Vinnan - 01.12.1998, Síða 13
Þjóðin vill efla velferðarkerfið
Mun meiri stuðningur er við aukningu útgjalda til heilbrigðiskerfisins nú en
fyrir 10 árum síðan. Það er Ijóst að niðurskurðaraðgerðir síðustu ára hafa ekki
hljómgrunn meðal almennings.
Einungis 34% landsmanna telja
þjónustu heilbrigðiskerf isins á
Islandi góða, samanborið við
60% fyrir áratug. Jafnframt
voru tveir af hverjum þremur
svarenda sammála þeirri stað-
hæfingu að stjðrnvöld verði að
viðhalda félagslegri þjónustu,
jafnvel þótt það þurfi að hækka
skatta og gjöld til þess. Þetta
er meðal niðurstaðna f viða-
mikilli könnun á viðhorfum ís-
lendinga til velferðarkerfisins,
sem kynnt var fyrir skemmstu.
Könnunin var gerð í október af
Félagsvfsindastofnun fyrir
BSRB.
Könnunin náði til 1500 manna
slembiúrtaks úr þjóðskrá, 18 ára
og eldri. Alls svöruðu 1011 einstak-
lingar, eða tæp 67,4%. Nettósvörun,
þ.e. þegar búið er að draga frá þá sem
nýlega eru látnir, þá sem búa erlendis
og erlenda ríkisborgara er 68,5%. Þar
sem sumar spumingamar í könnun-
inni voru þær sömu og spurt var í
könnun árið 1989, gefur hún kost á
að bera saman viðhorf með áratugs
millibili. Jafnframt vom sumar spum-
ingar þær sömu í sambærilegri könn-
un sem Evrópusambandið hefur látið
gera, en það býður upp á möguleika á
samanburði við fólk í aðildarríkjum
ESB.
flðeins 5% íslendinga telja
velíerðarþjonustu nf mikla
Alls töldu tæp 40% svarenda velferð-
arþjónustu á íslandi of litla, 57%
töldu hana hæfilega og 5% töldu
hana of mikla. Þegar þetta er skoðað
nánar eftir afstöðu til tiltekinna verk-
efna á sviði velferðarmála, kemur í
Ijós að 34% telja þjónustu heilbrigð-
iskerfisins góða, samanborið við 60%
fyrir 10 ámm. Ekki hafa orðið breyt-
ingar á afstöðu til skólakerfisins á
þessum 10 ámm, en 35% telja þjón-
ustu þess góða. Um 40% telja lög-
gæsluna veita góða þjónustu og um
60% eru þeirrar skoðunar um Há-
skólann. Afstaðan hefur ekki breyst
til þessara tveggja þjónustuþátta á
þessu tíu ára tímabili. Allnokkur
breyting hefur orðið á afstöðu tii
vegagerðarinnar. Þannig taldi fjórð-
ungur svarenda hana veita góða þjón-
ustu fyrir 10 ámm, en 42% nú. Þó til-
tölulega fáir telji ráðuneyti og opin-
bera stjómsýslu veita góða þjónustu,
virðist hún þó heldur á uppleið í hug-
um almennings. Alls töldu 8% þjón-
ustuna góða fyrir 10 ámm, en 15%
nú. Fimmtungur svarenda telur þjón-
ustu almannatrygginga góða, en ekki
var spurt um hana fyrir tíu ámm.
Telja að auka beni útgjöld
til flestra málaflokka
Spurt var hvort auka ætti útgjöld til
áðumefndra þátta, halda í horfinu eða
draga saman. Opinber stjórnsýsla
sker sig nokkuð úr hvað varðar fjölda
þeirra sem telja að draga beri úr út-
gjöldu, en alls töldu 44% ástæðu til
þess. Innan við 10% töldu rétt að
auka útgjöld til þessa málaflokks, en
47% að halda bæri í horfinu. Alls
töldu 84% að auka bæri útgjöld
vegna dagpeningagreiðslna til lang-
veikra, 82% vegna örorkulífeyris,
78% vegna ellilífeyris, 68% vegna
skólkerfisins, 64% vegna heilbrigðis-
þjónustunnar, 63% vegna aðstoðar
við bamafjölskyldur og 51% vegna
dagvistunar bama. Vegna almanna-
trygginga töldu 47% að auka bæri út-
gjöld, 41% vegna aðstoðar við náms-
menn og jafnmargir vegna sam-
gangna og um 30% vegna atvinnu-
leysisbóta. I öllum þessum tilvikum
töldu langflestir þeirra sem á annað
borð töldu ekki ástæðu til að auka út-
gjöldin, að halda bæri í horfinu.
