Vinnan


Vinnan - 25.10.1979, Qupperneq 7

Vinnan - 25.10.1979, Qupperneq 7
kaupshækkunar og þess, að til viðbótar hálfum verðbótum var greiddur verð- bótaviðauki. I september var einnig aft- ur grunnkaupshækkun, greiðslu verð- bótaviðauka hætt, jafnframt því sem farið var að miða greiðslu verðbóta við óskerta verðbótavísitölu (með þaki). Samtímis voru niðurgreiðslur auknar og söluskattur afnuminn af matvælum. I desemebr 1978 eykst kaupmáttur vegna verðbóta, sem að vísu voru tak- markaðar, og aukinna niðurgreiðslna. Takmörkun verðbóta skyldi mætt með lækkun skatta og félagslegum umbótum (sjá nánar grein mína í 3. tbl. Vinn- unnar 1979). Síðan hefur kaupmáttur farið lækkandi vegna aukningar á frá- dráttarliðum í verðbótavísitölu, sem komu í kjölfar laga nr. 13 frá 10. apríl 1979, þrátt fyrir 3% grunnkaupshækk- un í júní 1979. Þannig má gera ráð fyr- ir að kaupmáttur lækki um iy2 til 2% milli áranna 1978 og 1979. Hækkanir á kaupi verkamanna frá 1. mars 1978 til 1. sept. 1979 1. 1. mars 1978 hækkuðu mánaðarlaun um 6,93%, eftir að áður gildandi laun höfðu verið lækkuð um 1590 kr. Hækkun þessi nam helmingi hækkun- ar verðbótavísitölu og verðbótaauka. Samkvæmt lögum nr. 3/1978 var frá 1. mars einnig greiddur verðbótavið- auki, sem fór lækkandi eftir því sem heildartekjur hækkuðu og dó út við kr. 169.000 heildartekjur á mánuði. Tekjuáhrif almennra verðbóta og verðbótaviðauka frá 1. mars eru áætluð 6%. 2. 1. júní 1978 hækkuðu laun um 6,4% vegna almennra verðbóta. Við þá hækkun bættist grunnkaupshækkun kr. 5000 á mánuði, sem gerði kr. 5603 með verðbótum. Ofan á mánaðarlaun þannig reiknuð var síðan greiddur verðbótaviðauki skv. lögum nr. 3/ 1978 og nr. 63/1978. Hækkun dag- vinnulauna er alls talin um 22,5% 1. júní. Tekjuáhrif eru nokkuð minni eða um 18%, þar sem verðbótavið- auki lagðist ekki á yfirvinnu- og vaktaálög. 3. 1. september 1978 hækkuðu grunn- laun um kr. 4000 á mánuði, eða alls kr. 4992 með verðbótum. Frá sama tíma féllu úr gildi lög nr. 3/1978 og nr. 63/1978 og var greiðslu verðbóta- viðauka því hætt, en greiðsla verð- bóta miðuð við óskerta verðbótavísi- tölu, 142,29 stig, sem gilt hefði frá 1. júní, ef ekki hefði komið til fyrr- nefndrar lagasetningar. Þeirri hækk- un verðbóta, sem að óbreyttu hefði orðið 1. september var hins vegar eytt með niðurfærslu verðlags, sem fólst í auknum niðurgreiðslum og niðurfellingu söluskatts á matvörum, sbr. lög nr. 96 frá 8. september 1978. I þessum lögum er einnig ákvæði um að hámark (þak) verðbóta á mánað- arlaun fyrir dagvinnu skuli frá 1. sept. miðast við laun sem voru kr. 200.000 miðað við verðbótavísitölu þá er gilti 1. des. 1977. Tekjuáhrif launabreytinganna 1. sept 1978 eru áætluð 7,6%. 4. 1. desember 1978 komu 6,12% verð- bætur á laun lægri en 262.605 (þak- ið). Þau laun, sem voru yfir þessum mörkum, hækkuðu um kr. 16.075. Að óbreyttum lögum áttu verðbætur að hækka um 14,13%, en með lögum um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn varðbólgu nr. 103/1978 var ákveðið að kauphækkun yrði 6,12%, niðurgreiðslur auknar sem svaraði 3,01% af verðbótavísitölu, félagsleg- ar umbætur auknar, sem næmi 3% af verðbótavísitölu og skattar lág- tekjufólks lækkaðir, sem næmi 2% af verðbótavísitölu. 5. 1. mars 1979 hækkuðu laun um 6,9% vegna verðlagsbóta. Hærri mánaðar- laun en 278.680 á mánuði hækkuðu um 19.230 kr. 6. 1. júní ’79 hækkuðu laun um 11,4%. Laun hærri en 220.000 hækkuðu þó einungis um 9,22%. Við greiðslu verðbóta var framfylgt lögum nr. 13 frá 10. apríl 1979 um stjórn efnahags- mála, sem þýddi 5 prósentustiga minni hækkun á hærri laun og um 2,8% prósentustiga minni hækkun á lægri laun en orðið hefði að óbreytt- um lögum. 7. 25. júní 1979 hækkaði grunnkaup um 3%. 8. 1. september 1979 hækkaði kaup um 9,17% vegna verðlagsbóta. Ekkert þras hér Nýlega var auglýst eftir skúringakonum hjá gamalgrónu fyrirtæki í Reykjavík. Fyrirtækið var að flytja starfsemi sína í nýtt húsnæði innan borgarinnar og hef- ur sjálfsagt þurft að bæta við sig skúr- ingakonum. Enda nýja húsnæðið mun stærra. Á þriðja tug kvenna sótti um starfið og voru allar kallaðar til viðtals á sama tíma, þannig að sá umsækjend- anna sem ræddi við ritstjóra Vinnunnar um málið, þurfti að bíða í sex klukku- stundir eftir viðtali við konu þá sem um ráðningar þessar sá. Það var þó ekki biðin sem var tilefni þess að við Vinnuna var rætt, heldur sá formáli sem „ráðningastjóri“ fyrirtæk- isins hafði á viðtali sínu við umsækj- endur. Þar kom sem sé glögglega í ljós að hugmyndin er að fyrirtækið fari eig- in leiðir í sambandi við greiðslur launa fyrir skúringarnar. „Við viljum ekki fólk í vinnu hér, sem kemur veifandi Framsóknartöxt- um,“ sagði konan. „Það verðum við sem ákveðum hvað borgað verður fyrir starfið.“ Þarna á sem sagt að ráða til starfa fólk, sem ekki er sífellt að íþyngja at- vinnurekandanum með juði um kaup og kjör, heldur tekur þegjandi við því sem að því er rétt - hvað sem kjarasamning- um verkalýðsfélagsins líður. Oneitanlega athyglisverð sjónarmið árið 1979. ■hm VINNAN 5

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.