Stefnir - 01.11.1960, Side 27

Stefnir - 01.11.1960, Side 27
þér fannst sjálfsagt að ala undan þessu hirnpi- gimpi. Það heyrðist suð í könnunni og hann teygói sig uppí skáp eftir bolla. Viltu ekki tíu dropa að hressa þig á? spurði hann. Eg ætti nú að sýna af mér mannsbrag og hita almennilegt kaffi handa þér, sagði hún og ætl- aði að rísa á fætur, Þetta er skolp frá í morgun. Nei, ég þarf að koma mér beim strax og ég er búinn að slægja þessar títlur handa þér, sagði hann. Já, blessaður drengurinn minn, og ég ekki farin að 'þakka fyrir mig. Alltaf ertu jafn hugul- samur að gleyma ekki gamla hróinu. Ætli sé nú ekki óþarfi að þakka fyrir sig, drundi í honum. Sumir voru nú ekki vanir að þakka alltaf fyrir sig. 0, það var svo lítið sem ég gat gert fyrir hann drenginn. Já, það er ósköp lítið að valsa um ókeypis í útlöndum í heil þrjú ár, sagði hann og renndi í bollann. Við hin fengum að reyna á hendurnar. Þú manst nú að kennarinn sagði það væri synd ef hann fengi ekki að læra, hann væri svo músík-elskur, sagði gamla konan. Eg veit ekki afhverju þeir eiga betra skilið sem væla á fiðlu en hinir sem draga fisk úr sjó. Ég hélt það væri nú undirstaða lífsins. Hann er nú einu sinni dáinn, sagði gamla konan, og ég reyndi að vera ykkur öllum góð. Hann gramsaði ofaní skúffu til að finna búr- hnífinn, það glamraði í hnífapörum unz hann hélt hnífnum á lofti og skellti aftur skúffunni all harkalega. Síðan greip hann annan fiskinn og brá hnífnum. Já, hann er nú einu sinni dáinn, sagði hann og var orðinn örari, það er nú eitt: hvaða vit er í því að láta kosla sig í útlöndum tilað gaula á fiðlu og hafa rós í hnappagatinu og steik uppá hvern dag og hrökkva svo upp af þegar maður kemur heim? Ég hef aldrei vitað annað eins. Hún hafði lotið höfði og nú tók hann eftir því að herðarnar voru farnar að hristast en það heyrðist ekkert í henni. Hann hélt andartak ú slorugum hnífnum og horfði á þessar mjóu lotnu herðar titra ánþess hún gæfi frá sér minnsta hljóð; ekki einu sinni snörl. Hann lagði frá sér hnífinn reif innanúr fiskinum í einum rykk og hnykkti slorinu í vaskinn, lét síðan vatn buna inní fiakandi kviðinn á fiskinum. Svona svona gamfa mín, ég meina ekkert með þessu, sagði hann, ég hefði hvort sem er aldrei gert annað en fara á sjóinn. Þó svo ég hefði átt kost á að vera í útlöndum með rós í hnappa- gatinu. Ég þekki mig á sjónum. Hvergi annars staðar. En þú varst ekki vön að sýta þá svo aðr- ir sæju. Ég man ekki beturen þú hafir séð þá fara fjóra og allt voru það þínir eigin strákar. Engir vafagemlingar sem var skotið inná eld- húsgólf til þín. Þú horfðir á eftir þeim öllum fjórum og þegar sá síðasti fór man ég ekki beturen þú segðir: Þeir verða að missa sem eiga. Ég sá þið aldrei brynna músum. Hún strauk hárlufsu aftur frá enninu og horfði sljóum augum útum gluggann. Ég sá þá fara fjóra drengina mína. Það er mikið rétt, sagði hún, hrausta stráka í fullu fjöri. Nei, ég vissi maður gerði bara sjálfum sér meiri sorg með því að sakna þeirra allt lífið. Ég vissi líka ég myndi sjá þá alla aftur, hitta þá hinumegin. Guð gleymir ekki sínum. Eftir því sem þynntist hópurinn okkar hérnamegin, yrðu þeir fleiri tilað taka á móti mér þegar yfrum kæmi. Er þá ekki allt klárt? spurði hann og tók til við seinni fiskinn. Þú ert þó ekki hrædd um að Nikki fari ekki á réttan stað? Gamla konan hrökk við einsog hún hefði íengið kinnhest. I fyrsta sinn leit hún upp á son sinn og bærði varirnar lengi áðuren orðin komu: STEFNIR 25

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.