Gisp! - 01.12.1992, Page 45

Gisp! - 01.12.1992, Page 45
IÓLF FRANSKIR HÖFUNDAR • nki Bilal, fæddur í Júgóslavíu --- 1951, kom til Frakklands 9 ára aS aldri. Hann lærði að lesa teikni- myndasögur jafnhliða frönskunáminu í skólanum. Fyrstu sögur hans birtust áður en hann varð tvítugur. Ollum sem kynnast honum finnst eitthvað dularfullt og heillandi við hann, hann er eins konar „granítblokk" að sögn handritshöfundar hans, Pierre Christin. Hann hefur áhuga á kvik- myndum, leikhúsi og dansi, hefur lag á að vinna með ólíkasta fólki og auð- gar þannig viðhorf sín til mynda og frásagnar. Drame colonial („Nýlendu- saga"), ein fyrsta sagan sem út kom, bjó strax yfir sérstökum tóni og kunnáttusamlegri myndbyggingu. BILAL „Hann teiknar ekki stigagang nema setja í hann sprungu og svolítið ryð." Patrick Cauvin, handritshöfund- ur myndasögunnar Hors-Jeu („Ur leik") lýsir þannig einu sérkenni Bilals sem teiknara. Myndir hans hafa mjög sterk höfundareinkenni. Það er eins og heimur Bilals sé hið raunverulega efni myndanna, hver sem handrits- höfundurinn eða viðfangsefnið kann að vera, hvort sem hann myndskreytir le Temps des Grandes Solitudes („Ein- verustundir") eða gerir auglýsinga- spjald fyrir kvikmynd Alain Resnais, La Vie est un roman („Lífið er skáld- saga"). Þrjú myndasöfn af ekta gervi- sannsögulegum verkum, og mynda- möppur (þ.á.m. hin goðsagnakennda Die Mauer sem fjallaði um Berlínarmúrinn) hafa hafið Bilal til vegs sem einn öflugasta teiknara samtímans. Arið 1980 kom út La Foire aux Immortels. Það var fyrsta myndasagan sem Bilal gerði upp á eigin spýtur, án handritshöfundar. Þá kom í Ijós að maðurinn, sem allir héldu að væri bara teiknarinn, átti sér sérstakan og persónulegan myndheim. Kímileg og góðhjörtuð hetjan Nikopol myndar mótvægi við umhverfið í víggirtri Paris ársins 2023. Arið 1986 kemur út annað „eins-manns-hefti", La Femme piége („Kvengildran") og hristir á ný upp í mönnum langt út fyrir raðir áhugamanna um teiknimyndasögur. Bilal sleppir talblöðrunum og hljóðlíkingarorðunum, sem eru svo rótgrónar í þessari grein, en kemur þess í stað með rödd sögumannsins neðanmáls. Myndramminn er í cinemascope-formi. Pierre Christin gerði handrit eða texta í átta bókum eftir Bilal. Hann er dyggasti samstarfsmaður hans. Þeir eru þó gerólíkir! Kennarinn við blaða- mannaskólann byrjaði á því að segja við unga vísindasöguteiknarann: „Þetta er ágætlega unnið, en þú horfir ekki nóg á veruleikann!" Hann fer með hann um sveitir Frakklands vegna La Ville qui n'existait pas („Bærinn sem var ekki til"), en Bilal vill ekki sjá neitt annað en borgir. Hann gengur svo langt að kynna hann fyrir frammámönnum í verkalýðsfélagi vegna einnar sögunnar. Bilal segir að fyrir honum hafi áhuginn á vísindaskáldsögum upphaflega stafað af einskonar „ofnæmi fyrir því að sýna heim samtímans." Smám saman blandast ímyndun og veruleiki, og félagarnir tveir sérhæfa sig í sögum með stjórnmálalegu ívafi. Upp úr því spretta tvö meistaraverk: Les Phalanges de l'Ordre Noir („Liðs- menn Svörtu reglunnar") og Partie de Chasse („Skot- félagar"). Litlu munaði að Ettore Scola gerði kvikmynd eftir Les Phalanges de l'Ordre Noir. Bókin Los Angeles varð efniviður í fyrirtaks myndband við tónlist hljóm- sveitarinnar Téléphone. Eftir þessar þreifingar lét Bilal loks til skarar skríða árið 