Vinnan - 01.05.2010, Blaðsíða 6
Alda Jónsdóttir frá Félagi leiðsögumanna
Rúmlega 100 þúsund einstaklingar eiga
aðild að Alþýðusambandi íslands í gegnum
sitt stéttarfélag. Félögin innan ASÍ eru nú
53 talsins og þau eru af ýmsum stærðum
og gerðum. StærsterVR með 28 þúsund
félaga og Efling er með tæþlega 20 þúsund.
Félag leiðsögumanna er eitt af smærri
stéttarfélögunum sem eiga aðild að ASÍ
en í því eru nú um 540 manns. Vinnan hitti
Öldu Jónsdóttur sem hefur starfað fyrir
Félag leiðsögumanna á undanffarin ár til
að forvitnast um félagið og starf leiðsögu-
manna.
„Félag leiðsögumanna hefurverið í ASÍ
frá árinu 1976 en félagið var stofnað 1972,"
segir Alda og bætir við. „Stofnfélagarnir
sem voru 27 talsins höfðu starfað við
leiðsögu erlendra og íslenskra ferðamanna.
í dag eru u.þ.b. 540 leiðsögumenn skráðir í
félagið. Helsti ávinningur að aðildinni að ASÍ
er sú félagslega þjónusta sem í boði er fyrir
aðildarfélög. Lögfræðileg álit, aðstoð við
kjarasamninga og annað slíkt. Svo eigum
við fulltrúa í nefndum og ráðum innan
samtakanna og ekki síst er mikilvægt fyrir
félagið að vera hluti af fjölmennri og sterkri
hreyfingu launamanna sem ASÍ er."
Aðeins hluti félagsmanna hefur leiðsögn
að aðaistarfi, þó svo að það hah breyst á
síðustu árum - hvernig hefurþað áhrifá
kjarabaráttu félagsins?
„Kjarabaráttan verður augljóslegar mátt-
lausari þegar stór hluti félagsmanna hefur
annað aðalstarf en leiðsögn, sem er hjá
mörgum góð viðbót við vinnuflóruna. Starf
leiðsögumanna er mjög skemmtilegt og
gefandi og oft fmnst okkur leiðsögumönn-
um eins og það eigi að vera hluti af launum
okkar því við teljum að starfið sé verulega
vanmetið til launa," segir Alda.
„Því miður er starf okkar ekki lögverndað
og hingað til lands - sérstakleg á háanna-
tíma - kemur töluvert af erlendum leið-
sögumönnum. Ferðaþjónustan ber sig illa,
segir að það vanti íslenska leiðsögumenn til
að fullnægja eftirspurninni, en mjög fáir ef
einhverjir leiðsögumenn eru fastráðnir hjá
fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Það verður til
þess að þau fáu okkar sem vinna við leiðsögn
allt árið sem aðalstarf gefumst upþ á harkinu
eftir nokkur ár og finnum okkur aðra vinnu.
Sumir reyna að auka tekjurnar með því að
vera„driver guide" sem oft getur verið mjög
lýjandi og unnið við erfiðar aðstæður."
Ótrúleg fáviska
Hvaða menntun þarftil að verða
leiðsögumaður?
„Það eru starfandi leiðsöguskólar hér á landi
6 VINNAN ■