Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Blaðsíða 36
36
FJARÐARFRÉTTIR
KNÚTUR OC STEINGRÍMUR
útijaxlar í nær 30 ár
Þegar við rennum í hlað á
Reykjavíkurvegi 50 við skrifstofu
Knúts og Steingríms hf. grúfir sig
myrkur yfir jörð, því stutt er í það
að stystur dagur sé á lofti. Sem við
stöndum þar úti fyrir rennir í hiað
Datsun jeppi þeirra félaga. Það er
Knútur sem situr við stýrið að þessu
sinni en eins og allur rekstur þeirra
félaga gegn um tíðina er algjört
jafnræði með þeim í akstri fyrir-
tækisbílsins sem öðru. Þar er skipt
um ökumann vikulega, eða á
hverjum föstudegi. Enda hefur
þessi blanda af húnvetnskum og
vestfirskum uppruna reynst býsna
vel, svo notuð séu þeirra eigin orð.
Þegar inn á skrifstofuna er
komið spyrjum við þá félaga
hvernig samstarf þeirra hafi
byrjað?
Það hófst fyrir um 27 árum, en
þá vann Knútur hjá verksmiðju
Reykdals þar sem hann lærði 'núsa-
smíðina. Hjá Reykdal unnu þeir
saman einn vetur en um vorið hefja
þeir svo samstarfið, sjálfstætt, eins
og það er kallað. Steingrímur lærði
hins vegar í Reykjavík hjá Kristni
Sæmundssyni og var hans fyrsti og
eini nemi, því Kristinn fórst svip-
Iega ásamt bróður sínum er þeir
voru á ferð yfir Hvítá á ís.
Og hvert var svo fyrsta verk-
efnið?
Við byrjuðum í Reykjavík í húsi
sem Dr. Gunnlaugur Þórðarson og
fleiri áttu. Líklega er þetta eitt eftir-
minnilegasta sumarið í samstarf-
inu. Bæði vegna þess að þarna ríkti
afbragðs félagsandi og ekki spillti
veðráttan því það má segja að ekki
hafi þurft að fara í skyrtu allt
sumarið.
Upp úr því fórum við svo að taka
að okkur uppslátt á húsum hér í
Firðinum. Unnum fyrir Pétur og
Pál, hist og her um bæinn, eins og
gengur.
Svo kemur Norðurbœrinn til
sögunnar?
Já, það má segja að þá hefjist
uppgripatími í hafnfirskum bygg-
ingariðnaði. Árin 1966-1968 höfðu
verið hálfgerð kreppuár og varð því
bæði tilkoma Norðurbæjarins og
Álversins í Straumsvík mikil lyfti-
stöng fyrir allt atvinnulíf í Hafnar-
fjrði.
I Norðurbœnum voruð þið í
blokka-bransanum, byggðuð og
selduð íbúðir.
Við byggðum og seldum þó
nokkur stigahús þar. Það vekur oft
furðu okkar að ekki skildi vera
haldið áfram að byggja blokkir eins
og risu í Norðurbænum. Það eru
,,eðlilegar“ blokkir, en ekki ein-
hver verðlaunahús sem eiga að vera
í laginu eins og fjöllin í kringum
bæinn. Slík hús hljóta alltaf að
verða miklu dýrari í byggingu og þá
auðvitað í öllu, og því óþarflega
dýrt húsnæði fyrir þá sem eru að
festa sér húsnæði í fyrsta sinn.
Runnu íbúðirnar í Norður-
bænum þá ekki út eins og heitar
lummur?
Jú, það má segja það, að það
hefði verið skemmtilegt á þeim
tíma að fá fleiri verkefni í sama dúr
og þá samfelldari og til lengri tíma,
eins og verktakar á Akureyri og í
Garðabæ fengu. Því þegar Norður-
bærinn var fullbyggður féllu niður
úthlutanir á blokkarlóðum til
verktaka og þar með fengu þeir
ekki að byggja sig eðlilega upp.
En þið eruð ekki aðeins í Norður-
bænum á þessum árum. Þið eruð á
sama tíma við byggingu Álverk-
smiðjunnar í Straumsvík.
Já, það var vissulega bæði
skemmtilegur og lærdómsríkur
tími. Við byrjuðum þar hjá Þjóð-
verjum sem voru að slétta svæðið.
