Stefnir - 01.11.1960, Síða 44

Stefnir - 01.11.1960, Síða 44
guösdýrkunin, án tillits til þess, hvort um var að ræða guðsdýrkun í heiðnum eða kristnum sið. Form er menning. ()11 siðmenning birtist í gæzlu ákveðinna forma. Siðleysið er formlaust. Jafnt í skáldskap sem í lífinu sjálfu er það ekki gott að nota formið formsins vegna. Það er með formið eins og eldinn, það er ágætur þjónn en varasamur húsbóndi. í nútímastjórnmálum íslands eru einkenni, sem um lagalega skarpskyggni minna á þau brögð, er Njáll kenndi Gunnari, svo að hann gæti náð fénu af Hrúti.* Stjórnmálastefna íslands hefur hingað til gengið í þá átt, sem mjög eðlileg verður að teljast, að krefjast sjálfstæðis eyjunni til handa. Danmörk hefur allt of lengi verið andstæð hinum sjálfsögðu kröfum og óskum ykkar. Það hefur kostað baráttu að sigrast á venjubundnum kredd- um hér sem alls staðar annars staðar, og þó hefur baráttan ef til vill verið harðari hér, því að hið danska stærilæti er lífsseigt. Þótti íslend- inga er heldur ekki alltaf þægilegur. Ég vonast til, að þið fáið fljótlega síðustu kröfur ykkar uppfylltar, svo að við getum í sam- einingu farið að fást við frjósöm störf. Á seinustu árum hefur í æ ríkari mæli orðið vart þeirrar tilhneigingar hjá hinum norrænu þjóðum, að einangra sig hver frá annarri. En við megum ekki gleyma því, að í augum Evrópu eru hinar norrænu þjóðir ekki til hver í sínu lagi. I augum Evrópu erum við aðeins til sem Norðurlandaþjóðirnar, og þykjum nógu smáar sem slíkar. Til allrar hamingju eiga ísland og Danmörk * Sjá Brennu-Njáls sögu útg. Hið íslenzka fornrita- félag, bls. 58—68 (býð.). margt sameiginlegt, bæði í andlegum og stjórn- málalegum efnum. Ekkert sameinar fólk eins mikið og vitneskjan um að hafa þolað saman súrt og sætt, og sameiginlegur vilji til stórátaka í náinni framtíð. Þann vilja skulu báðar þjóðirnar gera að veruleika og láta hann ná fram að ganga. Það er betra en að þið missið æsku ykkar til Kanada og við okkar til Bandaríkjanna. Við skulum sameiginlega takast á við vanda- málin og standa þéttar saman. Við skulum blanda blóði, eins og fóstbræður gerðu fyrr á öldum, •—• og auk þess á annan hátt. Þegar danskt og íslenzkt blóð blandast saman, verður árangurinn góður. Thorvaldsen er dæmi um slíka kynblöndun, sömuleiðis Finsen. ísland verður að komast úr þeirri einangrun, sem það hefur verið í. Næst þegar Evrópuland býður heim þjóðþingum Norðurlanda, munu menn ekki þora að láta Island vanta. Hið auðuga menningarlíf á eyjunni til forna, var að minnstum hluta heimatilbúið. Það varð til vegna mikilla samskipta við önnur lönd. Á þann hátt mun verða ný vakning, bæði í and- legum og veraldlegum efnum. Bóklega iðju, sem svo lengi var stolt íslands, þarf ekki að vanrækja. En ungir menn verða nú að helga krafta sína atvinnuvegum nútímans, verzlun og iðnaði. Þá þurfa menn á Islandi ekki lengur að horfa fram í ókomna framtíð, til að sjá framkvæmdir hefjast. Þá mun tíminn verða verðmæti á íslandi. Að lokum nær ísland samtíð sinni, já og kemst fram úr henni. ísland framtíðarinnar mun standa íslandi for- tíðarinnar langtum framar. 42 STEFNIR

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.