Stefnir - 01.11.1960, Side 15

Stefnir - 01.11.1960, Side 15
Gíldi 'þessa menningarvopns var Stalin inanna bezt ljóst. Þegar hann var einu sinni spurður þess af Ameríkumanni, 'hvers vegna hann sendi ekki Bolshoi ballettinn til Bandaríkjanna, eins og ráðgert hafði verið, svaraði hann, að gjarnan hefði hann kosið að gera það, en það hefði verið árekstrar á landamærum Manschuríu, og þess vegna hefði hann þarfnazt balletsins þar. Hann leit á Bolshoi ballettinn sem vopn í ófriði. Oflugastur er þó ef tii vill áróður Rússa í efnahagsmálum. — Allt tal Sovét-ríkjanna snýst um velmegun, sem verður í framkvæmdinni fá- tæktin ein. Það er alls staðar sama sagan. Eftir að herskarar þeirra hafa lagt land undir sig, gleipir þessi ófreskja allt, sem til næst. Þeir rýja bændabýlin og tæma verksmiðjurnar, ræna einkaeignum jafnt sem eigum ríkisins og um- turna gervöllu efnahagslífinu. Á einni nóttu eru allir hnepptir í þrældóm. Þeir veita aðeins þeim atvinnu, sem vilja samvinnu við þá. Þannig verða þeir, sem vinnu hljóta, verkfæri kerfis- ins. — Er Krjúsjoff fullyrti í ræðu, að lífskjörin hefðu batnað í Rússlandi, varð einum þarlend- um verkamanni að orði: „Nú hafa lífskjörin batnað, við verðum allir jarðaðir í líkkistum.“ Hér hefur heimsvaldastefna Rússa verið rakin í fáum dráttum. Á síðustu fjórum áratuguin hafa þeir í nafni friðar og frelsis hneppt þjóð eftir þjóð í fjötra og ánauð, á sama tíma og lýðræðisþjóðirnar hafa gefið um 80% nýlendu- þjóðanna frelsi og um þrír tugir nýrra frjálsra ríkja hafa verið stofnsett. En spurningin, sem brýnasta nauðsyn ber samt til að svara, er þessi: Hvað geta lýðræðisþjóðirnar gert til þess að hindra áframhaldandi útþenslu og valdarán heims-kommúnismans ? Stalín segir í bók sinni um Leninismann: „Hvers vegna ættu öreigarnir ekki að hagnýta sér hagstæðar alþjóðlegar og innri aðstæður til þess að kljúfa auðvaldsblökkína og braða þró- • • Qíí uninni: Þetta er kjarni málsins. Alger samstaða lýð- ræðisþjóðanna á alþjóðavettvangi er þeim lífs- nauðsyn. Hindra verður með öllu móti, að kommúnistum takist að kljúfa þessa blökk og rjúfa þannig skjaldborg frelsisins. Til þess að sjá við bellibrögðum kommúnista er Iýðræðis- þjóðunum þrennt nauðsyn öðru fremur: 1. Að kynna sér eðli kommúnismans, hug- myndakerfi hans, vinnubrögð hans og starfs- aðferðir. 2. Sameina allar frjálsar þjóðir í afstöðunni til kommúnismans og tryggja nægilegt hern- aðarlegt bolmagn þeirra samtaka. 3. Að móta sameiginlega jákvæða stefnu varð- andi framtíð mannkynsins. Rithöfundurinn Stephen Spender, sem eitt sinn var kommúnisti, hefur í bókinni „Guðinn, sem brást“ bent sérstaklega á eitt þessara atriða. Hann segir: „Þjóðir þær í heiminum, sem frelsinu unna, taki forustu alheimshreyfingar, sem vinni að bættum kjörum þeirra milljóna manna, er hirða meira um brauð en frelsi, — lyfti þeim á til- verustig, þar sem þær geta farið að hugsa um frelsið, hagsmunir þeirra mjög fáu manna í heiminum, er meta gæði frelsisins, verða að vera hinir sömu og hagsmunir hinna mörgu, sem þarfnast brauðs, eða frelsið glatast.“ Sá lífsreyndi maður, Milovan Djilas, lýkur bók sinni „Hinni nýju stétt‘ með eftirfarandi orðum: „Hvað sem öðru líður, mun heimurinn breyt- ast og þróast í þá stefnu, sem hann hefur þegar tekið og verður að halda, — í átt til meiri ein- ingar, framfara og frelsis. Veruleikinn, lífið sjálft, hefur ávallt mátt sín meira en nokkurt of- beldi og haft meira raunverulegt gildi en nokk- ur kennisetning.“ —- Með þessum orðum vil ég ljúka máli mínu. STEFNIR 13

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.