning alþýðumálara í Akógeshús- inu og kl. 21 verður opnuð Ijósmynda- sýning í Byggðasafninu. Kvöldið eftir, 29. nóvember kl. 21, hefst svo hátíðarfundur í Alþýðuhúsinu þar sem Elías Björnsson, formaður Jöt- uns, flytur ávarp, en síðan verður 50 ára afmælis hússins minnst í tali og tónum. Föstudaginn 30. nóv. sýnir Alþýðu- leikhúsið leikritið Blómarósir eftir Olaf Hauk Símonarson í Bæjarleikhúsinu við Heiðarveg, en kl. 23 um kvöldið hefst dansleikur í Alþýðuleikhúsinu. Laugardaginn 1. des. hefst baráttu- samkoma í Alþýðuhúsinu kl. 14. Kl. 17 sýnir Alþýðuleikhúsið Blómarósir í ann- að sinn í Bæj arleikhúsinu og kl. 21 hefst afmælissamkoma í Alþýðuhúsinu. I kjölfar hennar, eða kl. 23, hefst svo dansleikur á sama stað. Daginn eftir, 2. des., lýkur svo þess- ari veglegu hátíð með kaffiboði í Al- þýðuhúsinu, þar sem fram fer blönduð dagskrá og hátíðarslit. Ráðstefna um verkafólk í sjávarútvegi Þetta er svo sem nógu vegleg dag- skrá, en þó er ótalin þungamiðja þess- arar hátíðar. Það er ráðstefna um „Verkafólk í sjávarútvegi“, sem haldin er að forgöngu verkalýðsfélaganna í Eyjum og í samvinnu við Menningar- og fræðslusamband alþýðu. Ráðstefnan verður sett 29. nóvember kl. 16 af Stefáni Ögmundssyni formanni MFA, en síðan verða framsöguræður og skipað í starfshópa. Framsögumenn verða Jóhanna Frið- riksdóttir, formaður Verkakvennafélags- ins Snótar, og ræðir hún um ákvæðis- vinnu; Valur Valsson, ritari Sjómanna- félags Vestmannaeyja, sem ræðir um hlutaskipti; Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja, ræðir um vinnutíma og vinnuálag, og loks Þorlákur Kristinsson farandverkamað- ur, sem fjallar um málefni farandverka- fólks í ræðu sinni. Föstudaginn 30. nóvember hefst ráð- stefnan kl. 9 með pallborðsumræðum, þar sem fulltrúar ASÍ, SSÍ, og VMSÍ auk framsögumanna frá deginum áður s'tja fyrir svörum. Síðan fer fram hóp- \ inna til kl. 17, en þá verða niðurstöður starfshópa kynntar og ræddar, - og væntanlega gerðar ályktanir út frá þeim niðurstöðum sem komist verður að. — Síðan er gert ráð fyrir að ráðstefnunni verði slitið um kl. 19. Viðfangsefni starfshópanna eru hin margvíslegustu, að sögu Vals Valssonar. Þar er hugmyndin að fjallað verði um vinnutíma, vinnálag, launakerfin ákvæðisvinnu og tímavinnu, hlutaskipti sjómanna og farandverkafólk í sjávar- útvegi. Fyrir munu liggja greinargerðir frá hagræðingardeild ASI, bónusskrif- stofunni í Vestmannaeyjum, læknum og Félagsfræðideild Háskóla Islands. Valur sagði í samtali við Vinnuna, að meginmarkmiðið með ráðstefnunni væri tvíþætt í hugum þeirra sem að henni standa. Annars vegar að gera til- raun til að skilgreina ríkjandi ástand í kjarabaráttu verkafólks í sjávarútvegi og hins vegar að leita eftir hugmyndum um aðrar leiðir í þeirri baráttu og hvernig ná eigi settu marki. I því sam- bandi þurfi t. d. að velta fyrir sér spurn- ingum eins og þeim, hvernig hægt sé að ná því markmiði verkalýðssamtakanna að lífvænleg laun séu greidd fyrir 40 stunda vinnuviku; hvernig hægt sé að stuðla að því að verkafólk sækist eftir skemmri vinnutíma en nú tíðkast; hvort hvetjandi launakerfi séu þau launakerfi sem verkalýðshreyfingin muni styðjast við á næstu árum og loks sé spurning eins og sú, hvort hugmyndir séu uppi um að leggja niður launakerfi á borð við hlutaskipti og hvetjandi launakerfi önnur, harla áleitin. I sambandi við síðustu spurninguna þyrfti einnig að gera sér grein fyrir hvað komið geti í staðinn fyrir þessi launakerfi, ef þau yrðu felld niður. Reiknað er með þátttöku um 75 full- trúa frá verkalýðsfélögunum í Vest- mannaeyjum, ASÍ, VMSÍ, SSÍ og MFA í ráðstefnunni. Eins og sjá má af framansögðu verð- ur afmælishátíðin í Eyjum hin stórfeng- legasta í sniðum. Ekki ætti síst að vera óhætt að binda vonir við niðurstöður ráðstefnunnar, en umræðuefni hennar eru ákaflega tímabær. Vonandi verður tækifæri til að segja nánar frá þessum atburðum, þegar þeir eru um garð gengnir, en Vestmannaeyingum sendum við góðar óskir um heillaríka fram- kvæmd hátíðarhaldanna. -hm 6 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.