Vinnan


Vinnan - 25.10.1979, Qupperneq 23

Vinnan - 25.10.1979, Qupperneq 23
Vinstrimenn unnu sveitarstjórnarkosningarnar með glœsibrag, þannig að nú er 70% allra sveitarstjórna stjórnað af kommúnistum og jafnaðarmönnum. Fasistarnir eru fáir, en þeir hafa aftur á móti fjármagnið, sem Jrarf til stöðugs áróðurs, auk þess sem þeir eru dyggi- lega studdir af lögreglunni. átti sér stað í febrúar sl., en það var ekki fyrr en í apríLmánuði að samning- ur var undirritaður, eftir að vinna hafði verið lögð niður hjá fyrirtækinu á nýj- an leik. Viðlíka hörð barátta er nú í gangi hjá verksmiðjum bandaríska Fordrisans. Þar hafa 4000 verkamenn barist frá síð- ustu áramótum fyrir því að fá í gegn launasamning. Þeir hafa farið í skvndi- en eftir sem áður eru starfsemi hennar reistar skorður með mörgum gömlum fasistalögum. Og sú minnihlutastjórn Miðdemókrataflokksins sem nú situr að völdum, reynir sitt besta til að takmarka áhrif hennar. Lengra og lengra til hægri Það er þess vegna bæði af raunsæi og nauðsyn sem <tvö stærstu verkalýðssam- Við fiöfum fengið okkar réftindi - en andstœð- ingurinn er sá saml verkföll og einnig hafa þeir haft þann háttinn á, að fara í einu og öllu eftir settum reglum og tafið þannig fyrir framleiðslunni. En það er ekki aðeins hjá erlendu fyr- irtækjunum sem vandamálin koma upp. Spánska atvinnurekendasambandið er ekki síður erfitt við að eiga. I ástandi eins og því sem hér hefur verið lýst, er sterk og einhuga verkalýðs- hreyfing ákaflega nauðsynleg. Og spánska verkalýðshreyfingin á við mörg vandamál að etja, því ríkisbáknið er ennþá í meginatriðum „frankóserað“ í uppbyggingu. Þannig eru viðbrögð hins opinbera við verkföllum og verkalýðs- baráttu enn í dag handtökur og vald- beiting. Meðan verkafólk er handtekið og fangelsað fyrir virkni í baráttunni horfa yfirvöld hins vegar í gegnum fingur sér þegar í hlut eiga hægri sinn- uðustu samtök og einstaklingar þjóðfé- lagsins, sem eru óátalið látin komast upp með hryðjuverk, valdbeitingu margskonar og morð. Leiðtogi hins nýj a verkalýðssambands Spánar (UGT), Nicolas Redondo, sagði nýlega í viðtali við danska LO-blaðið, að meginástæðan fyrir erfiðleikum verkalýðshreyfingarinnar á Spáni væri sú, að hinir raunverulegu valdaaðilar þj óðfélagsins, herinn, kirkjan og stór- iðjuhöldarnir, væru í dag fyllilega jafn sterkir og þeir voru á dögum Frankós. — Þar hefur ekki orðið á nein breyt- ing, segir Redondo í viðtalinu. — Ffvorki hvað snertir einstaklinga né fjárhags- lega uppbyggingu. Bankavaldið og fjár- málamennirnir hafa sama valdið og hernum er stjórnað af sömu mönnum og áður. — Sá hópurinn sem lengst er til hægri starfar í kringum fasistasamtökin Fuerza Nueva (Nýtt afl) og er ákaflega fámennur. En hann hefur afgerandi á- hrif þar sem hann getur alltaf reitt sig á lögregluna, þar sem foringjarnir, full- trúarnir og spæjararnir sitja enn í sömu embættum og þeir höfðu á valdatíma Frankós, bætir Redondo við. Verkalýðshreyfingin hefur smátt og smátt verið að fá lýðræðisleg réttindi, tök Spánar hafa tekið upp mjög náið samstarf. Þetta eru UGT, sem áður er nefnt, og CCOO (Fulltrúar verkalýðs- ins). Fyrrnefnda sambandið er nátengt jafnaðarmannaflokknum, en CCOO kommúnistaflokknum. Það gefur því auga leið að uppi eru deilumál milli þessara tveggja sambanda, um hug- myndafræði, skipulagsmál og starfsað- ferðir. En þessum deilumálum hefur nú verið ýtt til hliðar. Óvæntur sigur kom- múnista og jafnaðarmanna í sveitar- stjórnarkosningum í mars sl. höfðu af- gerandi áhrif í sambandi við þessa sam- vinnu, en eftir þessar kosningar ráða þessir tveir flokkar um 70% af öllum sveitarstjórnum á landinu, þ. á m. þeim stærstu. Þetta hefur skapað ótta hjá stjórnar- flokknum UCD (Miðdemókrötum), sem hefur reynt að svara þessari óvæntu uppákomu með því að svipta sveitar- stjórnirnar valdi í ýmsum þýðingar- miklum málum og setja þau þess í stað í hendur eins konar amtmanna. Að sögn þeirra Redondos og starfsbróður VINNAN 21

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.