Stefnir - 01.11.1960, Side 49

Stefnir - 01.11.1960, Side 49
fótinn og dró hann með jörðinni unz hann stanz- aði hjólið snögglega. Hann lagði hjólið hrana- lega frá sér og hljóp til baka. Ekkjan gat ekki horft á. Hún dró svuntuna upp fyrir höfuð. „Hann hefur drepið ungahænuna mína!“ sagði hún. „Hann hefur drepið hana!“ og hún lét svuntuna falla og tók á rás upp hæðina. Gamli maðurinn skyrpti út úr sér stráinu, sem hann hafði verið að tyggja, og hljóp á eftir konunni. „Drapstu hana?“ hrópaði ekkjan, og þegar hún kom nógu nærri til að sjá blóðið og fjaðrirn- irnar hóf hún upp arminn og kreppti hnefann svo hnúarnir hvítnuðu. Packy var hálfboginn yfir hræi fuglsins og nú skaut hann upp öxlun- um eins og til að verjast höggi. Á fótum hans voru blóðslettur og brúnar og hvítar fjaðrir af dauðu hænunni voru á fötum hans og höndum og dreifðar yfir veginn. Sumar stuttu nærfjaðr- irnar svifu enn í rykugu loftinu. „Ég gat ekki gert að þessu, mamma. Ég gat ekki gert að þessu. Ég sá hana ekki fyrr en um seinan!“ Ekkjan tók hænuna upp og athugaði hana i krók og kring. Hún hélt í bringubeinið og lét langan hálsinn lafa. Svo tók hún allt í einu i annan fót hænunnar, lyfti henni upp fyrir höfuð og barði drenginn í bakið með blóðugum skrokknum hvað eftir annað. Blóðið sprautaðist í andlit hans og hendur, yfir fötin hans og Ijóst rykið á veginum umhverfis hann. „Hvernig dirfustu að ljúga að mér!“ æpli hún, andstutt milli högganna. „Þú sást hænuna. Ég veit þú sást hana. Þú stanzaðir og blístraðir! Þú kallaðir! Við fylgdumst með þér. Við sáum til þín.“ Hún sneri sér að gamla manninum. „Er það ekki rétt?“ spurði hún. „Hann sá hæn- una, gerði hann það ekki? Hann sá hana?“ „Mér virtist það,“ sagði gamli maðurinn, hik- andi, og horfði á fuglinn, sem dinglaði í hendi ekkjunnar. „Þarna sérðu!“ sagði ekkjan. Hún henti hæn- unni frá sér á veginn. „Þú sást hænuna fyrir framan þig á veginum eins greinilega og þú sérð hana núna,“ sagði hún ásakandi, „en þú vildir ekki stanza til að bjarga henni því þér lá svo mikið á heim til að fylla magann! Var það ekki þannig?“ „Nei, mamma! Nei! Ég sá hana reyndar, en það var of seint að gera nokkuð.“ „Nú viðurkennir hann að hafa séð hana,“ sagði ekkjan, og sneri sér sigri hrósandi að á- horfendunum, sem höfðu komið er þeir heyrðu hávaðann. „Ég neitaði aldrei að hafa séð hana!“ sagði drengurinn, og beindi máli sínu til áhorfend- anna eins og þeir væru dómarar. „Hann neitar því ekki!“ æpti ekkjan. „Hann stendur hér án þess að' skammast sín, og viður- kennir fyrir öllum heiminum, að hann hafi séð hænuna eins greinilega og nefið á sér, og samt ók hann yfir hana án þess að hugsa sig um!“ „En 'hvað gat ég gert annað?“ sagði dreng- urinn og sló út annarri hendinni; hann beindi máli sínu bæði til áhorfenda og ekkjunnar. „Ef ég hefði stigið á bremsurnar á svona mikilli ferð í brekkunni, hefði ég henzt fram af hjól- inu!“ „Og hvað ætli það hefði svo sem gert þér?“ hrópaði ekkjan. „Ég sá þig oft fara í loftköstum þegar þú varst að fljúgast á við Jimmy Mack, og ég heyrði þig aldrei kvarta eftir á, þó blóð rynni úr hnjám og olnbogum, og andlitið á þér væri skrapað eins og rist!“ Hún sneri sér að fólkinu. „Það er eins satt og Guð er yfir mér. Hann kom stundum inn með fossandi blóðnasir og glóðarauga. Hendurnar á mér voru oft stirð- ar í viku þegar ég hafði verið að útbúa plástra á hann til að koma andlitinu í rétt horf aftur.“ Hún sneri sér aftur að Packy. „Þú ert ekki hræddur í trjám, er það? Þú ert ekki hræddur við að klifra upp á þak á eftir ketti, eða hvað? STEFNIR 47

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.