Blik - 01.05.1961, Side 73
B L I K
71
Gjafir
færðar
skólanum
Silfurbrama.
Þessi fiskur veiddist í net 11.
apríl 1960 suðaustur af Bjarnarey
á 125 metra dýpi. Hann veiddist á
Von 2 Ve 113.
Við rannsókn náttúrufræðinga
kom í ljós, að fiskur þessi er af
Guðlaxaættinni og heitir á norsku
sylvbramsa og dönsku sölvbrasen
og á latínu Pterycombus brama.
Ingimar Óskarsson, náttúrufræðing-
ur, hefur gefið honum nafnið silfur-
brama. Fiskur þessi er 46 cm langur,
25 cm hár og 7,3 cm á þykkt, þar
sem hann er þykkastur, um kjálka-
börðin.
Eftir því sem segir í þýzkri fiski-
fræði munu innan við 20 fiskar
þessarar tegundar hafa fundizt í
Norður-Atlantshafi, svo að sögur
fari af. Bjarni Sæmundsson getur
ekki fisks þessa í bók sinni um fisk-
ana.
Þorgeir Jóelsson, skipstjóri á Von
2, gaf Gagnfræðaskólanum fiskinn,
og hefur skólinn látið setja hann
upp, svo sem myndin sýnir.
Við þökkum skipstjóranum vel-
vildina og hugulsemina.
Svarthveðnir. Svo heitir fiskur,
dökkur á lit. Hann er í eigu Gagn-
fræðaskólans Hann veiddist í net
hér við Eyjar 2. maí 1959 á v/b
Jötni. Skipstjóri var Ragnar Eyj-
ólfsson í Laugardal hér, og kunn-
um við honum beztu þakkir fyrir
gjöfina.
Svarthveðnir er fátíður fiskur
hér við land Sá hinn fyrsti, er sög-
ur fara af, veiddist á þýzkan togara
2. okt. 1948. Alls hafa 5 fiskar þess-
arar tegundar veiðzt áður hér við
land svo kunnugt sé. Sá 5. veiddist
17. júní 1954. Þessi fiskur okkar er
því 6. fiskurinn og sá fyrsti, sem
veiðist í net. Hinir veiddust allir í
botnvörpu-
Svínsungi.
Á s.l. ári færði Eiríkur Sigurðs-
son frá Hruna Gagnfræðaskólanum
svínsunga í formalíni. Þessi gjöf er
ágætt kennslutæki, sem við höfum
mikið gagn af Við þökkum Eiríki
vinsemd þessa og hugulsemi.
Á undanförnum árum hafa nem-
endur skólans gefið honum marga
góða gripi í náttúrugripasafn hans,
svo sem skeljar, kuðunga og m. f.
því líkt. Þær gjafir eru allar ómet-
anlegar og sérstaklega mikilvægar
til fróðleiks um dýralíf í sjónum hér
við Eyjar. Síðar munum við reyna
að safna saman í heild dálitlum
fróðleik um það, sem við, er í skel-
dýrsklúbbnum vinnum, þykjumst
hafa uppgötvað varðandi líf og út-
breiðslu sælindýra hér við Eyjar.
Þ. Þ. V.