1989 og gerði Bunker Palace Hotel. Kvikmynd með Jean Louis Trintignant í aðal- hlutverki. Lokað herbergi neðanjarðar, þrúgandi en ekki laust við kímni. Onnur kvikmynd er í undirbúningi. Bilal gerði sviðsmynd fyrir La Vie est un Roman eftir Alain Resnais. Sem skapari myndheims er Bilal eftirsóttur af leikhúsfólki. Dansflokkur (Angelin Preljocaj) hefur pantað hjá honum sviðsmynd og búninga fyrir byltingarkennda uppfærslu á Rómeó og Júlíu. Hann gerði frábæra sviðsmynd fyrir óperuna OPA Mia. Eins og við er að búast af Bilal, ætlar hann nú að snúa sér aö sviðs- setningum í leikhúsi. við annan höfund, Tramber, var ein fyrsta lýsingin á óreiðukenndum heimi stóru fátækrahverfanna í útborgum Frakklands undir lok 20. aldar. Jano dvelst nokkurn tíma ársins utan Parísar. Hann ferðast um og lifir sama lífi og gestgjafar hans. Til þess að geta teiknað umhverfið, sem hann kynntist í Afríku, á bökkum Niger fljóts eða í Sómalíu, fann hann upp söguhetjuna Keubla sem eins konar afrískan tvíburabróður Kebra. Léttlyndið, sjálfsbjargarviðleitnin og óhátíðleikinn, sem Jano kynntist í Afríku urðu honum innblástur að öllu geðþekkari persónum en í frönsku sögunum um Kebra. Vegna þess að söguhetjurnar eru í dýralíki losnar hann auk þess við að falla í gildru kynþáttafordómanna. Sem glöggur og kíminn áhorfandi að gamanleik mannlífsins, kann Jano að sýna næstum súrrealíska töfra sjónvarps- kvölda á sléttum Afríku eða réttrúaðan múslima sem er á leið í moskuna sína á mótorhjóli sem bilar úti í miðri eyðimörk. Þannig er t.d. í bók hans Carnets d'Afrique („Dagbækur frá Afríku"). Jano getur brugðið fyrir sig snilldarlegum orðaleikjum. Dæmi um það er sagan Le Casse casque pas des masses (á hversdagsmáli: Misheppnað bankarán gefur ekki mikið í aðra hönd). Söguhetja hans ára gamall finnur hann undireins rétta tóninn fyrir nýja gamanmyndasögu. Tón sem er hýr, kaldhæðinn, siðlaus og minnir í fyrstu á neðanjarðarmyndasögur Bandaríkjanna. Jano býr til nýja frumskóga svo söguhetjur hans geti ratað í ný ævintýri, allt frá soralegustu úthverfum Parísar til Vestur- Afríku. Rottan Kebra, Keubla og Gazoline eru furðudýr í mannsmynd, alltaf til í tuskið. Undir farsakenndu yfirborðinu og góðum smellum eru sögur Janos fullar af nákvæmum athugunum á einstaklingum og samfélagi. Þessi frábæri teiknari hefur jafnframt glöggt auga fyrir heimi samtímans. Síðast en ekki síst lætur Jano söguhetjur sínar bregða fyrir sig raunverulegu tungutaki unglinga úr frönskum úthverfum. Kebra er einkar mannleg rotta. Þessi skringilegi frændi Mikka músar er frekar heimskur en vondur. Hann er dálítið upp á kvenhöndina, en gellurnar, sem hann reynir við, eru oftast undir verndarvæng samviskulausra þorpara. Hann er hrifinn af tryllitækjum og lífsþægindum, en gripdeildir hans eru ekki mjög víðtækar. Stundum leikur hann þungarokk með félögum sínum, en eyðir miklu meiri tíma í slagsmál en gltarspil. Myndasagan, sem var gerð í samvinnu JANO gerir í sífellu vopnaðar ránstilraunir. Slanguryrði og orðmyndir, sem not- aðar eru til að tjá ógnun, mismunandi í hvert sinn, eru listilega gerðar. Gazoline er myndasíðustúlka. Hún er líka skrítið, kynþokkafullt dýr sem skýst milli plánefanna á fútúrískri 41
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Gisp!

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.