Stefnir - 01.11.1960, Page 5

Stefnir - 01.11.1960, Page 5
um 8 verkfræðingum. f Hollandi eru 8 iðfræð- ingar fyrir hvern verkfræðing. Skólakerfi landsins er mjög í ósamræmi við raunverulegar þarfir íslenzkra atvinnuvega. Framhaldsskólakerfið er við það eitt miðað, að uppgötva afburðanámsmenn með það fyrir aug- um að troða í þá bóklegum vísdómi í mennta- og háskólum. [ fáum orðum sagt — skólakerfið er byggt upp í {)águ æðri menntunar, sem er í sjálfu sér æskilegt markmið, en getur farið út í öfgar, svo sem hér á sér stað. Hin almenna menntun er góð að ákveðnu marki, en nauðsym legt er, við nútíma atvinnuhætti, að hún beini unglingunum inn á ákveðnar sérbrautir, sein hafa hagnýta þýðingu. Miðað við uppbyggingu atvinnulífsins og þær takmarkanir, sem það setur sjálft um stöðuval er freistandi að láta sér koma til hugar að æskilegt væri að koma því þannig fyrir, að ákveðinn hluti af námstíma færi í verklega vinnu t.d. í hraðfrystihúsum, iðnfyrir- tækjum, á bátum og togurum og við landbúnað- arstörf. Það er álit margra, að að ósekju mætti stytta hið bóklega nám, og fækka kennurum. Við það sköpuðust möguleikar á því að bæta kjör þeirra kennara, sem eftir yrðu við kennslu- störf, og námsleiði langskólagenginna unglinga minnkaði. Hlutverk prestanna. Oft er rætt um, að prestar gegni veigaminna hlutverki með þjóðinni en fyrrum, og að áhrif þeirra til hins betra séu óveruleg og stéttin þarf- lítil. Hið neikvæða álit á prestastéttinni hefui náð slíkri útbreiðslu með þjóðinni, að jafnvel suniir prestar eru sjálfir farnir að trúa á þýð- ingarleysi embættisins. Kemur það m.a. fram í því, að ýmsir hinna yngri presta afsaka opinherlega í blöðum getu- og hæfileikaleysi sitt eða hugmyndafátækt, með því að illa sé búið að þeim hvað híbýli snertir. Segjast þessir ungu kennimenn þurfa aka óra- leiðir til að sinna brauðum sínum, t.d. frá Reykjavík austur um sveitir. Telja þeir sig varla komast í snertingu við sóknarbörn sín milli þess sem þeir messa, á sunnudögum og sitji síðan aðgerðarlitlir í höfuðborginni. Til lítils er prestsmenntunin, ef engin fórnfýsi fylgir hinu göfuga starfi, og léttvæg sú afsökun. að híbýlaskortur standi í vegi fyrir eðlilegri starfsútrás þessara þjóna Drottins. Fagurt fordæmi öðrum prestum, sérstaklega hinum yngri, gefur ungur prestur, er býr í ná- grenni Reykjavíkur, séra Bragi Friðriksson. — Hann hefur með ötulleik, vinnu og ósérhlífni komið á fót tómstundaiðju fyrir unglinga i Reykjavík. Eru aðeins nokkur ár síðan hann hóf þessa starfsemi á vegum Reykjavíkurbæjar. Hefur hún borið ríkulegan ávöxt, og taka ár- lega nokkur þúsund unglinga þátt í hinni fjöl- breyttu og þroskandi tómstundaiðju. En séra Bragi lætur eigi staðar numið, þar sem starfi hans lýkur hjá Reykjavíkurbæ, heldur vinnur hann í tómstundum sínum við að leiðbeina oa aðstoða unglinga þess hverfis, sem hann býr í við íþróttir og aðra leiki. Starf hans og hugsun gengur út á að styrkja og örva unglingana til dáða, auka manndóm þeirra. Það er í slíku verki, nánum tengslum við fólkið sjálft, utan embættisverka, sem starf prestanna hlýtur að vera fólgið. Sem sannir þjónar kristninnar hljóta þeir að vinna í kyrr- þey og ekki sækjast eftir veraldarauði, né blanda sér inn í stjórnmáladeilur og þras. Hlutverk prestanna er mikið, ef þeir finna köllun sína og starfa í samræmi við breytta þjóðfélagshætíi, sem krefjast nýrra starfshátta í útbreiðslu hins góða úr kristindómnum. Islenzkur æskulýður, störf hans og vandamál, hlýtur að vera girnilegt viðfangsefni fyrir verðandi andlega leiðtoga. UtgerSin og fjárfesting. Mörgum verður nú tíðrætt um vandamál út- STEFNIR 3

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.