Stefnir - 01.11.1960, Qupperneq 16

Stefnir - 01.11.1960, Qupperneq 16
JÓN KRISTVIN MARGEIRSSON: KARL MIKLI (742-814) Dr. Konráð Adenauer, kanzlari Vestur-Þýzka- lands, fékk fyrir nokkrum árum verðlaun, sem kennd eru við Karl mikla, fyrir störf sín í þágu sameiningar Evrópu. Þessi álfa er sem sé, eins og allir vita mætavel, samsett af mörgum ríkj- um, og þeim hefur oft og einatt komið afar illa saman. Ósamlyndið hefur margsinnis leitt af sér miklar hörmungar og kostað margt tárið og margan blóðdropann. En svona hefur þetta samt verið um aldaraðir. Til að bæta úr þessu hefur mönnum dottið í hug að sameina Evrópu — vel að merkja með góðu — og verðlaunin, sem fyrr voru nefnd, eiga að hjálpa til þess. En hvers vegna var talin ástæða til að' kenna þau við Karl mikla? Á hvern hátt er þetta mikilmenni tengt viðleitninni til að sameina Evrópu? Svarið er að finna í fortíð álfu vorrar. Hér eins og ann- ars staðar veitist oss erfitt að skilja nútímann, nema vér höfum einhverja vitneskju um það, sem gerzt hefur á liðnum öldum, þekkjum eitt- hvað til sögu þeirra þjóða, sem hafa haft varan- 1-egust áhrif á sögu mannkynsins. Meðal slíkra þjóða voru Rómverjar. Þeir komu á fót einu mesta ríki, sem uppi hefur verið. — Það náði yfir mestan hluta þeirra landa, sem þá gátu talizt í hópi menningarlanda. En eins og önnur ríki var þetta riki fallvallt. í ölduróti þjóð- flutninganna miklu liðaðist það í sundur, þó einungis vesturhlutinn. Austurhlutinn stóð 'enn sem sjálfstætt ríki í þúsund ár í vesturhlutanum þurftu rústirnar tíma til að jafna sig, en að hæfi- legum hvíldartíma liðnum tók að spíra í þeim á ný. Ný menning óx þar smám saman upp. Ný menningarheild og nýtt menningarhugtak varð til: Evrópa. Stofninn í þessari nýju menningar- eind var Frankaríkið. Þetta ríki reis á legg á upplausnardögum Rómaveldis nyrzt í Gallíu, en svo nefndist í forniild Frakkland og Þýzka- land vestan Rínar. Stofnendur þess voru ger- manskur þjóðflokkur, Frankar. Hið nýja ríki var kraftmikið og teygði sig brátt yfir alla Gallíu og vestur yfir Rín. Konungar þess voru í fyrstu dugandi menn, en úrkynjuðust fljótt, og öll völd í ríkinu lentu brátt í höndum eins embætt- ismanns konungs, sem á þeirra tíma tungu, latín- unni, nefndist major domus. Yar það nokkurs konar ráðsmaður, sem upprunalega hafði haft á hendi Iþað starf að birgja konungsóðulin upp að' vistum. Það hafði háð Frankaríkinu mjög, að við dauða konungs var ríki hans ætíð skipt milli allra sona hans. Þessi siður byggðist á því, að konungarnir litu á ríki sitt sem persónulega eign sína, sem þeir gætu ráðstafað að vild. Leiddi af þessu sundrung og innanlandsófrið. Laust fyrir miðja áttundu öld var Pípin skammi ráðsmaður í Frankaríki. Elm þær mundir var konungur þess Kilderik III. Var hann valda- laus með öllu en Pípin allsráðandi. Pípin þótti nu mál til komið að láta hlutina heita réttum nöfn- um. Með samþykki páfa svipti hann Kilderik konungstigninni, lét krúnuraka hann og sendi hann í klaustur, en gaf sjálfum sér konungsnafn. 14 STF.FNIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Stefnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.