Gisp! - 01.12.1992, Síða 48

Gisp! - 01.12.1992, Síða 48
Hh rá 1 977 starfar Loustal sem M teiknari viö tímaritið „Rock & Folk". Aðalritstjórinn, Philippe Paringaux, skrifar smásögur, smátexta sem miðla andrúmslofti. Sá fyrri stingur upp á því viS hinn aS reyna sig við handrit að myndasögu; út úr því kemur Cœurs de sable („Sand- hjörtu"), „skáldsaga" sem gerist á 4. áratugnum og er hlaðin Hollywood- myndefni og áhrifum frá langdvölum í Marokkó. Þetta frábæra og eitraða melódrama stefnir m.a. saman frönsk- um herforingja, arabískum prinsi og amerískri tennisleikkonu. Arriére Saison („Haustlok"), sem fylgdi í kjölfarið á öðrum smásagna- söfnum, er til mikillar fyrirmyndar. Þar skiptast á kyrrar andlitsmyndir og svipmyndir úr lífinu. Varasömum konum, heimsmönnum, gutlurum, ásamt nokkrum misheppnuðum mönn- um, er komið fyrir í stórum myndum sem ná yfir hálfa eða heila síðu. Loustal skrifar sjálfur flesta textana sem einkennast af kímni og kald- hæðni. Loustal og Paringaux skjóta aftur upp kollinum með Barney et la note bleu („Barney og bláu nótunni"), saknaðaróð til jazzins á árunum 50- 60, sem segir frá örlögum saxófón- leikara sem sækir innblástur til Barney Wilen. Sérstök plata var tekin upp og fylgir bókinni. Stíllinn er mjög sér- stakur: neðanmálstextar sem skapa andrúmsloft, titrandi litir milli Matisse, Hockney og Hopper, hreyfingarleysi frystrar atburðarásar, hárfínar skekkj- ur í rammanum sem oft hefur verið líkt við myndir Wenders ... Sjaldan hefur samstarf teiknara og handritshöfundar tekist jafn vel! Mémoirs avec dames („Minn- ingar með konum"), skrifuð af Jean- LOUSTAL Luc Fromental, er fyrsta bókin þar sem Loustal fer að leikreglum hefðbund- inna myndasagna, þar sem samtölin eiga sér stað í talblöðru. Söguhetjan, Morel Cox, rekur nokkrar minningar sínar milli 1927 og 1940 í London, París, Sahara og Shanghai. I bland við ýmis samsæri af pólitískum toga og lögregluaðgerðir með uppgang BOURGEON tvö tímabil, miðaldir og 18. öld, með hrollvekjuívafi í fyrra tilvikinu og pólitísku ívafi í hinu síðara. Báðar þessar sögur, sem eru vel unnar út frá heimildunum, eru hnitmiðaðar á sviði atburða og sálfræði. I báðum er aðalhlutverkið í höndum kvenpersóna, sem eru meðal hinna sönnustu og mest heillandi sem sést hafa í ævintýrum. Fyrsta bók Bourgeons, Maitre Guillaume („Meistari Vilhjálmur") (1978) markar endalokin á námsferli hans. Það er eins konar söguleg CABANES skáldsaga um kirkjubyggingar. Hún er strax dæmi um að höfundurinn vill hafa fullt vald á viðfangsefni sínu. En þessar kristnu miðaldir eru enn hefðbundnar; í þeim sést ekki hið heiðna, blóðuga og munúðarfulla æði sem einkennir síðari miðaldasögur hans. Bourgeon, sem las Ivar hlújárn og Hróa hött í æsku, heldur sig enn við miðaldirnar með Brunelle et Colin („Brunelle og Colin"), sögu sem Robert Genin skrifaði handritið að. Hún var gefin út í kaþólsku barna- blaði í fimm síðna þáttum og ber að nokkru merki þess. Hvorki galdrar né hrollvekjur eiga aðgang að þessari sögu sem segir frá flakki tveggja einstæðra unglinga, prinsessu og fylgdarsveins hennar. i útliti vísa sögupersónurnar fram til söguhetj- anna 1 Passagers du Vent („i för með vindinum"), Isa og Hoel. Með fimm bindum í yfir 300.000 seldum eintökum hvert hafa Les Passagers du Vent slegið öll vinsældamet ævintýrasagna. I þetta sinn er ævintýrið dularfullt og tengt hafinu; það á sér stað í skýrt afmörk- uðu, sögulegu umhverfi, sem er þrælaverslunin. Hér er allt jafn heillandi: tvær söguhetjur (önnur frönsk, hin ensk) sem eru ósparar á töfra sína, vel upp byggt og vel skrifað handrit, auðugt af litríkum persónum, nákvæmt raunsæi í smáatriðum og