Vinnan - 25.10.1979, Blaðsíða 16
Rústir kirkjunnar í Igaliko. Eins og sést á
myndunum er kirkjan byggS úr grjótjlögum
en án alls bindiefnis. Þó hefur byggingin
staSiS af sér tœpar sjö aldir furðu vel. ÞaS
var ekki fyrr en fyrir tveimur árum að sperr-
ur voru settar við annan langvegginn, þar sem
hann var farinn að hallast óþægilega mikið.
ina. Margra ára þróun verSur að koma
til, svo Grænlendingar geti mótaS sína
eigin hugmyndafræSi.“
„ÞaS má taka svo til orSa,“ bætti
Kristian við, „að við störfum í einu og
öllu í nútímanum og miðum allar okkar
gerðir við það sem er að gerast í dag.“
Igaiiko, Upernaviarssuk, Narssaq
Auk fundahalda var farið í heimsókn-
ir til nokkurra staða utan Qaqortoq. Var
farið með vélbáti til Igaliko (Hvalseyj-
ar), Upemaviarssuk og Narssaq. Auk
þess voru skoðaðir tveir vinnustaSir í
Qaqortoq, frystihús og sútunarverk-
smiðja.
Igaliko er staður innarlega við Ein-
arsfjörð og athyglisverður fyrir þá sök
að þar er að finna merkilegustu minjar
um búsetu norðurbúa (eins og Græn-
lendingar kalla gömlu víkingana okkar)
þar í landi. Þarna stendur sumsé uppi að
langmestu leyti kirkja sem byggS var
um 1300, auk þess sem á síSustu árum
hafa verið grafnar upp rústir fleiri húsa
í kringum kirkjuna.
Frá skoðun fortíðarinnar á Igaliko
sigldum við á vit framtíðarmöguleik-
anna. 1 Upernaviarssuk er rekin til-
raunastöð landbúnaðarins og hefur ver-
ið þar í 15 ár. Þarna fara fram tilraunir
með sauSfjárrækt, byggðar á íslenskum
sauðkindum, en sá stofn hefur reynst
best þeirra fjárstofna sem reyndir hafa
verið þar.
Rannsóknir í stöðinni beinast að því
m. a., hve stórum fjárhópi má beita á
einstaka svæðum, án þess að gengið sé
of nærri gróðri. Liður í þessum tilraun-
um er gerð gróðurkorta sem íslenskir
vísindamenn hafa unnið að undanfarin
ár.
Þá fara fram í Upernaviarssuk rækt-
unartilraunir, s. s. á blómum, grænmeti
og trjágróðri. Að sögn Poul Bjerge, sem
leiðbendi okkur um stöðina, hefur ár-
angur rannsóknanna lofað góðu um
framtíðina.
14 VINNAN