Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Page 2

Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Page 2
2 FJARÐARFRÉTTIR Jólablað Fjarðarfrétta kemur nú fyrir sjónir bœjarbúa í fimmta sinn síðan útgáfa blaðs- ins var endurvakin 1979. Nú sem fyrr kappkosta þeir sem að útgáfunni standa að vanda sem allra mest til blaðsins, bæði hvað varðar útlit og innihald. Áhersla hefur verið lögð á fjöl- breytt efni og vonandi finna allir eitthvað viðsitt hæfi Iblað- inu. Þótt útgefendur hafi haft I nógu að snúast við að vinna blaðið, hefur nú enn sannast hið fornkveðna, að enginn stendur einn I stríði. Fjölmargir aðilar hafa lagt hönd á plóginn við gerð þessa jólablaðs, og verður ekki hjá því komist að geta hér nokkurra þeirra. Gunnar Hjaltason, listmál- ari, lánaði Fjarðarfréttum lista- verkið setn prýðir forsíðu blaðs- ins og myndir við Ijóð. Stefán Júlíusson, rithöfundur gaf leyfi til birtingar á kafla úr skáldsögu sem hann er með I smíðum, auk annars efnis sem hann lét I té. Sigurður H. Guðmundsson leyfði birtingu á Ijóðum úr nýrri Ijóðabók sinni. Páll Daníelsson og Albert Már Steingrímsson brugðu sér í hlutverk blaða- manna og tóku viðtölfyrir blað- ið. Heimilisfrœðikennarar I skólum bæjarins settu saman gómsætar mataruppskriftir. Bjarki Jóhannesson skrifaði um skipulagsmál. Haraldur Magnús- son smásögu. Magnús Jónsson lagði blaðinu til efni frá fyrri tíð. Hanna Björk Guðjóns- dóttir tók saman efni úr Flens- borg. Stefán Snær Grétarsson og Grétar Guðmundsson (TARNÚS) teiknuðu fyrir blað- ið, og Trausti Óttar vann ómœlt starf við framköllun og stækk- un Ijósmynda. Þá má heldur ekki gleyma ónefndum konum, sem lögðu á sig mikla vinnu við auglýsingasöfnun og prófarka- lestur. Þessu fólki og öllum öðrum sem lögðu blaðinu lið, þakka útgefendur Fjarðarfrétta af alhug. Að venju standa auglýsingar straum af kostnaði við blaðið og gera kleift að dreifa því ókeypis til bæjarbúa. Nú sem endranœr brugðust auglýsend- ur vel við, og vonandi eiga þeir eftir að njóta þess í auknum viðskiptum, að auglýsa I Fjarð- arfréttum. Hafi þeir þökk fyrir sinn hlut. Að lokum óska útgefendur Fjarðarfrétta bœjarbúum gleði- legra jóla og þakka fyrir sam- starfið á árinu sem er að líða, og vona að jólablað Fjarðarfrétta verði sem fyrr, vinsælt og víð- lesið. Fjarðarfréttir RITSTJÓRI OG ÁBYRGOARMAOUR: Guómundur Sveinsson, Slml 51261 ÚTGÁFURÁÐ: Ellert Borgar Þorvaldsson Guðmundur Svelnsson Rúnar Bryrtjólfsson Auglýslngasímar: 51261, 53454 og 51298 Helmillsfang: Pósthólf 57, Hafnarflról Ljósinyndarar: Ellert Borgar Jóhann Guðni Reyriisson Gleðileg jól Gott og farsælt nýtt ár Pökkum liðið < ___________________________> SIGURÐUR HELGI GUÐMUNDSSON DRALIM RÚNÍ R Komin er út Ijóðabókin Draumrúnir eftir Sigurð Helga Guðmundsson sóknarprest í Víði- staðasókn Hafnarfirði. Bókaútgáfan Rauðskinna gefur bókina út. Sigurður Helgi er Skagfirðingur að ætt og uppruna. Hann er fæddur að Hofi í Vesturdal 27. apríl 1941. Sigurður vígðist til Reykhóla, en var síðan prestur á Eskifirði, þar til hann tók við Víðistaðaprestakalli í Hafnarfirði 1977. Eftir Sigurð hefur ekki komið út ljóðabók áður. Ljóð þessarar bókar eru öll frá þessu ári, að einu undanskildu. Hafnfirski listamaðurinn Gunnar Ásgeir Hjaltason hefur gert teikningar við ljóð Sigurðar. Ber samvinna þeirra merki fágunar og næmni listamanna. Gunnar Ásgeir Hjaltason gullsmiður hefur búið í Hafnarfirði frá árinu 1952, en er fæddur að Ytri-Bakka í Arnarneshreppi í Eyjafirði. Gunnar iærði gullsmíði hjá Guðmundi Guðnasyni og Leifi Kaldal, og eftir hann eru til fjöldi listmuna úr gulli og silfri. Gunnar var í teikniskóla hjá Birni Björnsyni og Marteini Guðmunds- syni. Gunnar hefur ferðast víða og hefur mörg myndin skapast á ferðalögum, eins og sýningar hans bera með sér. Með góðfúslegu leyfi beggja þessara heiðursmanna birtast hér tvö Ijóð Sigurðar og teikn- ingar Gunnars við þau. GUNNAR ásgeir hjaltason NÓTT Þú kemur á móti mér í mildu húminu að draga mér draumastafi Dul eru í orðum þínum draumur í ljóði þínu svefninn í söng þínum. Mjúkir eru fingir þínir, þögul eru augu þín, myrkur er í brosi þínu. Hlý eru atlot þín, angan úr hári þínu, unaður í faðmi þínum. Víst ann ég deginum, deginum og Ijósinu. En með þér deili ég draumum mínum þar til dagar. SÖKNUÐUR Hnígur sól sofnar blóm sorgin gistir minn rann. Drýpur regn titra tár tregar hjarta minn hann sem var angan míns vors sem, var ylur míns lífs. Hnígur sól sofnar blóm sorgin gistir minn rann.

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.