Vinnan - 01.05.2010, Qupperneq 4

Vinnan - 01.05.2010, Qupperneq 4
Páll Skúlason heimspekingur Hvernig byggjum við réttlátt þjóotélag? Páll Skúlason heimspekingur og fyrrverandi háskólarektor flutti erindi á síðasta ársfundi ASÍ. Páll var þar beðinn um að leggja út af yfirskrift fundarins sem var Byggjum réttlátt þjóðfélag. Er skemmstfrá því að segja að erindi Páls vakti mikla athygli enda velti hann upp grundvallarspurningum sem hann svo leitaðist við að svara. Til að fleiri fái að njóta mannbætandi pælinga Páls lagði Vinnan nokkrar spurningarfyrir heimspekinginn. Margir tala um að það haft orðið einhverskonar siðferðisbrestur í samfélaginu á síðustu árum þar sem taumleysi ílífsstíl og metorðagirnd tóku völdin. Þetta gæti allt eins verið lýsing á hnignun Rómarveldis til forna. Hvar fórum við út af sporinu? Eðavar það kannski alls ekki íslensk þjóð sem fór út afsporinu heldur fámennur hópur manna? „Áður en ég reyni að svara þessari stóru spurningu, vil ég biðja fólk að íhuga hvað siðferði er. Siðferði byggist á viðleitni til að gera það sem rétt er, leita þess sem gefur lífinu gildi og til að berjast gegn kúgun og ófrelsi. Þess vegna er siðferðið undir okkur sjálfum komið, gildismati okkar og samskiptum. í öllu mannlegu samneyti skiptir réttlætið mestu. í nánu sambandi er það ástin og svo á hvert okkar í samskiptum við sjálft sig og þá skiptir sjálfræðið mestu, það að vera ekki á valdi óvitrænna afla sem leiðaokkurígönur. Við íslendingar höfum aldrei lagt okkur nægilega eftir að þroska siðferði okkar í þessum skilningi. Auk þess hefur þeim boðskap verið haldið fast að þjóðinni síðustu áratugi að það sé öllum eiginlegt að hugsa 4 • VINNAN •

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.