Heilbnigðispjónustan á dagskrá
Talsvert meiri stuðningur var við
aukningu útgjalda nú en fyrir 10
árum til heilbrigðisþjónustu, skóla-
kerfis og almannatrygginga. Færri
töldu nú að auka bæri fjárveitingar
vegna þjónustu við aldraða, vegna
samgangna og dagvistunar bama en
fyrir 10 ámm. Það þýðir þó ekki að
fáir telji nauðsyn á að gera betur í
þessum málaflokkum, því þrír af
hverjum fjómm vom þeirrar skoðun-
ar varðandi þjónustu við aldraða og
rúmur helmingur varðandi dagvistun
bama.
Meirihluti vill afskipti
hins opinbera
f könnuninni var spurt hvort svarend-
ur vildu „ömgglega afskipti, líklega
afskipti eða ekki afskipti" af ýmsum
verkefnum sem tengjast velferðar-
þjónustunni. Alls vilja 77% að hið
opinbera tryggi heilbrigðisþjónust-
una, þrír af hverju fjómm vilja að það
tryggi ellilífeyri og 55% vilja að hið
opinbera tryggi atvinnleysisbætur.
Um 60% vilja að hið opinbera hafi
beiti sér fyrir því að draga úr launa-
mun á vinnumarkaði og jafn margir
vilja að hið opinbera tryggi fulla at-
vinnu.
ísland aftarlega á merinni
Þegar útgjöld til velferðarkerfisins á
íslandi og í ýmsum nágrannalöndum
em borin saman, kemur í ljós að víð-
ast hvar í þeim löndum sem við ber-
um okkur oft saman við em útgjöldin
hærri, sem hlutfall af vergri lands-
framleiðslu. Á íslandi er hlutfall út-
gjalda til almannatrygginga og heil-
brigðismála um 19%, lægra en á
Grikklandi, írlandi, Portúgal og
Spáni, svo dæmi séu nefnd. Svíþjóð
trónir á toppnum, með 35,6% og
Danmörk kemur næst með 34,3%. Af
þeim löndum sem miðað er við, verja
13 meira en fimmtungi vergrar lands-
framleiðslu til þessara málaflokka, en
einungis 3 em innan við 20%, þar á
meðal ísland, sem er á botninum eins
og áður segir.
Sendum launafólki bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og farsœldar á komandi ári
Ólafur Þorsteinsson, Vatnagörðum 4, Reykjavík Póstmannafélag íslands Skrifstofa jafnréttismála, Pósthússtræti 14, Reykjavík Sökkull sf., Dugguvogi 9-11, Reykjavík Tiffany, heildverslun, Óðinsgötu 7, Reykjavík
Sláturfélag Suðurlands svf., Fosshálsi 1,
Prentberg ehf., Auðbrekku 4, Kópavogi Reykjavík Umfang hf., Grenásvegi 12, Reykjavík
Rafmagnsveitur Ríkisins Sláturfélag Vopnfirðinga, Hafnarbyggð 6 Útvík ehf., Eyrartröð 7-9, Hafnarfirði
Rafveita Hafnarfjarðar, Strandgötu 6, Hafnarfirði Slippstöðin hf., Hjalteyrargötu 20, Akureyri Veislubakstur, Fjölnisgötu 4F, Akureyri
Smur- bón- og dekkjaþjónustan sf., Vestmannaeyjahöfn
Rekstarvörur ehf., Réttarhálsi 2, Reykjavík Tryggvagötu 15, Reykjavík Vélstjórafélag Suðurnesja
Reykjavíkurborg Smurstöð Esso, Skemmuvegi 6, Kópavogi Viggó hf., Egilsbraut 6, Neskaupstað
Reykjavíkurhöfn l Sparisjóður Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10 Vírnet hf., Borgarbraut 74, Borgarnesi
Siglufjarðarhöfn Sparisjóður Kópavogs, Digranesvegi 10 Vopnafjarðarhreppur
Siglufjarðarkaupstaður Sparisjóður Vestmannaeyja, Bárustíg Völur hf., Vagnhöfða 5, Reykjavík
Sjálfsbjörg, Bugðusíðu, Akureyri Sparisjóðurinn Keflavík, Tjarnargötu 12-14, Keflavík Þjónustuskrifstofa Árborgar, Hafnargötu 10,
Skeljungur hf., Suðurlandsbraut 4, Reykjavík Stokkseyri
Skilmannahreppur Stálsmiðjan hf., Mýrargötu 10-12, Reykjavík Þórshafnarhreppur
Skinney hf., Krosseyrarvegi 11, Höfn Steinullarverksmiðjan, Skarðseyri 5, Sauðárkrók Þroskaþjálfafélag íslands
Skipaafgreiðsla Húsavíkur ehf., Höfða 2 Stensill ehf., Suðurlandsbraut 4A, Reykjavík Ægir ehf., Ægisbraut 9, Akranesi
Skjól, hjúkrunarheimili, Kleppsvegi 64, Reykjavík Steypustöðin ehf., Sævarhöfða 4, Reykjavík Öryrkjabandalag íslands
Skorradalshreppur Sæhamarehf., Ftötum 31, Vestmannaeyjum 1
Vinnan
13