Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Page 14
14
FJARÐARFRÉTTIR
Tóku þátt í íslandsmóti í fimleikum 1933
— fengu verðlaunaskjölin 50 árum síðar
Rætt við Eygerði Björns-
dóttur og Margréti Péturs-
dóttur um fimleikaflokk
stúlkna fyrir 50 árum
í haust kom föngulegur hópur
kvenna saman í íþróttahúsinu við
Strandgötu. Tilefnið var að taka á
móti verðlaunaskjölum fyrir þátt-
töku í íslandsmóti í fimleikum. Það
einstæða við þennan atburð var að
þetta íslandsmót átti sér stað fyrir
hálfri öld, árið 1933. Verðlauna-
skjölin höfðu lagst til hliðar á
sínum tíma og þegar þau bárust í
hendur stjórnar Fimleikafélags
Hafnarfjarðar boðaði hún til hófs,
þar sem verðlaunaskjölin voru
afhent þeim sem til þeirra höfðu
unnið.
Verðlaunahafarnir höfðu gengið
undir nafninu ,,úrvalsflokkurinn“
og það var Hallsteinn Hinriksson
sem stjórnaði honum.
FJARÐARFRÉTTIR ræddu við
tvær úr hópnum, þær Eygerði
Björnsdóttur og Margréti Péturs-
dóttur og fengu þær til þess að rifja
upp eitt og annað frá þessum
árum.:
,,Við vorum 16 í hópnum og Iík-
lega hefur hann verið stofnaður
1929. Hallsteinn Hinriksson hóf
kennslu í Hafnarfirði 1928 en þá
hófst skólaskyldan við 10 ára
aldur. Hann valdi úr nemenda-
hópnum í þennan ,,úrvalsflokk“
sem hann nefndi og vorum við
flestar 11 og 12 ára gamlar. Við
æfðum tvisvar í viku í leikfimishúsi
barnaskólans sem þá stóð við
Suðurgötu. Allt var þetta gert í
sjálfboðavinnu af hálfu Hallsteins
eins og raunar öll hans störf að
íþróttamálum utan kennslunnar.
Við sóttum æfingar mjög vel og
það var sjaldan sem einhverja vant-
aði í hópinn. Snemma fórum við að
sýna við ýmis tækifæri. Á þessum
tíma var aðalskemmtun ársins á
Jónsmessunni. Voru þessar
skemmtanir haldnar á ýmsum stöð-
um í bænum, eitt árið á Víðistaða-
túninu, annað árið upp á Hamri og
oft í Hellisgerði. Allir bæjarbúar
sem vettlingi gátu valdið komu á
þessar Jónsmessuhátíðir og var
þarna margt til skemmtunar og
komum við fram öll árin sem flokk-
urinn starfaði.
Við sýndum víðar, m.a. fórum
við að Laugarvatni, þar sem Bjarni
Bjarnason var skólastjóri, en hann
kenndi áður i Hafnarfirði og mun
ferðin líklega hafa verið að hans til-
hlutan. Þá sýndum við í Iðnó ásamt
fleiri fimleikaflokkum.
rm feSy'v- tW.vM i 4^^
pii
FFim/ci/<amö/i í7n/amfs - /<>33 - <V Hrfir MoM *»ta/ firlta II/ •.rim/ar <v inia/a
Þetta var á þeim árum þegar
Davíð Stefánsson sendi frá sér sínar
fyrstu ljóðabækur og kvæðið
,,Dalakofinn“ var á allra vörum.
Það var fastur liður hjá okkur að
sýna æfingar undir hljómfalli lags-
ins. Upptrekktur grammófónn
annaðist tónlistina og lá mikið við
að hann væri vel trekktur upp.
,,Úrvalsflokkurinn“ æfði fram á
árið 1933 og eitt það síðasta sem við
gerðum saman var þátttaka í
íslandsmótinu í fimleikum það ár.
Þetta var töluvert ferðalag í
,,boddýbíl“ sem sá frægi maður
Magnús Guðjónsson ók.
Allir hóparnir komu saman við
Austurbæjarskólann og síðan var
arkað í leikfimisbúningum í hálf-
FIMLEIKAFÉUG
HAFNARFJARDAR
Tekið á móti verðlaunaskjölunum. Á myndinni eru: (frá vinstri) Hallbera Pálsdóttir, Aðalheiður Bjarg-
mundsdóttir, Guðrún ívarsdóttir, Eygerður Björnsdóttir, Margrét Pétursdóttir, Sigrrós Oddgeirsdóttir,
Sigríður Bjarnadóttir, Guðrún Vilhjálmsdóttir, Heiða Jensdóttir og Svanhildur Sigurjónsdóttir. Á myndina
vantar: Hrefnu Magnúsdóttur, Sigríði Guðmundsdóttur og Guðrúnu Jónsdóttur.
gerðum hraglanda og kalsaveðri
vestur á Melavöll, þar sem mótið
fór fram. Mótið var sett af Ásgeiri
Ásgeirssyni, þáverandi forsætis-
ráðherra, síðar forseta íslands.
Þetta var sem sagt ákaflega virðu-
legt allt saman.
Flestar úr flokknum fóru í Flens-
borg veturinn eftir en nokkrar
fluttu þó burtu og því var erfitt að
halda flokknum saman. Þar er
sjálfsagt komin skýringin á þvi að
verðlaunaskjölin bárust okkur ekki
í hendur. Það var kannski eins gott,
því sjálfsagt hefði hópurinn þá ekki
hist í haust og átt þessa ágætu stund
saman.
Þetta var mjög skemmtilegur
tími og margs að minnast.
Hallsteinn lagði á sig mikla vinnu
með hópinn, bæði með æfingar og
ferðalög. Samhliða þessu þjálfaði
hann einnig piltaflokk í fimleikum
og kenndi sund þeim er það vildu.
Það var með ólíkindum hvað hann
komst yfir að gera og aldrei var
minnst á borgun.“
Við þökkum þeim Eygerði og
Margréti fyrir spjallið. Það er
greinilegt bæði af þeim stöllum og
eins kom það fram í hófinu í
íþróttahúsinu að þetta var
skemmtilegur tími. Og hvort sem
þær búa svona vel að æfingum
Hallsteins eða ekki þá gætu þær
sjálfsagt enn farið létt með æfingar
sem þær gerðu áður fyrr undir
stjórn hans á Víðistaðatúninu.
Hér sitja ,,stelpurnar“ yfir kaffibollunum í hófi FH í haust.
Þessi mynd er tekin á Víðistaðatúni um 1930.
Fimleikasýning á Jónsmessuhátíð á Hamrinum.
,,Úrvalshópur“ Hallsteins.