Vinnan


Vinnan - 25.10.1979, Side 21

Vinnan - 25.10.1979, Side 21
Könnun sú sem Guðjón fjallar um sýndi mjög slakt ástand í öryggis- og heilbrigSismálum. - Myndin er tekin í skipasmíSastöð. læknir var ritari og starfsmaður nefnd- arinnar. I apríl 1979, eða tveim árum síðar, lauk nefndin samningu lagafrumvarps um rammalöggjöf varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, sem lagt var fram á Alþingi í maímán- uði sl. I lagafrumvarpinu eru ýmiss athygl- isverð nýmæli og nauSsynlegar breyt- ingar frá eldri lögum, þ. e. lögum nr. 23, frá 1. febrúar 1952, um öryggisráS- stafanir á vinnustöðum og lögum nr. 12 frá 17. mars 1969, um heilbrigðiseftir- lit. ÞýSingarmestu atriði í hinu nýja lagafrumvarpi eru að mínum dómi þessi: 1. Eftirlit með aðbúnaði, hollustuhátt- um og öryggi á vinnustöðum verður hjá einni stofnun, Vinnueftirliti ríkis- ins, sem kemur í stað þeirra stofnana sem til þessa hafa fylgst með vinnu- umhverfi verkafólks. Aðilar vinnu- markaðarins skulu tilnefna í stjórn Vinnueftirlitsins 6 af 7 stjórnarmönn- um en ekki stjórnmálaflokkarnir. 2. Stjórn Vinnueftirlitsins hefur vald til aðgerða og ráðstafana til verndar verkafólki við vinnu og getur m. a. látið stöðva vinnu og hætta starfsemi, ef heilbrigði og öryggi starfsfólksins er í hættu. 3. Leitast er viS að skapa samstarfsvett- vang milli verkafólks, verkstjóra og atvinnurekenda, til að stuðla að bætt- um aðbúnaði, hollustuháttum og ör- yggi. I því skyni skal verkafólk til- nefna sérstakan öryggistrúnaðar- mann, og atvinnurekandi öryggis- vörð. A vinnustöðum með 20 starfs- mönnum eða fleiri skal stofnuð ör- yggisnefnd, sem vinni að endurbót- um á aðbúnaði, heilbrigðismálum og öryggi. 4. OryggistrúnaSarmönnum verkafólks og öryggisvörðum atvinnurekanda er skylt að hlutast til um að vinna verði stöðvuð strax ef skapast hefur bráð hætta á heilsutjóni eða slysum. 5. Gert er ráð fyrir að aðilar vinnu- markaðarins komi á fót öryggisnefnd- um fyrir hinar ýmsu atvinnugreinar, sem fjalli um nýjar reglugerðir sem settar verða eða geri tillögur um breytingar á eldri reglum. 6. I lögunum er sérstakur kafli um heilsuvernd, læknisskoðanir og rann- sóknir sem miði að því að koma í veg fyrir atvinnusjúkdóma. 7. Vinnueftirliti ríkisins skal veita, í samstarfi við aðila vinnumarkaðar- ins og öryggisnefndir, fræðslu og upplýsingar varðandi hættur á vinnu- stöðum og varnir gegn þeim, svo og um nýja tækni og þekkingu, sem stuðlað getur aS umbótum á aðbún- aði, hollustuháttum og öryggi á vinnustöðum. Lítil sem engin fræðsla hefur verið veitt í þessum efnum hér- lendis á undanförnum árum. 8. I lagafrumvarpinu er ákvæði um lág- mark hvíldartíma og frídaga, svo og um takmarkanir á vinnu barna og unglinga. Samfelldur lágmarks hvíld- artími, sem nú er 8 klst., er lengdur í 10 klst. á sólarhring. 9. í bráSabirgðaákvæði með lagafrum- frumvarpinu er Seðlabanka Islands gert skylt að útvega á næstu fimm ár- um, fjármagn, 300 milljónir kr. á ári, miðað við verðlag 1. janúar 1979, iil lánveitinga til fyrirtækja sem þurfa að framkvæma umbætur á aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi við vinnu. Mörg fleiri mikilsverð ákvæði eru í hinu nýja lagafrumvarpi, sem of langan tíma tæki að telja hér upp. Nýja lagafrumvarpið er um ramma- löggjöf og við samningu þess er gert ráð fyrir að settar verði ýtarlegar reglu- gerðir varðandi framkvæmd ýmissa ákvæða þess, svo sem varðandi vinnu- aðbúnað, vinnuframkvæmd, vinnuskil- yrði, vinnuöryggi og heilbrigðismál vinnustaða almennt. Nefndinni sem samdi lagafrumvarp- ið, var falið að sjá um könnun á ástandi aðbúnaðar og hollustuhátta á vinnustöðum. Nefndin fól Heilbrigðis- eftirliti ríkisins og Oryggiseftirliti ríkis- ins að framkvæma könnunina. Megintilgangurinn með vinnustaða- könnuninni er að fá upplýsingar um raunverulegt ástand aðbúnaSar og holl- ustuhátta á vinnustöðum og vekja at- hygli almennings á því. Upplýsingar sem fást úr niðurstöðum könnunarinnar verða vafalaust notaðar þegar samdar verða reglugerðir sam- kvæmt hinni nýju löggjöf. Því miður eru endanlegar niðurstöð- ur úr vinnustaðakönnuninni ekki fyrir hendi nú, en þegar svo verður koma fram sæmilega trúverðugar upplýsingar um aðbúnað og heilbrigðisástand vinnu- staða. Ég hef átt þess kost, sem einn nefnd- armanna í nefndinni er vann aS samn- ingu nýja lagafrumvarpsins, að skyggn- ast í þær niðurstöSur sem þegar liggja fyrir og einkum athugað niðurstöður VINNAN 19

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.