Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Blaðsíða 33
FJARÐARFRÉTTIR
33
Guðrún Guðmundsdóttir kennir heimilisfræði við Öldutúnsskóla og
Lækjarskóla, með aðsetur í kennslueldhúsi Lækjarskóla. Hún hefur
kennt hér frá 1965, en það ár hóf hún kennslu við Lækjarskóla.
Skiptið deiginu jafnt á fjórar
plötur og jafnið út. Bakið við 210-
220° C í 8-12 mín.
Kremið:
Soðið krem
6/2 dl mjólk
3 egg
3‘/2 msk. kartöflumjöl
250 gr sykur
Smjörkrem
500 gr smjörlíki
500 gr flórsykur
vanilludropar
Hrært vel saman
150 gr br. súkkulaði
50 gr sólblóma
Þeytið egg og sykur, kartöflu-
mjöli bætt út í. Síðan mjólkinni.
Látið í pott, hrærið stöðugt í þar til
suðan kemur upp. Kælt í nokkrar
klst.
Þegar sama hitastig er á báðum
kremunum er soðna kremið látið út
í smjörkremið smátt og smátt (því
annars mærnar kremið).
Jafnið kreminu á milli kökulaga.
Súkkulaðið brætt yfir gufu, sól-
blómasmjörlíkið látið út í, smurt
yfir efsta kökulagið.
Skerið kökuna niður í jafna
parta, pakkið í loftþéttar umbúðir
og GEYMIÐ í FRYSTI.
heitur
HRÍSGRJÓNAOFNRÉTTUR
1 pk. kryddhrísgrjón
(t.d. Savoury)
hveitibrauðsneiðar
‘/4 dós sveppir
1-200 gr rcekjur eða skinka
Hanna Kjeld:
Brauðbakstur er við allra hæfi
það hef ég sannreynt í skólaeldhús-
inu. Fátt hressir eins mikið upp á
sálartetrið eins og hinar ýmsu
brauðtegundir.
Hér eru tvær uppskriftir sem við
getum kallað smábrauð I og II.
SMÁBRAUÐ I
3 dl undanrenna
30 gr pressuger
eða 3 tsk. þurrger
2 msk. sykur
1 tsk. salt (tæp)
3 msk. olía
1 tsk. kardemommur
7 dl hveiti (420 gr)
SMÁBRAUÐ II
3 dl nýmjólk
30 gr pressuger
eða 3 tsk. þurrger
2 msk. sykur
Z2 tsk. salt
40 gr smjörlíki (lint)
Z2 tsk. kardemommur
<514-7 dl hveiti
Egg eða eggjahvíta hrærð sundur
með 1 msk. af vatni. Valmúafræ,
sesamfræ, kúmen eða birkishorn.
Salt, ef brauðin eru notuð með
súpu og mönnum fellur vel að svo-
lítið salt sé utaná brauðunum.
Myljið gerið saman við ylvolga
mjólk, látið það biða um stund.
Hrærið í og bætið sykri, salti, olíu
(eða linu smjörlíki) og karde-
mommum útí. Mælið 614 dl af
hveiti saman við, ef uppskrift nr. I
er notið, 5!4 dl fyrir uppskrift nr.
Hanna Kjeld kennir heimilisfræði við Flensborgarskóla. Þar hóf hún
kennslu sem stundakennari 1956, en þrem árum síðar var hún fastráðin við
skólann, og þar hefur hún kennt síðan, ef undan eru skilin 3 ár, er hún
kenndi við Húsmæðraskólann á Laugarvatni.
4 msk. majonsósa
Z2 dl rjómi
1-2 tsk. karrý
rifinn ostur
Hrísgrjónin soðin, ath. leiðbein-
ingar á pakkanum. Hveitibrauð-
sneiðunum raðað í eldfast mót,
safanum af sveppunum hellt yfir.
Hrísgrjónin látin yfir ásamt
rækjum °S sveppum. Hrærið
saman majonsósu, rjóma og
kryddi. Hellið því í formið. Að
síðustu er rifnum osti stráð yfir.
Hitið í vel heitum ofni þár til
rétturinn hitnar vel í gegn.
Hveitibrauðsneiðunum má
sleppa en þess ' stað bera fram rist-
að brauð með réttinum.
II. Hrærið deigið í 3 mín., ef hræri-
vél er notið, hafið hrærara eða
deigkrók til þess. Eða sláið það
með sleif uns það er orðið seigt og
gljáandi. Stráið 1 dl af hveiti yfir
deigið og í kringum það í skálinni.