Byggðum fyrir þá skrifstofur og
matarskála og fleira. Síðan kom
sænskt fyrirtæki, S.Í.A.B. til
sögunnar og vorum við undirverk-
takar hjá þeim við að reisa kerskála
I. Þegar kom svo að stækkun hans,
sáu Svisslendingarnir að þeir gátu
fullt eins vel treyst íslenskum verk-
tökum og þá fengum við framleng-
ingu skálans.
Og það virðist sem eigendurnir
hafi verið ánœgðir með verk ykkar
þar, því þegar seinni skálinn er
byggður eruð þið enn á ferðinni.
Jú, við vorum með tréverkið og
steypuframkvæmdir og þar varð
fyrirtækið líklega stærst. Þá munu
hafa unnið hjá okkur milli 70 og 80
manns.
Þið hafið nú nýlega lokið við
byggingu skattstofu fyrir okkur hér
í Firðinum. Hvernig var að standa
í byggingu undir starfsemi sem er
svo óvinsæl sem skatturinn vissu-
lega er?
Húsið er að minnsta kosti fallegt
og við höfum svo sem velt því fyrir
okkur hvort ný og aðlaðandi bygg-
ing komi ekki til að létta lund þeirra
sem þar vinna sem útfærist síðan í
léttari álögur.
Gleðileg jól!
Farsælt nýár!
Þökkum viðskiptin.
KNÚTCIR OG
STEINGRÍMUR HF.
Reykjavíkurvegi 50, sími 53844
Steingrímur og Knútur.
Nú hafið þið starfað saman í 27
ár fyrst sem tveir einstaklingar en
síðan sem hlutafélag. Hefur aldrei
hlaupið snuðra á þráðinn í sam-
starfinu?
Nei, aldrei. Hvort heldur félagið
heitir hlutafélag eða eitthvað annað
það skiptir ekki máli, heldur sam-
vinna þeirra sem í hlut eiga. Það er
samvinnan sem gildir, en ekki
formið.
Á þessum tíma hefur margt
breyst, hvað um vinnubrögð og
aðstöðu í ykkar stétt?
Það hafa vissulega orðið margar
breytingar. Ýmsar smá breytingar
hafa létt undir með okkur þessum
,,útijöxlum“. Verkfæri hafa breyst
og minnkað slit á mannskapnum.
Eins varð mikil breyting þegar hætt
var að blanda steypuna á staðnum
og keyra hana í mótin með hjól-
börum. í dag er steypuvinna leikur
einn þegar notaðir eru kranar með
liprum kranamönnum, að maður
tali nú ekki um ef notaður er dælu-
bíll.
Nú virðast flest verk vera boðin
út. Hvert er álit ykkar á útboðum?
Útboð eru ágæt í hófi, en þegar
boðið er 30 - 40% undir áætlun er
erfitt að sjá hvernig menn ætla að
komast fram úr hlutunum.
Hvað um framtíðina, hvað ætla
Knútur og Steingrímur að gera á
komandi árum?
Við höfum nú dregið saman
seglin, enda endast menn ekki
lengur við útivinnu og mótaupp-
slátt en 25-30 ár. Við erum ef til vill
á aldri breytinga, og er þá ekki eins
gott að breyta til í vinnunni líka,
ekki seinna vænna. Tíminn leiðir
það bara í Ijós, segja þeir félagar og
brosa leyndardómsfullir á svip.
Samtalinu er lokið. Við göngum
út í kvöldið, og kveðjum þá félaga,
en þeir ganga að bílnum og auðvit-
að er það Knútur sem keyrir. Þetta
er hans vika.
AMS
Knútur og Steingrímur byggðu m.a. þetta svipmikla hús, Ölduslóð 38.
Ljós og Raftæki auglýsir:
Mljög gott úrval af gjafavörum 1,T'
til dæmis: Casio-úr
Ljósakrónur
Vegglampar
Standlampar
Gjafalampar
Leslampar
Perur
Kastarar
Litaðar perur
Litaðar kúluperur
Casio-tölvur
Aðventuljós
(12 gerðir af seríum)
Útiseríur
Gtvörp
Útvarpsklukkur
Segulb. m/útvarpi
mónó og steríó
^Qaltcekja-
verólunin^
^jóó & <~&a}tœki
Strandgötu 39
sími 52566