Vinnan - 01.05.2010, Page 5

Vinnan - 01.05.2010, Page 5
fyrst og fremst um sjálfa sig og sérhagsmuni sína. Þess vegna höfum við göslast áfram og skaðað bæði land og þjóð með ýmsum vanhugsuðum ákvörðunum og aðgerðum. Þetta hefur spillt stjórnmálum okkar og efnahagsmálum. Svo tók taumleysið völdin meðalkunnumafleiðingum. Fámennur hópur manna réð vissulega för, en þjóðin lét sannarlega glepjast." Er einhver sérstök skýring á því að við lendum verr í þessu en nágrannaþjóðir okkar? „Við (slendingar höfum ekki sinnt sameiginlegum veruleika okkar sem skyldi. Þess vegna eru stjórnmál okkar og raunar mörg skipulagsmál í ólestri. Við vorum undir erlendu valdi um aldir og höfum eins og margar nýlenduþjóðirfyrirfram neikvæða afstöðu til ríkisins. Við viljum vera laus undan öllum þoðum og bönnum og haga okkur eins og okkur sjálfum sýnist. Þetta verður til þess að við vanrækjum að hugsa og ræða af skynsemi um almannaheill. Þegar þeir sem halda um stjórnartaumana hafa þessa afstöðu, þá verður ríkið fyrst og fremst valdatæki til að hygla sérhagsmunum." Reiðin á að vera hvati til að berjast fyrir réttlæti Það líður varla sá dagur að ekki berist fréttir af vafasömum viðskiptum ogjafnvel umbúðalausum svikum fjármáiamanna misserin fyrir hrun. Hjá almenningi liggur enn mikil reiði í loftinu. Hvað þarfþjóðin að gera til að rísa upp og halda áfram? „Vafasöm viðskiþti og svik áttu sér stað í skjóli ófullkominna laga og lítils eða lélegs eftirlits ríkisvaldsins. Reiði þjóðarinnar beinist því í senn að fjármálamönnum sem fóru offari og stjórnvöldum sem gerðu ekki það sem þurfti til að hindra að þeir sköðuðu þjóðina með framferði sínu. Reiði er í sjálfu sér heilbrigð viðbrögð við ranglæti og hún á að vera hvati til að berjast fyrir réttlæti og breyta því þjóðskipulagi sem lét ranglætið viðgangast," segirPáll. „Við þær aðstæður sem nú hafa skapast kemst þjóðin ekki hjá því að hugsa stjórnskipun ríkisins að nýju og styrkja þær stofnanirsem eru nauðsynlegartil að halda uppi nútímasamfélagi, því þær standa allar höllum fæti. Þjóðin hefur alla andlega burði til að skapa hér manneskjulegt samfélag, en það getur hún ekki fýrr en hún gefur siðferðilegum gildum forgang og lætur ekki stjórnast af efnahagslegum gæðum eingöngu. Heilbrigð eða réttlát stjórnmál munu aldrei dafna á landinu nema við tökum til rækilegrar endurskoðunar það stjórnarfar og þá stjórnsiði sem hér hafa tíðkast. Hér verður heldur aldrei heilbrigt eða réttlátt efnahagslíf nema það sé sátt um það í samfélaginu hvernig við öflum okkurtekna og hvernig hinum efnahagslegu gæðum er skipt meðal landsmanna." Aðeins ein leið til að leggja grunn að góðu mannlífi Hvernig byggjum við upp heilbrigt og réttlátt samfélag? „Við verðum að viðurkenna í fúlustu alvöru að samfélagið er samandlegur og sammann- legur veruleiki sem við eigum öll þátt í að móta með hegðun okkar og hugsunum. Heimilið er smæsta samfélagseiningin og þar hefur líðan eins áhrif á líðan allra hinna. Sama gildir um samfélag þjóðarinnar og líka samfélag þjóða heimsins. Líðan eins hóps hefur áhrif á alla hina. Við fundum öll til þegar hörmungarnar dundu yfir Haiti á dögunum. (góðu samfélagi líður öllum vel vegna þess að þar er enginn útskúfaður eða lagður í einelti, heldur leitast fólk við að styðja hvert annað og hjálpast að þegar á bjátar. Það verða árekstrar og erfiðleikar í öllum samfélögum og samskiptum manna vegna þess að við erum flóknar hugsandi verur með alls kyns þarfir, hvatir og langanir sem við þurfum sífellt að takast á við bæði hjá sjálfum okkur og öðrum. Þess vegna er það bókstaflega endalaust verkefni að leitast við að byggja upp heilbrigt og réttlátt samfélag. Ef við sinnum því ekki stöðugt og af kostgæfni þá getum við verið viss um að samfélagið verður óheilbrigt og ranglátt. Og ef við höldum að við séum þegar búin að skapa heilbrigt og réttlátt samfélag, þá erum við að blekkja sjálf okkur vegna þess að fullkomið heilbrigði og fullkomið réttlæti eru ekki af þessum heimi. Ef þetta er rétt, þá er aðeins ein leið til að leggja grunninn að góðu mannlífi. Hún er sú að leggja sem mesta og besta rækt við uþþeldi og menntun. Ófarir okkar að undanförnu stafa af því að við höfum vanrækt uppeldi og menntun bæði okkarsjálfra og barna okkar. Hegðun okkar (slendinga og einkum þeirra sem ráðið hafa för hefur einkennst af brengluðu gildismati og skertu veruleikaskyni. Áfallið sem við höfum orðið fyrir á að vekja okkur til vitundar um það sem mestu skiptir í tilverunni: Þroski okkar sjálfra, barna okkar og komandi kynslóða," segir Páll Skúlason að lokum. Vissir þú... ...aðASI hefur hafið vinnu við heildarendurskoðun á stefnu ASÍ í málefnum lífeyrissjóðanna. Full- trúar frá öllum 53 aðildarfélögum samtakanna tóku þátt í stefnu- mótunarfundi í ársbyrjun. ...aðASÍ krefst þess að rekstur fyrirtækja sé reistur á ábyrgð og siðferði. Mikilvaegt er að settar verði skýrar reglur um samfélags- lega ábyrgð fyrirtækja og stjórn- enda þeirra. ...að ASÍ krefst almennra og gegnsærra reglna um fjárfestingar útlendinga sem íslendinga. Ekkert pukur í bakherbergjum eða afslátt af skyldum og réttindum. ...að ASI krefst aukins stuðnings við sprotafyrirtæki og aukins fjár til rannsókna og þróunar. ...að ASÍ krefst þess að verkefnum sé forgangsraðað með aukna atvinnu og hag heimilanna ætíð í fyrsta sæti. ...aðASÍ lagði fram ítarlegar tillögur varðandi greiðsluaðlögun þar sem réttur fólksins væri í fyrirrúmi - ekki réttur rukkaranna. ...að ASÍ hefur bent á fjölmarga kosti sem geta skotið fleiri stoðum undir atvinnulífið til lengri tíma litið. Iðnaður og þjónustugreinar s.s. gagnaver, sólarkísil-, koltrefja- og pappírsverksmiðjur. Skipasmíðar, einkarekin sjúkrahús og heilsutengda ferðaþjónustu fyrir útlendinga. VINNAN • 5 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.