Vinnan - 01.05.2010, Page 19

Vinnan - 01.05.2010, Page 19
NÁM ALLA ÆUI Nám fyrir fullorðna einstaklinga á uinnumarkaði Grunnmenntaskólinn Erfyrir þá sem hafa stutta skólagöngu ad baki og vilja styrkja stöðu sína í almennum greinum. Félagsliðabrú og Leikskólabrú Námsleiðir fyrir þá sem starfa við umönnun al- draðra, sjúklinga eða vinna á barnaheimilum. Aftur í nám Er fyrir fólk sem á við lestrarörðugleika eða lesblindu að stríða. Þjónustuliðanám Er ætlað starfsfólki sem vinnur við ræstingar eða í býtibúrum. Öryggisvarðanám Öryggisvarðanám er fyrir starfandi öryggisverði. Fagnámskeið Eru annars vegar fyrir starfsmenn á leikskólum og hins vegar fyrir starfsmenn sem vinna við umönnun og aðhlynningu. Landnemaskólinn Erfyrirfólk af erlendum uppruna sem hefur náð nokkru valdi á íslensku. Vöruflutningaskólinn Er fyrir starfsmenn sem annast flutninga og geymslu varnings. Jarðlagnatækni Er ætluð þeim sem vinna við nýlagnir, endur- bætur, viðhald og viðgerðir rafstrengja, vatns- lagna, hitalagna, fjarskiptaiagna og fráveitna í jörð. Færni í ferðaþjónustu Er fyrir þá sem starfa við ferðaþjónustu eða stefna að starfi í atvinnugreininni. Námið er ætlað 20 ára og eldri. Framhaldsnám leikskólaliða Er ætlað þeim sem lokið hafa leikskólaliðanámi og vilja fræðast meira um börn með sérþarfir. Almennar námsgreinar á framhaldsskólastigi Stærðfræði, íslenska, enska og danska. Námskrá er á framhaldsskólastigi en kennsluaðferðir og námsskrá miðast við þarfir og þroska fullorðinna einstaklinga. Mímir-símenntun leggur áherslu á: _ m _ • að námið sé sniðið að þörfum og getu fullorðinna einstaklinga • að hægt sé að stunda námið með vinnu • að námið sé hagnýtt og í takt við þarfir atvinnulífs og nemenda Nánari upplýsingar um þessar námsleiðir og fleiri eru veittar í síma 580-1800 og á heimasíðu Mímis- símenntunar, www. mimir.is Kennt er eftir námskrám Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og námið má meta til eininga á framhaldsskólastigi.

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.