Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Síða 42
42
FJARÐARFRÉTTIR
„Hann er alltaf svo hress hann Böðvar"
Rætt við Böðvar Sigurðsson, sem verslað hefur með bækur í 40 ár
í 40 ár hefur hann selt Hafnfirðingum bækur. Kvikur í hreyf-
ingum, sibrosandi með spaugsyrði á vör og tekur hressilega í nefið.
Hann er líklega sá sem lengstan hefur verslunarferil að baki í
Hafnarfirði og man tímana tvenna í verslunarsögu bæjarins.
Það er af nægu að taka þegar rætt er við Böðvar Sigurðsson, bók-
sala þann þekkta mann í bæjarlífi Hafnarfjarðar.
En látið nú fara vel um ykkur og rifjum upp með honum eitt og
annað sem á daga hans hefur drifið.
uppvaxtarár
Ég er Gaflari í húð og hár,
fæddur hér í Hafnarfirði 15. maí á
því herrans ári 1915. Faðir minn
var Sigurður Sigurðsson, þá bif-
reiðarstjóri, og Elísabet Böðvars-
dóttir. Faðir minn gerði út tvo bíla
og annaðist fólksflutninga milli
Hafnarfjarðar og Reykjavíkur.
Þetta voru forláta drossíur, bláar
að lit. Síðar keypti hann hálfkassa-
bíl sem tók átta farþega auk flutn-
ings og var m.a. í ferðum til Suður-
nesja. Ein mín fyrsta minning er
einmitt tengd hálfkassabílnum. Ég
sat aftan á og ætiaði faðir minn að
aka mér heim. Hann var sjálfur á
leið til Keflavíkur. Hann gleymdi
síðan að setja mig af og varð mér
svo mikið um að ég henti mér af
bílnum. Var það víst lán að ég stein-
drap mig ekki því ég lenti ansi illa
en ég fékk þó bara nokkrar skrám-
ur.
Ég óist upp á heimili afa míns
Böðvars Böðvarssonar. Hann bjó
um tíma í svonefndu Bergmanns-
húsi, sem stóð þar sem Hafnar-
fjarðarbíó er nú. Hann lærði
bakaraiðn og mun vera annar
bakarinn í röðinni úr þeirri stétt hér
í Hafnarfirði, á eftir Proppé
bakarameistara. Hann keypti
bakaríið af Próppé. Það stóð á
svipuðum slóðum og gamla Álfa-
fell var, rétt sunnan og neðan við
Hafnarfjarðarkirkju. Böðvar afi
minn hélt sig alltaf nokkuð vel, átti
alltaf hesta og sópaði nokkuð að
honum. Um hann segir Pálmi Jóns-
son, frá Nautabúi í grein sem hann
skrifaði þar sem hann nefndi tvo
eða þrjá landsfræga hestamenn og
„síðan væri Böðvar Böðvarsson,
sem væri hreinn snillingur með
hesta“.
Afi byggir síðan Mýrdalshúsið
(Suðurgötu 15). Þetta þótti eitt
fallegasta húsið í bænum og þar er
ég fæddur. Þar hefur því margur
mektarmaðurinn komið í heiminn,
a.m.k. bæði ég og Kjartan
Jóhannsson, alþingismaður!
En síðan selur afi bæði bakaríið
og íbúðarhús sitt og kaupir Óseyr-
ina, sem þá var í eigu ísaks. Það má
geta þess að ísak kaupir síðan Fifu-
hvamm í Kópavogi sem Kópavogs-
kaupstaður keypti svo fyrir
nokkrum árum fyrir allmikið fé.
Óseyrin var þá gullfallegur
staður. Byggðin þarna fyrir sunnan
var ekki mikil. Búið var á nokkrum
bæjum á Hvaleyrinni, og síðan
voru það bæirnir Brandsbær,
Melshús, Ásbúð, Skuld, hús Gísla
kaupmanns Gunnarssonar við
Suðurgötu, Nýibær og svo auð-
vitað Flensborg.
Margt var sér
til gamansgert
Frá þessum tíma á ég margar
góðar minningar. Þó leikfanga-
úrvalið væri nú ekki eins fjölbreytt
og það er nú voru engin vandræði
með leiki. Ég var svo heppinn að
mér áskotnaðist forláta leðurfót-
bolti og á þeim tíma var þetta meiri
háttar gersemi. Óx ég mjög í áliti
við þessa eign og mikð var sparkað
alla daga. Ég minnist margra góðra
vina sem þátt tóku í leiknum, má
þar m.a. nefna Jónas son Ögmund-
ar skólastjóra í Flensborg, og þá
bræður Gunnar heitinn og Sigurð
Gíslasyni. Einnig fórum við í kýlu-
boltaleiki og þá fengu stelpurnar að
vera með.
