Vinnan - 01.05.2010, Blaðsíða 7
sem fylgja stöðlum Evrópusambandsins.
Þetta er eins vetrar nám mjög fjölbreytt og
krefjandi. Mjög margarferðaskrifstofur hér-
lendis hafa þann metnað að ráða eingöngu
faglærða leiðsögumenn, enda þykja íslenskir
leiðsögumenn með þeim faglegustu í heimi."
Hvað með erlenda leiðsögumenn -
geta þeir veitt leiðsögn um Island?
„Hvort þeir geti það, er spurning? En þeir
gera það, þar sem starfið okkar er ekki
lögverndað. Það er ekki óalgengt að erlend-
ir leiðsögumenn sem hafa takmarkaða þekk-
ingu á landi og þjóð fari um landið með
hópa og í stað þess að fá greiðslu fyrir vinnu-
na sína í peningum, fá þeirfríttfæði og uppi-
hald, og ferð til íslands.
Rútubílstjórar hafa sagt manni sögur af
ótrúlegri fávisku erlendra leiðsögumanna og
þeim svíður oft öll vitleysan og staðháttar-
villurnar sem sagðar eru. Þó heyrir maður
líka af erlendum leiðsögumönnum sem
standa sig ótrúlega vel. Eitt af vandamálum
erlendu leiðsögumannanna er að kunna ekki
að segja þjóðsögur og aðrar sögur í rigningar-
túrum, því auðvelt er að ferðast um landið í
fallegu veðri," segir Alda.
Starf leiðsögumannsins, geturþú lýstþví
ínokkrum orðum?
„Starfið er þjónustustarf sem krefst fyrst og
fremst færni í mannlegum samskiptum. Það
er ekki nóg að vita fullt af hlutum, heldur
þarf að koma þvífrá sér á skemmtilegan,
fræðandi og frambærilegan máta. Ég hugsa
um hverja ferð með þakklæti þar sem ég
fæ tækifæri til að gera ferðina til íslands að
ógleymanlegu ævintýri fyrir hóþ fólks sem
fer heim og segir öðrum frá.
Hóþarnir hafa mismunandi væntingar
og það gefur starfinu fjölbreytileika. Ég fer
yfirleitt með Norðmenn í styttri ferðir. Þó svo
að ég fari sömu ferðina oft þá eru alltaf mis-
munandi væntingar og atriði sem vekja
áhuga hjá ferðamanninum."
Meiri krafa um þægindi
Ferðaþjónusta á íslandi hefur breyst á síðustu
árum. Hvernig horfirsú breyting við þér?
„Já, ferðaþjónustan hefur mikið breyst.
Fleiri koma til landsins á eigin vegum og
ferðast um á bílaleigubílum eða eigin bílum.
Rútuferðirnar eru styttri og farið er hraðar
yfir. Skipulögðum hálendisferðum hefur
fækkað og það er miklu meiri krafa um full-
komin þægindi á hótelum. Ekki má gleyma
öllum skemmtiferðaskipunum, en þeim
hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Það er
hópur leiðsögumanna sem starfar eingöngu
við að sinna skemmtiferðaskipum, en það
er alltaf boðið upp á dagsferðir frá þeim
stöðum þar sem skipin leggjast við bryggju
t.d. Reykjavík og Akureyri."
Hefur Félag leiðsögumanna tekið þátt í
þeirri auknu umræðu um umhverfisvernd
sem átt hefur sér stað íþjóðfélaginu?
„Félag leiðsögumanna færtil umsagnarallar
ályktanirog lagafrumvörpfrá Alþingi ervarða
ferðaþjónustuna, félagið á einnig fulltrúa í
Landvernd. Innanfélagsinseru margirfélags-
menn með mjög sterkar skoðanir varðandi
loftslags- og umhverfismál og þess vegna
hefur félagið sem slíkt ekki tekið formlega
afstöðu í stórum umhverfismálum," segir Alda
Jónsdóttir leiðsögumaður að lokum.
Vissir þú...
...að verðlagseftirlit ASI kannar
reglulega vöruverð og verðþróun.
Með slíku verðlagseftirliti er hægt
að veita fyrirtækjum og stofnunum
aðhald með það að markmiði að
halda vöruverði eins lágu og frekast
er kostur. Lágt vöruverð er grund-
vallaratriði til að bæta lífskjörin.
...að Alþýðusamband íslands er
stærsta fjöldahreyfing launafólks
á íslandi.
Fræðsluefni á albönsku, arabísku,
ensku, pólsku, rússnesku,
spænsku og tælensku.
Þessi fræðslurit eru fáanleg á öllum
heilsugæslustöðvum.
Texti ritanna hefur verið þýddur á nokkur tungumál
og hægt er að nálgast textana
og prenta út af heimasíðu Lýðheilsustöðvar:
www.lydheilsustod.is - Útgefið efni - Foreign languages
www.lydheilsustod.is
LÝÐH E I LSUSTÖÐ
VINNAN • 7
Lýðheilsustöð/Hugtök Markaðsráðgjöf, Mars 2010.