Stefnir - 01.11.1960, Blaðsíða 30

Stefnir - 01.11.1960, Blaðsíða 30
Það rumdi lítillega í prestinum og hann fékk sér hálstöflur á ný og spennti greipar ofaná blöðunum sem höfðu að geyma upplýsingar um hinn dána tónlistarsnilling. Hann var fjarska heimspekilegur á svipinn og skotraði augnum uppundir loft. Já, svona getur nú lífið verið órannsakanlegt, sagði hann loks með töluverðum þunga. Nú — og svo hafið þér tekið að yður þetta saklausa barn. Gamla konan þurrkaði sér um augun. Ekki fleygir maður hvítvoðungi útá götu, sagði hún, ég reyndi að ala önn fyrir blessuðum ung- anum. Bæjaryfirvöldunum bar náttúrulega skylda tilað skerast í málið, sagði presturinn og sópaði burt fisi, sem sezt hafði á gljáfægt skrifborðið. Ég hélt nú lengi vel að móðirin mundi vitja um barnið, sagði gamla konan, og reyndi að hugsa um það einsog ég gat. Ég frétti af henni 'hér og þar á landinu en hún kom aldrei að sækja drenginn. Ég vissi af henni oft í bænum og stundum var ég að hugsa um að gera henni orð. En einhvernveginn lét ég aldrei verða af því. Hún þagnaði enn og stundi sáran. Hún var óvön löngum ræðuhöldum og hafði tekið nærri sér að rifja upp þessa gömlu atburði. Presturinn hummaði í gegnum nefið og fletti blöðunum fyrir framan sig. Það verður ekki annað sagt en þér hafið búið drenginn sómasamlega úr garði, s agði hann, mér skilst hann hafi hlotið dýra menntun er- lendis — ekki satt. Ég geri ekki ráð fyrir að efnin hafi verið alltof mikil — synir yðar allir hlutu enga skólamenntun. Gamla konan horfði niðurfyrir sig. Kennarinn sagði nú hann væri svo músík- elskur að það væri synd hann fengi ekki að læra, sagði hún lágum rómi. Og mér fannst alllaf ég yrði að gera honum eitthvað golt — úr því ég lét hann kyrran á eldhúsgólfinu hjá mér. Ég var alltaf dálítið hrædd um hann, en ég vanrækti ekki mín eigin börn. Ég held engin þurfi að kvarta. Presturinn skrifaði eitthvað hjá sér á blöðin, hann var annarshugar og heyrði ekki til hennar. Og ég hélt að Guð lofaði mér að hafa hanri, þó hann tæki hina, sagði hún, en ég veit þó ég fæ að sjá hann aftur. Við sjáumst aftur. Það er eina huggunin mín að nú fer að styttast fykir mér. Og þá sjáumst við aftur, ég og Nicolai. Nú reis presturinn á fætur og það skarkaði í stólnum þegar hann ýtti honum frá sér. Já, það verða engin vandræði með þetta, sagði hann, ungur tónsnillingur í blóma lífsins, átti enn óhreyfða beztu strengina á hörpunni sinni. Já, það verður margt fallegt hægt að segja. Við þurfum engu að kvíða. Hún stóð líka upp, sveipaði að sér sjalinu og gekk fram að dyrurn. Hún tók þétt og hlýlega í höndina á prestinum og þakkaði fyrir sig. Á tröppunum sneri hún sér snögglega við og vind- urinn stóð í grátt hárið. Segið mér annars, þér eruð lærður maður. Hvaða mál er þetta revúar? Það er franska, sagði presturinn og var far- inn að skjálfa þarsem hann stóð á vestinu, það er franska og þýðir: sjáumst aftur. Gamla konan þagði andartak. Sjáumst aftur, endurtók hún, sjáumst aftur. Og samt sá hún hann aldrei framar. Svo var hún horfin út í myrkrið og prestur- inn lét aftur. Hún hafði ekki búizt við mörgum að jarðar- förinni og þessvegna varð hún hissa þegar hún varð að olnboga sig gegnum þröngina og til- viljun að hún fékk sæti á fremsta bekk. Hún fór að hugsa um það að hún hafði ekki gert nein- ar ráðstafanir til að fólk fengi kaffi á eftir og gat ekki varist því mitt í sorginni að skammast dálítið fyrir það. En er á leið athöfnina viku slíkar hugrenn- 28 STEFNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.