loks kitlandi heitir og ríkulegir lifir. Söguhetjan í Compagnons du Crépuscule („Rökkurfélögum") er riddari sem hylur afmyndað andlit sitt og endar eftir langa leit á bálkestinum. Leitin, þar sem hann nýtur fulltingis prakkarans Mariotte og hreinlynds skósveins, l'Anicet, flytur hann á vit púka, seiðkarla, loddara og nokkurra hefðarkvenna, persónusafn sem er búið til eins og það leggur sig og notað til að mynda sérstaka þætti. Með þessari sögu nær Bourgeon loks að gera uppáhaldstímabili sínu verðug skil. Kvikmyndaleikstjórinn Christian Lejalé gerði mynd um Bourgeon og verk hans. Hafið höfðar mjög sterkt til þeirra beggja og þeir ætla nú í sameiningu að gera kvikmynd sem kallast Docker. Þeir skrifa báðir handritið og Bourgeon hefur teiknað allt sögusvið myndarinnar, eina mynd eða fleiri fyrir hvert skot. Þetta verk, sem er enn óbirt, er með frjálsara og kröftugra handbragði og sýnir aðra hlið á hæfileikum hans. ■B æddur í Béziers árið 1947. Hann vann við ýmis störf áður en hann dembdi ™ sér út i myndasögurnar. Hann er sjálflærður teiknari en vakti athygli starfsbræðra sinna fyrir frábæra hæfileika. Hann gerði aldrei neina málamiðlun við lesendur, útgefendur eða tískuna, en hlaut árið 1990 Grand Prix de la Ville d'Angouléme, mesta virðingarvott starfsgreinarinnar. Cabanes er maður draumóranna, með frjótt ímyndunarafl, og tengir saman skáldskap, kímni og viðkvæmni. I litum hans er suðræn birta og munúðarilmur. Við texta eftir Jean-Claude Forest, höfund Barbarella, birti Cabanes árið 1978 í fyrstu tölublöðum mánaðarritsins „(A Suivre)", safaríka og frjálsa útfærslu á miðaldaverkinu Roman de Renart. Það tók Cabanes tólf ár (1975-1986) að Ijúka fjórum bindum mikilvægustu sögu sinnar hingað til. Dans les Villages („I þorpunum") er í senn saga úr hversdagslifi smáþorps i Suður-Frakklandi, með fávitanum og kúluspilsköllunum sínum, og furðusaga af dýrum sem bera jafn ævintýraleg nöfn og þau hegða sér skringilega: rænsni, fneldri og aðrar puðrur. Allur þessi smáheimur býr í draumum Draumhuga nokkurs, sem er heillaður af eldinum. Sannarlega furðulegt! Með Contes fripons og Rencontres du 3e sale type (nafnið er skopstæling á heiti frægrar myndar eftir Spielberg) gefur Cabanes lausan tauminn grófari og hrárri tilhneigingu. Gert er grín að heimi ævintýrasagna og vísindaskáldsagna, i stuttum sögum sem leysast upp í fáránleika og slá saman ólikustu tilvísunum. Hér er á ferðinni sú skopmyndahefð sem tímaritið Mad byrjaði á forðum og lifir fullu lífi í þessum fjörlegu myndum. Cabanes er mikill iþróttamaður og hefur lagt stund á ruöning, fótbolta og hjólreiðar. Engin furða þótt hann myndskreyti bók sem helguð er frönsku hjólreiða- keppninni (Tour de France): La Boucle Magique („Töfrasylgjan"). Tveir blaðamenn skrifuðu textann og Cabanes gaf honum nýja vídd með myndum sínum sem eru óður til víðerna og líkamlegrar áreynslu. Hann hefur fullt vald á vatnslitatækni og hún gerir honum kleift að gefa í skyn hraða með flæðiáhrifum sínum. Cabanes fer síðan inn á sjálfsævisögulegri mið með Colin-Maillard, sem eru nokkrar frásagnir sem kalla fram bernskuminningar hans á blæbrigðarikan hátt. Flest atriðin eru tengd þroskasögu Maxou hins unga, feimins drengs, sem hátterni ungra stúlkna skilur eftir reynslunni ríkari. Asamt öðrum teiknurum var Cabanes í þrjá daga lokaður inni í Ingres safninu í Montauban. Ut frá þessari sérstöku reynslu hefur hann gert frábærar myndir sem sýna málarann fræga á gangi með fiðluna í hendi um það sem síðar verður að safninu sem honum er tileinkað. 44
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Gisp!

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.