Stundum stálum við doríum við
höfnina, hengdum pokadrusiur
fyrir segl og síðan var siglt um alla
höfn. Aldrei kom neitt óhapp fyrir
en líklega mátti stundum litlu
muna. Þetta ævintýri var að lokum
stöðvað.
Einu sinni man ég eftir því að við
vorum að leika okkur á asskoti
miklum pramma. Það var allhátt
upp í hann frá sjávarmáli og við
vorum þarna í eltingarleik. Það
þarf ekki að orðlengja það að
þarna húrraði ég niður, um tveggja
metra fall og beint í sjóinn.
Einhvernveginn buslaði ég í Iand og
ekki varð mér meint af volkinu. Ég
man að þegar ég kom að landi var
einn mektar karl, þekktur fyrir
rólegheit, að vinna við net í flæðar-
málinu. Ekki haggaðist hann þótt
hann sæi mig steypast í sjóinn,
fannst líklega fara best á því að ég
bjargaði mér sjálfur úr þessum
ógöngum.
Veiðiskapur var mikið stund-
aður og þá oftast af íshúsbryggj-
unni. Einnig var farið út á Hval-
eyrartjörn, þar sem Bátalón er nú.
Þar var þó nokkur rauðsprettu-
veiði. Þar notuðum við ekki færi
heldur stingi og gekk oft dável með
þessum hætti.
Það var sem sagt nóg hægt að
hafa fyrir stafni á þessum dögum.
Ég sakna mjög þess landslags sem
Óseyrin var. Nú er þessi staður ekki
svipur hjá sjón miðað við fyrri
tíma.
Skólaárin
Skólagöngu mína hóf ég með
lestrartímum hjá Jóhanni Þor-
steinssyni og einnig Arnfríði Long.
Skólaskyldan hófst við 10 ára aldur
en ég mun hafa verið 8 ára þegar
lestrarkennslan hófst. Ætlast var til
að nemendur kæmu læsir í skól-
ann, en barnaskólinn var þá til húsa
að Suðurgötu 10. Skólastjóri var
Bjarni Bjarnason frá Laugarvatni.
Ég var í hópi síðustu nemenda í
skólahúsnæðinu við Suðurgötu,
því ég lauk síðan barnaskólanám-
inu á þeim stað sem skólinn er nú,
við Lækinn. í Flensborg fer ég
síðan 13 ára gamall. Oft var glatt á
hjalla á þessum árum. Dansæfing-
ar voru nokkuð tíðar og uppdreg-
inn grammófónn sá um músikina.
Gólfið sem dansað var á var þræl-
slitið en við bárum á það nóg af
kertavaxi svo allt gekk þetta vel
smurt. Við fengum meira að segja
Rigmor Hansen, danskennara, til
þess að segja okkur til.
Ég man það að það þóttu tíðindi
í þá daga að í Flensborg höfðum við
þrjá skólastjóra á jafn mörgum
skólaárum. Það voru þeir
Ögmundur Sigurðsson, séra Svein-
björn Högnason og Lárus Bjarna-
son.
Þegar á Flensborgarárum þótti
sjálfsagt að unglingar ynnu fyrir sér
eins og það var kallað. Fyrstu
minningar mínar um strangan
vinnudag eru þær að við nokkrir
skólabræður úr Flensborg fórum í
uppskipun úr togaranum Ver, sem
var kominn drekkhlaðinn að landi.
Byrjað var kl. 7 um morguninn og
eins og alltaf þegar um uppskipun
er að ræða var keppst við og lítið
hvílst. Klukkan eitt um nóttina létti
mér heldur betur þegar góður
kunningi minn úr hópnum sem var
einnig að niðurlotum kominn eins
og ég kom með þá tillögu að nú
væri nóg komið. Ég samþykkti það
snarlega og við stauluðumst heim
og var ekki hátt á okkur risið. En
þessi vinna vandist eins og annað.
Við afgreiðsluborðið ásamt afgreiðslustúlkunum í Bókabúð Böðvars.
,,Nei er þetta ekki frá honum Sigga Þorleifs. Ég sem hef lítið gert annað
en að tína af honum peninga gegnum árin“.
Hér er Böðvar með viðskiptavinum af yngstu kynslóðinni.
Annars vann ég aðallega á
sumrin við að keyra fiskinn í vaskið
sem kallað var. Þetta var hjá
Böðvarsbræðrum og minnir mig að
þarna ynnu 16 konur, flestar miklir
forkar til vinnu svo það þurfti að
hafa sig allan við til þess að hafa
þær ánægðar, og það var eins gott
því þær voru ekki að vanda kveðj-
urnar ef vantaði fisk. Ég held að oft
hafi ég keyrt 8-900 fiska yfir daginn
til hverrar konu.
