Vinnan


Vinnan - 25.10.1979, Qupperneq 25

Vinnan - 25.10.1979, Qupperneq 25
víd/jo VESTUR-ÞÝSKALAND: Þýskt verkalýðsfélag deilir á pólitískar „athuganir“ á verkamannaráðum Samtök verkamanna í málmiðnaði í Vestur- Þýskalandi, IG Metall, hefur krafist þess að þegar í stað verði aflagðar athuganir, eða pólitískar „tékkanir“, ríkisstofnunar þeirrar er hefur með verndun stjórnarskrár ríkisins að gera, á verkamannaráðum í vesturþýsk- um fyrirtækjum. Þessi krafa fylgir í kjölfar uppljóstrunar á því að stofnun þessi „kanni“ ráðin í ótilgreindum fjölda fyrirtækja, og að slíkar „kannanir“ séu hluti af hefðbundnum störfum hennar. Einn af stjórnarmönnum IG Metall, Georg Benz, sagði að þar sem ekki hefði verið neit- að að um samvinnu væri að ræða milli þessar- ar stofnunar og aðila í starfsmannahaldi fyrir- tækjanna, sjálfra, lægi ljós fyrir nauðsyn þess að vinnuráðin fengju yfirráð yfir innri upp- lýsingakerfum fyrirtækjanna. Hann sagði að verkalýðsfélögin gætu engan veginn gert sér að góðu fullyrðingar ríkisstofnunarinnar um að hún takmarkaði rannsóknir sínar við „fyr- irtæki sem eru nauðsynleg lífi og vörnum landsins og stór fyrirtæki“, því, eins og Benz spurði: „Hver getur tryggt að einhver embætt- ismaður skilgreini ekki sem mikilvægt fyrir varnir landsins, fyrirtæki sem framleiðir þrjár skrúfur fyrir flugvélaframleiðanda?“ Megin viðfangsefni þessarar ríkisstofnunar er að „rannsaka“ samtök sem eru óvinveitt vesturþýsku stjórnarskránni. ÍTALÍA: Verkalýðsfélag á skjánum Innan skamms kemur að því að sjónvarps- áhorfendur í Feneyjum og nágrenni geta horft á vikulegan sjónvarpsþátt, sem gerður er að öllu leyti af svæðisdeild ítölsku verkalýðssam- takanna (CISL). Um verður að ræða 30-40 mínútna dagskrá, sem sjónvarpað verður hvert laugardagskvöld (kl. 22.30, ef þið skylduð eiga leið um), um sjónvarpsstöð í einkaeign, RTV. Þáttur þessi, eða dagskrá, munu saman- standa af fréttum, viðtölum og tilkynningum um málefni verkalýðsfélaga. Styttur vinnutími á Ítalíu Nokkrar milljónir ítalskra verkamanna sjá nú fram á styttingu árlegs vinnutíma síns um 40 til 80 klukkustundir, en stytting þessi á að koma til framkvæmda á næsta ári. Þetta er afrakstur samninga, sem nýverið var gengið frá en samningar þessir styrkja einnig rétt verkalýðsfélaga til þess að vinnuveitendur ráð- færi sig við þau, einkum í því er varðar fjár- festingarmál og ráðningar. Þá er í samning- ana bætt atriðum er varða þjálfun og vernd verkamanna, sem þurfa að skipta um störf. Hinir fyrstu til að ljúka gerð þriggja ára samnings voru verkamenn í málmiðnaði í einkarekstri. I samtökum þeirra eru 1,2 millj. manna. Félög þeirra, sem gert höfðu kröfu um 38 stunda vinnuviku, náðu fram að nýju fimm frfdögum, sem afnumdir höfðu verið, svo og styttingu árlegs vinnutíma um 40 stund- ir. I byggingaiðnaði á vinnuárið að styttast um 68 stundir, í vefnaðariðnaði um 40. Samning- ar vefnaðarverkafólks gefa vaktavinnufólki einnig kost á að vinna sex daga, 36 stunda vinnuviku. I efnaiðnaði, sem er í eigu ríkis eða sveitarfélaga, styttist vinnuvika verkafólks í 37 stundir og 20 mínútur. FRAKKLAND: Samkomulag um fækkun í frönskum stáliðnaði Eftir fimm mánaða samningaumleitanir hafa fulltrúar vinnuveitenda og félög verka- manna í stáliðnaði Frakklands náð samkomu- lagi um það hvernig standa beri að fækkun verkamanna í iðnaðinum í norður- og austur- hluta landsins, um 21.000 manns. Stáliðnaður í Frakklandi hefur staðið ákaflega höllum fæti nú um langt bil. Hjá fyrirtækjum, sem á