Stefnir - 01.11.1960, Síða 32

Stefnir - 01.11.1960, Síða 32
JÓN P. RAGNARSSON : Hngleiðingar urn þjóðerni og þjóðernisvitund Það leikur ekki á tveim tungum, að þjóðernis- hreyfing sú, sem reis ujip meðal flest allra þjóða álfunnar á nítjándu öld, var eitt af sterkustu hreyfiöflum, sem um getur í evrópskum stjórn- málum allt til loka fyrri heimsstyrjaldar. Jókst hreyfingin stöðugt að krafti og útbreiðslu og náði hámarki í hugsjóninni um þjóðríki. Krai'- izt var, að sérhvert þjóðerni myndaði ríki — sitt eigið ríki — og það hefði að þegnum alla menn sama þjóðernis. Upphaf fyrri heimsstyrjaldar má að töluverðu leyti rekja til ófullnægjandi lausnar þjóðernis- vandamála álfunnar — einkum í Mið-Evrópu. Styrjöldin leiddi samt sem áður til þess, sér- staklega eftir þátttöku Bandaríkjanna og bylt- inguna í Rússlandi, að önnur öfl af alþjóðleg- um og þjóðfélagslegum toga spunnin, fóru í stöðugt ríkari mæ'li að láta kveða að sér og sár- asti broddur þjóðernishugsjónarinnar tók jafn- framt að sljóvgast. Þjóðir Evrójtu gátu að vissu marki aftur farið að sætta sig við hin gömhi jþjóðaríki, svo fremi, sem stjórnmálalegu jafn- rétti einstaklinga hinna ýmsu þjóða og menning- arlegu jafnræði þeirra væri til að dreifa. Að vísu gat sá aukni skilningur á alþjóðlegri sam- vinnu, sem gerði vart við sig eftir fyrri heims- styrjöldina, þó ekki komið í veg fyrir, að þjóð- ernisstefnan í sinni neikvæðustu mynd, næði um tíma tökum á meiri hluta Mið-Evrópu og hleypti að lokum öflu í bál og brand. Aður en nánar verður farið út í einstök atriði efnisins er rétt að gera grein fyrir, hvað ætlast er fyrir. Fyrst verður reynt að skýra orð- in þjóðerni og þjóðernisvitund. Því næst verður aðdragandi þjóðernishugsjónarinnar að nokkru rakinn. Að lokum verður upphaf stefnunnar á Islandi lýst í höfuðdráttum. Þjóðerni og þar með J)jóðernisvitund eru marg- ræð og umdeild hugtök. Fullkomin skilgreining þessara orða ver.ður vart veitt, svo framarlega sem hinn margþætti sögulegi raunveruleiki er hafður í huga. Að vísu hafa margir sagnfræðing- ar og þjóðfélagsfræðingar, einkum hinir eldri meðal Þjóðverja, reynt að finna nákvæma og einhlíta skilgreiningu á hugtökum þessum, en auðvitað ekki tekizt enn. Orðin nation — þjóð - er dregið af latneska oröinu nasci — verða fædd- ur. Þar með er gefin viss bending um ákveðinn u])pruna. Sú staðreynd, að frá upphafi skyldu tvö orð vera notuð til skiptis um svipað hugtak, gerir nánari skilgreiningu ennþá örðugri. Róm- verjar notuðu að vísu orðin fólk (populus) og þjóð (natio) á ákveðinn hátt. Hjá öðrum þjóðum síðar meir, t.d. Englendingum, Frökkurn, Þjóðverjum og Norðurlandamönnum voru lín- urnar milli þjóðar (nation) og fólks (people, peuple, Volk, fo<lk) ekki eins skýrar og jafnvel mismunandi. 1 flestum tilifellum hefur fólk ekki haft jafn eðlan blæ á sér, látið minna yfir sér og verið að öllu jöfnu meira háð umhverfinu. Á 14. öld fór nation yfirleitt að merkja þá, 30 STEFNIR

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.