Einu óhappi man ég vel eftir. Við
Guðsveinn Þorbjörnsson, síðar
lögregluþjónn, vorum mjög góðir
vinir og vorum oft saman bæði í
leik og starfi, Við vorum einu sinni
sendir úr vinnu til þess að huga að
hestum sem Þórarinn Böðvarsson
átti. Hestarnir höfðu sloppið úr
girðingu sem var í námunda við St.
Jósefsspítala. Ég fór hjólandi en
Guðsveinn gangandi. Þegar við
höfðum komið hestunum aftur inn
í girðinguna þá bauðst ég til þess að
reiða Guðsvein á hjólinu niður í
bæ. Hann þáði auðvitað boðið og
átti sér einskis ills von. Brekkan
niður af spítalanum, Illabrekka,
var mun brattari þá en hún er núna
og ég steig hjólið eins hratt og ég gat
og var kominn á mikinn hraða í
miðri brekku. Guðsveini mun ekki
hafa litist á blikuna yfir glanna-
skapnum og setur hælana í teinana.
Ekki man ég neitt eftir þessu því ég
ranka við mér uppi á spítala talandi
dönsku við eina af systrunum! Ég
hafði henst af hjólinu lengst út fyrir
veg og rotast í fallinu. Sem betur fer
átti læknir leið framhjá og hann
kom mér á spítalann og eftir
skoðun var mér síðan ekið heim. Ég
svaf í rúman sólarhring eftir þetta
og mun hafa fengið nokkuð mikinn
heilahristing. Guðsveinn átti þó
lengur í þessu en ég því það var ekki
sjón að sjá á honum hælana eftir
viðureignina við teinana.
0g svo var
farið að höndla
Eftir Flensborg lá leiðin í Versl-
unarskólann. Fór ég beint inn í 2.
bekk en Verslunarskólinn var þá 3
vetur. Ég útskrifaðist þaðan árið
1936.
Ég vann síðan ýmis störf tengd
verslun og bóksölu í Reykjavík.
Síðast áður en leiðin lá aftur til
Hafnarfjarðar vann ég við Ölgerð
Egiis Skallagrímssonar og var að
mig minnir með 275 krónur á
mánuði.
Skömmu eftir að Rafha tók til
starfa sótti ég þar um starf birgða-
varðar og fékk það. Mikil gróska
var í því fyrir'tæki og unnu þarna
um 50 manns.
Þar var ég í rúmt ár en var þá far-
inn að hugsa til þess að setja á stofn
sjálfstæða verslun.
Ég hafði unnið í bókabúð í
Reykajvík sem hét Mímir og var þá
til húsa í Austurstræti. Ég fann mig
nokkuð vel í þessu starfi og það
hefur sjálfsagt blundað í mér undir
niðri.
Móðir mín leigði húsnæði að
Hversfisgötu 34 og var þar með
verslun ásamt Sigríði Eyjólfsdótt-
ur. Eru þær líklega best þekktar
undir nafninu Sigga og Beta og
reyndar gekk verslunin undir því
nafni meðal almennings.
Um 1930 flyst þessi verslun í hús-
næði sem nú er Strandgata 3. Ég
byrja síðan í húsnæðinu við
Hverfisgötu 34 og versla með vefn-
aðarvöru og lítilsháttar af bókum.
Þarna er ég í tvö ár.
Þá er það að eigandinn að
Strandgötu 3, Guðvarður Vil-
mundarson, skipstjóri, býður mér
að kaupa allt húsið. Setti hann á
það 180.000 krónur. Ég sagðist
ekki ráða við það og auglýsti hann
það því til sölu. Er ekki að orð-
Iengja það að enginn kaupandi gaf
sig fram og lækkaði Guðvarður til-
boðið þá í 150.000 krónur og ég sló
til. Ég seldi húsnæði sem ég átti að
Hverfisgötu 6 og flutti með fjöl-
skylduna sem þá var orðin 7 manns
á Standgötuna. Móðir mín og Sig-
ríður bjuggu á efri hæðinni. Þær
fluttu nú sína verslun aftur upp á
Hverfisgötu og ráku hana þar í
fjölda ára. Ég byrjaði hins vegar
með bókaverslun á jarðhæðinni á
Strandgötunni þar sem verslunin er
reyndar enn. Ég fekk bóksöluleyfi
þetta sama ár, 1943 og hef því verið
rétt 40 ár í þessu.
Þetta var nokkuð erfitt í fyrstu
enda voru tvær verslanir fyrir í
bænum og um tíma bættist sú
fjórða við. Fyrir voru Valdemar
Long og Þorvaldur Bjarnason,
báðir við Strandgötu, og Kaup-
félagið var með bóksölu á Vestur-
götunni í tvö ár.