Stefnir - 01.11.1960, Blaðsíða 13
yggi Evrópu 1954, og 1956 samþykkir æðstaráð
Sovét-ríkjanna áskorun um bann við atómvopn-
um. í Stokkhólmi stofna Rússar til friðarhreyf-
ingar og hleypa af stokkum alþjóðlegri undir-
skriftarsöfnum til smölunar á meðreiðarliði
sínu.
I sama mund halda þeir áfram landvinninga-
pólitík sinni. Fyrsta fórnarlambið er Norður-
Kórea. Síðar kemur röðin að Indó-Kína, og
loks er ráðizt inn í Tíbet og háð gereyðingar-
stríð gegn þeirri fátæku, en frjálshuga þjóð. —
Friðarsinnar gerast og herskáir í tali. — Tékk-
neski rithöfundurinn Frantisek Kubka segir í
útvarpinu í Prag árið 1951: „Við munum berja
stríðsæsingamennina til dauða með friðnum!“
Og 'þegar Búlgarinn Kizil undirskrifar Stokk-
hólms-ávarpið, gerir hann þessa grein fyrir
undirskrift sinni:
„Það verður að berjast fyrir friðnum, ég und-
irskrifa þetta sökum þess, að ég er ekki aðeins
friðarsinni, heldur vopnaður friðarhermaður.“
En það má ekki spenna bogann of hátt, og
það getur líka verið hagkvæmt að breyta til um
starfsaðferðir.
Stalin er fallinn frá. Hið sögulega 20. flokks-
þing kommúnista er haldið, og Nikita Krustjoff
gerir í orði kveðnu upp sakirnar við Stalin-
ismann. Hann ásakar Stalin fyrir eftirtalda
glæpi:
1. Fjöldamorð saklausra borgara á árunum
1936—’38.
2. Morð barna í flokkshreinsununum.
3. Morð bæði Jagodas og Jeschows, yfirmanna
leynilögreglunnar.
4. Morð á Kírof formanni flokksins í Lenin-
grad.
5. Þvingun Ordsohonikids ráðherra til sjálfs-
morðs.
6. Aftöku Wosnessensky áætlunarstjóra ríkis-
ins án dóms og laga.
„Við vöxum upp undir íána Lenins or
Stalins.“ Áróðursspjald um bamauppeldi
í Sovétríkjunum í kringum 1930.
7. Líflát þriggja fjórðu liluta þátttakenda í
17. flokksþinginu árið 1934.
8. Aftöku 5000 beztu liðsforingja rauða hers-
ins í sambandi við Tchuarschewskij-réttar-
höldin árið 1937.
9. Flótta frá Moskvu í stríðinu af ótta við
Þjóðverja.
10. Að takast á hendur æðstu herstjórn Rússa í
ófriðnum, verandi svo fáfróður, að hann
varð að fylgjast með gangi ófriðarins á
skólalandabréfi, sökum skorts á kunnáttu í
meðferð hernaðarlandabréfa.
11. Að hafa verið haldinn slíku stórmennsku
brjálæði, að hann hafi látið gera fjölda
líkneskja af sjálfum sér í garði sínum til
eigins augnayndis.
12. Að lítillækka og auðvirða sjálfan Krúsjoff
með því að láta 'hann dansa ukrainska dans-
inn „gopak“ fyrir erlendum gestum.
Margar eru þær ávirðingarnar Stalins, en þó
misþungar.
STEFNIR 11