Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Síða 8

Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Síða 8
8 FJARÐARFRÉTTIR Þekkirðu baksvipinn? Hver á baksvipinn? í þessari verðlaunagetraun þurfið þið að þekkjanokkrasamborgaraábaksvipnum. TilaðgeraþettaauðveldarabirtumviðsvolitlarupplýsingarumfóIkið.Þrennverðlaunverða veitt fyrir réttar lausnir. Skrifið lausnina á blað og sendið okkur í pósthólf 57. B fæddist 1950 og er borinn og barnfæddur Hafnfirðingur. Hefur frá 1972 starfað við að framfylgja lögum og reglu, en vann áður um skeið hjá B.Ú.H. B býr í Suður- bænum. F F fæddist hér í bæ 1927 og hefur alltaf átt heima í Hafnarfirði. Hefur atvinnu af gjaldkerastörfum hjá opinberri stofnun. F hefur víða komið við í félagsmálum og hefur m.a. verið kvenfélögunum í bæn- um sterk stoð. F hefur einnig starf- að að bæjarmálum, setið í nefnd- um og var um skeið varabæjarfull- trúi. G G fæddist í Vestmannaeyjum 1960. Kom til Hafnarfjarðar í gosinu 1973 og hefur átt hér heima síðan. Vinnur hjá verslunar- og innflutn- ingsfyrirtæki hér í bæ. G stundar íþróttir í flestum sínum tómstund- um og hefur náð langt á því sviði. H H fæddist 1948 í Neskaupsstað, en ólst upp á Seyðisfirði. Fluttist til Hafnarfjarðar 1977 og tók við starfi á andlega sviðinu. Meðal áhugamála eru íþróttir og skák — þó ekki sem beinn þátttakandi, — og um tíma söng H í kór hér í bæ. J fæddist í Hafnarfirði 1931 og hefur alla tíð átt hér heima. Frá 1954 hefur J haft aðalatvinnu af bifreiðaakstri, en var um tíma við- loðandi sjóinn. A yngri árum lék J knattspyrnu og íþróttir eru meðal aðaláhugamálanna. A fæddist árið 1938 og er inn- fæddur Hafnfirðingur. Frá 1969 hefur A unnið á sviði heilbrigðis- og félagsmála, en starfaði áður sem rafeindavirki. Meðal áhugamála eru tónlist og myndlist. C fæddíst 1926. Bjó á Hvaleyri til 18 ára aldurs, en á nú heima í Suðurbænum. Hefur haft atvinnu af bifreiðaakstri frá 1950. E E fæddist 1932 og hefur alla tíð átt heima í Hafnarfirði, býr nú í Norðurbænum. E hefur í tvo ára- tugi starfað hjá opinberri stofnun sem hefur að markmiði að verja okkur fyrir óboðnum gesti sem stundum ógnar lífi okkar og eign- um. Meðal áhugamála E má nefna sundíþróttina. D fæddist 1915 austur í Hreppum. Starfaði á yngri árum sem organisti vestur á fjörðum, en hefur búið í Hafnarfirði lengst af og fengist við að uppfræða æskulýðinn og troða upp á leiksviði. I I fæddist 1941 í Hafnarfirði og hefur alltaf búið hér. I starfaði lengi á einni af stofnunum Hafnar- fjarðarbæjar, en vinnur nú í sér- verslun hér í bæ. I hefur sungið í ýmsum kórum enda er eitt aðal- áhugamálið tónlist og söngur.

x

Fjarðarfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.