Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Blaðsíða 5

Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Blaðsíða 5
FJARÐARFRÉTTIR 5 Sérstök iólakort Rætt við Stefán Júliusson, rithöfund Fjarðarfréttir komust að því fyrir nokkru að Stefán Júlíusson rithöfundur hefði um alllangt ára- bil sent vinum sínum og kunningj- um um jólin kort sem ekki líkjast venjulegum jólakortum. Þetta eru í rauninni ritlingar eða smábækling- ar með áprentaðri jólakveðju. Rit- stjórn blaðsins lék forvitni á að sjá þessi kort og spyrja Stefán um ástæðuna fyrir þessum sérstæða sið hans. Hvernig stóð á því að þú tókst upp á þessu, Stefán? Það var bara tilviljun og til gamans gert í upphafi — eins og raunar síðan. Ég birti ferðasögu frá Danmörku í Eimreiðinni á árunum 1967-68 en þá var ágætur vinur minn, Ingólfur heitinn Kristjáns- son rithöfundur, ritstjóri tímarits- ins. Það samdist svo með okkur að ég fengi nokkur sérprent af grein- unum. Ég fékk svo prentaða kápu utan um ferðasöguna í Prentsmiðju Hafnarfjarðar og á hana var prent- uð venjuleg jólakveðja. Síðansendi ég bæklinginn sem jólakort frá okkur hjónunum. Þetta þótti skemmtilegt fikt, en ég hafði ekkert hugsað mér að halda því áfram. En þú hélst samt áfram. Já, ef maður byrjar á einhverju fikti vill oft fara svo að maður heldur því áfram. Þetta verður svona eins konar kækur. Og hvað ertu búinn að vera lengi með þennan kœk? Égheldað 15. ,,kortið“ séáleið- inni núna. Þetta er orðin föst venja nú orðið. Mér finnst gaman að þessu og ég hef orðið þess var að vinir og kunningjar hafa það líka og búast við pésanum. Jafnvel Albert Þorsteinsson verkstjóri í Prentsmiðju Hafnarfjarðar býst við mér með eitthvert efni árlega og dundar við það með mér að búa kortið úr garði. Ég er farinn að kalla pésana eða kortið, hvað sem menn vilja nú kalla þetta, „fiktið okkar Alberts“. Þetta er allt frumsamið efni? Já, já, annars væri það einskis virði. Sumt hefur að vísu birst einhvers staðar einhvern tíma áður en þá breyti ég því og endursem. Á sumum kortum er líka óbirt efni. Og hér kennir margra grasa, sýnist mér. Já, þetta eru ferðasögur, minn- ingaþættir, vísur og kviðlingar, gamansögur, ættfræðiþáttur, smá- saga, ævisagnaþættir o.fl. Hvað gefurðu þetta út I stóru upplagi? 1000 eintökum, prentuð sem handrit. Ég sendi þessi eintök ekki öll út, ég luma á slatta sem ég get gefið mönnum ef vel liggur á mér. Menn sníkja þetta líka út úr mér, svo fátt er orðið eftir af sumu. Safnarar sækjast eftir þessu. Nú eru kortin ólík að stœrð. Þér hefur ekki dottið í hug að hafa öll eins svo hœgt væri að hefta þau saman? Nei, einmitt ekki. Það er dráttur í kæknum. Sumir hafa verið að finna að því við mig að ég hefði pésana ekki af sömu stærð og lögun svo hægt væri að binda þá í bók. Það vil ég ekki. Þáttur í „fiktinu okkar Alberts” er að hanna kortið hverju sinni (það er stórt orð Hákot!) Ekkert má líkjast öðru of mikið, það er hluti af gamninu. Og œtlarðu að halda þessu áfram? Það veit ég ekkert. Þetta er orðið talsvert að vöxtum, líklega heil bók. Ætli ég sjái ekki til, enginn ákveður neitt fyrirfram um þess háttar fikt. TIL EIGENDA BATA í NAUSTI VIÐ SYÐRI HAFNARGARÐINN VegnavæntanlegraframkvæmdaíSuðurhöfninni eru eigendur báta og annarra hluta, á landi Hafnar- sjóðs Hafnarfjarðar, við Syðri Hafnargarðinn, beðnir aó fjarlægja þá fyrir 20. desember n.k. Að öðrum kosti verða þeir fjarlægðir á ábyrgð og kostnað eig- enda, eða þeim eytt. Uþþlýsingar um nýjan geymslustað eða annað sem þetta mál varðar eru gefnar á Hafnarskrif- stofunni, Strandgötu 4, sími 50492. YFIRHAFNSÖGUMAÐUR * LEIKBÆR Leikföng í fjölbreyttu úrvali. Fisher Price - Lego - Playmobil - Barbie - Sindy - Tölvuspil og margt, margt fleira. Leitið ekki langt yfir skammt. LEIKBÆR Reykjavíkurvegi 50 Sími 54430 HÁRGREIÐSLU- OG SNYRTISTOFAN Reykjavíkurvegi 68 - sími 51938 Viltu hressa upp á útlitið? Þá getum við hjálpað. Vinsamlegast pantið tíma í síma 51938 TRYGGVI OLAFSSON úrsmiður KREDITKORT Strandgötu 25 Hafnarfirði sími 53530 SEIKO l Úr — klukkur — skartgripir skírnargjafir — loftvogir SEIKO — þjónustan f------------------------------ m SÖLUTURNINN M HRINGBRAUT 14. Bæjarins besta úrval af sælgæti fyrir jólin. Konfektkassar, glæsilegt úrval. Munið: Bæjarins besta sælgæti. SÖLUTURNINN S HRINGBRAUT 14. * V J r" A m m Gleðileg jól! Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Verslunin EDDA Gunnarssundi 5 Sími 50864 m m -i

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.