Breiðið yfir eða leggið lok á skál-
ina. Ef svo vill til að ekki vinnst tími
til að hnoða brauðdeig upp, þegar
það hefur aukist um helming að
rúmmáli, má slá það saman og láta
það gerjast aftur í skál eða á borði.
Hnoðið deigið vel, þegar það hefur
gerjast. Bætið hveiti við ef þarf, en
aðeins svo að borðið sé hreint þegar
hnoðun er lokið, forðist að gera
deig harðara en svo, að það rétt
sleppi borðinu. Þá má forma það á
margvíslegan hátt.
LIFRAKÆFA
500 gr söxuð lifur t.d. svínalifur
350 gr flesk
100 gr reykt flesk (bacon)
50 gr hveiti
50 gr smjörlíki
3 dl rjómi
1 egg
salt og pipar og blandað krydd
1 laukur saxaður
100 gr gróft saxaðir sveppir
Bakið upp jafning úr hveiti,
smjöri og rjóma ásamt kryddi og
lauk. Brætt fleskið látið út í og
síðan söxuð lifrin. Sveppunum
hrært saman við. Látið í mót sem
klætt er innan með þunnum bacon-
sneiðum.
Bakið í vatnsbaði (t.d. vatn í
ofnskúffunni ) í um það bil 45-60
mín. í vel heitum ofni.
SAMANSOÐINN
KJÚKLINGARÉTTUR
2 stórir kjúklingar eða hœnur
250 gr laukur
250 gr sveppir
2 msk. tómatkraftur
IZ2 dl rjómi
IZ2 tsk. salt
'Zt tsk. pipar
'/4 tsk. paprika
soðið af sveppunum
2 dl soð af kjúklingunum
ostur
Hænurnar (kjúklingarnir)
soðnar í saltvatni þar til kjötið er
laust frá beinunum.
Laukurinn sneiddur og brúnaður
á pönnu ásamt sveppunum. Rjómi,
sveppasoð, kjúklingasoð og tómat-
kraftur ásamt öllu kryddinu bland-
að saman og bragðbætt ef með
þarf.
Nú er kjötið tekið af beinunum
og raðað í eldfast mót. Lauknum
og sveppunum dreift yfir kjötið.
Rjóma-soð-blöndunni hellt yfir og
síðast rifnum osti. Bakið í miðjum
ofni við ca. 200°C, þar til osturinn
er vel bráðinn og gulbrúnn.
Gott er að bera fram með þessum
rétti soðin hrísgrjón, hrátt salat að
ég nú tali ekki um löng brauð klofin
eftir endilöngu og smurð með
kryddsmjöri t.d. hvítlaukssmjöri,
og hituð vel í gegn.
Ath. þennan rétt er hægt að út-
búa hvenær sem er og eiga tilbúinn
í frystinum.
Allir eiga til epli um jólin og því
finnst mér upplagt að láta flakka
með tvær eplakökuuppskriftir sem
sóma sér vel sem ábætisréttir eða á
kaffiborðið:
FJARÐARFRÉTTA-EPLAKAKA
1 kg epli (5-6 stk.)
1 hnefi rúsínur
100 gr sykur
1 tsk. kanel
5 dl haframjöl
100 gr smjörlíki
Eplin eru flysjuð og skorin í
báta. Sett í smurt eldfast mót ásamt
kanel og rúsínum. Sykur, smjörlíki
og haframjöl er hnoðað saman og
sett yfir eplin. Bakað við ca. 225°C
í 25-30 mín.
Borið fram heitt eða volgt með
þeyttum rjóma.
TOSKAEPLI
8 epli
1 dl sykur
50 gr möndlur
50 gr smjörlíki
1 msk. hveiti
2 msk. mjólk
Allt í uppskriftinni nema eplin er
sett í pott og soðið augnablik. Eplin
skorin í tvennt, kjarnahúsin tekin
úr, og eplunum raðað á hvolf í eld-
fast mót og toskakreminu (því sem
er í pottinum) dreift yfir.
Bakað í miðjum ofni við 200°C í
ca. 20 mín.
Borið fram með þeyttum rjóma
eða ís.
Hafnfirðingar • Nágrannar
Við erum með vélastillinaar, hleðslu- og
startaraviðgerðir, auk allra afmennra viðgeróa.
Reynið viðskiptin, ódýr, fljót og góð þjónusta.
Vönduð vinna vanir menn.
BÍLASTILLINC SOS HF.
RpYKJAVÍKURVEGI 64 - HAFNARFIRÐI
SIMI 54318 NAFNNÚMER 1109-0834
Enska postulíniö Country Rose
fæst í
Búsáhöld og leikföng
Strandgötu 11
Gleðileg jól!
OLLUBUÐ
Suðurgötu 71 - Sími 51226
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða