Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Blaðsíða 23

Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Blaðsíða 23
FJARÐARFRÉTTIR 23 Skemmtilegir trúðar Systrafélag Víðistaðasóknar var að venju með kaffisölu 1. sunnudag í aðventu. Þar seldu félagskonur fjöldann allan af trúðum sem vöktu mikla athygli. Þórunn Benjamínsdóttir fékk hugmyndina af framleiðslu trúðanna og með hjálp Elsu Jónsdóttur var verkinu hrundið af stað. í upphafi saumuðu þær tvær nokkra triíða og seldu. Þegar þær sáu hve vinsælt þetta varð létu þær boð út ganga til félagssystra um sameiginlegar vinnustundir og tóku nokkrar konur virkan þátt í starfinu. Þó báru þær tvær hitann og þungann af verkinu. Afrakstur starfsinser kr. 31.000.00 sem gengur í sjóð þann sem fjármagnar freskumynd hinnar nýju Víðistaðakirkju, en systrafélag Víði- staðasóknar gefur það listaverk í kirkjuna. Hugmyndina að þessum saumastundum var líka sú að fá konur félagsins til að koma saman og vinna sameiginlega, með því móti kynnast konurnar betur og meiri samhugur myndast með þeim í miklum verkefnum sem fyrir liggja í svo nýju félagi. Jólasveinarall JC HAFNARFJÖRÐUR hefur frá árinu 1981 gengist fyrir svokölluðu ,,jólasveinaralli“ og svo mun einnig verða í ár. Jólasveinar aka um bæinn á vörubílspöllum, syngja og tralla ásamt hljóðfæraleikurum og auglýsa verslanir bæjarins í leiðinni, einnig munu þeir stoppa á ákveðnum stöðum, koma niður af bílunum, taka lagið með bæjarbúum og aðstoða við jóla- innkaupin. Tvö síðastliðin ár hefur þessi uppákoma í tilefni jólanna gert mikla lukku meðal bæjarbúa og annarra sem séð hafa, jafnt yngra sem eldra fólks. í ár verður ,,jólasveinarallið“ laugardagana 10. og 17. desember. Nánar verður auglýst síðar um viðkomustaði jólasveinanna. Með kveðju JC HAFNARFJÖRÐUR Og þá byrjaði sumarið! Úrhellisrigning hvolfdist yfir Hafnfirðinga síðasta dag afmælishátíðar- innar í sumar. Jólagjöfin fæst hjá Böðvari Auk jólabókanna eigum við: Gestabækur Myndaalbúm Frímerkjabækur Korktöflur Spil í miklu úrvali Ódýran jólapappír Bókabúð Böðvar Strandgötu 3 Sími 50515 r ÞAÐ SKAL VERA HÆGT... Erlendir sérfræðingar, sem hingaö hafa komið, hafa sagt að ekkert efni og engin aöferð væri til sem gerði kleift að framleiða glugga og útihurðir, sem stæðust íslenzkt rigningarslagveður á borð við það sem oft vill verða i austanátt t.d. á höfuðborgarsvæöinu. Nú vita allir að þetta er ekki rétt. Það sem erlendu sérfræðingarnir tóku ekki með I reikninginn, er að slagveöur og umhleypingur er daglegt brauð hérlendis en heyrir jafnvel tiI undantekninga erlendis, t.d. á meginlandinu. Erlendir framleiðendur útihuröa þurfa því ekki að uppfylla jafnstrangar kröfur og íslenzkir framleiðendur. íslenzkt veðurfar skapar sinn eigin gæðastaöal. Trésmiðja Björns Ólafssonar hefur margra ára reynslu f framleiðslu á útihurðum og gluggum sem þola íslenzkt veður. ÚTIHURÐIR — SVALAHURÐIR — BÍLSKÚRSHURÐIR — GLIJGGAR - OREGON PINE — TEKK — FURA - IROKO — MAHOGANY Allar hurðir og gluggar frá BÓ eru meö SLOTT-lista og TETU þéttingu. BÉl TRÉSMIÐJA DALSHRAUNI 13. HAFNARFIRÐI SÍMI 54444

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.