að endurskipu- leggja, er heimilt að setja þá verkamenn sem náð hafa 55 ára aldri, á eftirlaun, er nema 70% af síðustu launum þeirra. Verkamönnum á aldrinum 50-55 ára, sem annað hvort eru bæklaðir, eða hafa haft mjög erfið störf með höndum, verður gefinn kostur á að fara sjálf- viljugir á eftirlaun, sem nema 79% af síðustu launum þeirra. Uppsagnir mega koma til gagn- vart síðarnefnda hópnum, ef of fáir íaka þessu bcði. Til viðbótar við þær greiðslur sem þeir fá frá eftirlaunasjóðum hefur franska ríkið bcðið hverjum þeim er fer sjálfviljugur frá störfum, upphæð sem nemur 50.000 frönkum, sem er liðlega 4,5 milljónir íslenskra króna. Ungum verkamönnum, sem missa störf sín við endurskipulagninguna, verða boðin önnur störf og þeim tryggt að ekki verði um veru- lega lækkun launa að ræða. Þá hafa verkalýðsfélögin einnig náð fram styttingu vinnutíma, úr 42,5 stundum á viku í 41,5 stundir, fyrir alla þá sem ekki vinna að jafnaði á vöktum (en vinnuvika þeirra er þeg- ar komin niður í 40 stundir). Hins vegar neit- uðu vinnuveitendur að gangast inn á að þessi stytting vinnuvikunnar hefði í för með sér sér fjölgun starfsmanna (eða öllu heldur fækkun þeirra er þyrftu að víkja úr starfi). Félög verkamanna í stáliðnaði í Þýskalandi óttast nú að „endurskipulagning“ komi til með að taka sinn toll hjá þeim í náinni fram- tíð. Vegna þessa hafa þau nýlega lokið gerð samninga um tryggingu atvinnu og tekna við tvo atvinnurekendur. Þessir samningar tryggja hverjum og einum verkamanni vinnu til fimm ára. Færslur innan fyrirtækis eru heimilar, en laun mega ekki lækka. BRESKA SAMVELDIÐ: Vilja koma olíufélögunum undir stjórn Samtök verkamanna í bílaiðnaði, flugvéla- iðnaði og framleiðslu landbúnaðartækja í Bandaríkjunum (UAW) hafa í hyggju að fá félaga sína, sem eru nær ein og hálf miljón talsins, til að skrifa Carter forseta og þing- mönnum sínum og krefjast þess að stóru olíu- félögunum í Bandaríkjunum verði komið und- ir opinbera stjórn, eða þeim settar einhverjar skorður. Þegar Douglas Fraser, forseti samtakanna, tilkynnti þessa bréfaherferð, sagði hann til- gang hennar vera að sýna „hversu sárlega þjóðin þarfnast raunhæfrar og starfhæfrar orkumálastefnu, sem sett getur olíurisunum einhver takmörk. Bandaríska þjóðin telur sig vera notaða í þágu olíufélaganna, og hún hef- ur rétt fyrir sér. Fólk telur að verið sé að ræna það og það hefur rétt fyrir sér,“ sagði Douglas Fraser. Bresk verkalýSsfélög hefja aðgerðir vegna S.-Afríku Þing breskra vcrkalýðsfélaga hefur farið þess á leit við aðildarfélög sín, að þau grípi til sérstakra aðgerða gagnvart þrjátíu og níu tilteknum breskum fyrirtækjum, en dótturfé- lög þessara fyrirtækja eru meðal stærstu vinnuveitenda þeldökkra verkamanna í Suður- Afríku. Er ætlunin með aðgerðunum að knýja á um að fyrirtækin breyti til hins betra sam- skiptum sínum við verkamenn, einkum þó að þau viðurkenni verkalýðsfélög þeldökkra. Þessar aðgerðir koma í kjölfar skýrslu, sem breska ríkisstjórnin hefur birt, þar sem fjall- að er um það hversu vel bresk fyrirtæki fara eftir starfsreglum þeint er Efnahagsbandalag Evrópu setti fyrirtækjum er hafa rekstur í Suður-Afríku. Er breska ríkisstjórnin hin fyrsta af stjórnum efnahagba.ndalagsríkjanna níu til þess að birta slíka skýrslu. Af þeim 178 fyrirtækjum sem gáfu ríkis- stjórninni skýrslu um málefni sín, valdi þing breskra verkalýðsfélaga 39, sem hafa í sinni þjónustu fimm hundruð þeldökka eða fleiri. VINNAN 23

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.