Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1972, Qupperneq 123
121
Húsakynni og búnaður. Eftirlitið beindist sérstaklega að búnaði
og húsakynnum lyfjabúða, einkum með tilliti til geymsluaðstæðna.
Kom í ljós að allvíða er frágangi lyfja, er geymast skulu á svölum
stað, ábótavant. Ein lyfjabúð flutti í nýtt húsnæði á árinu, og
byggingu annarrar miðaði vel áfram. Gerðar voru veigamiklar athuga-
semdir við húsakynni og búnað einnar lyfjabúðar.
Færsla fyrirskipaðra bóka, Fyrirskipaðar bækur, sbr. reglugerð
um búnað og rekstur lyfjabúða 151/1968, voru yfirleitt vel færðar.
tmsar ábendingar um betri færslur fyrningabóka voru þó gerðar.
Eftirritunarbók var almennt vel færð og barst eftirlitinu með góð-
um skilum.
Rannsóknir á lyfjum. Tekin voru til rannsóknar sýni tveggja töflu-
tegunda (í 2 styrkleikum hvor tegund) frá nokkrum framleiðendum.
Fara niðurstöður þeirra rannsókna hér á eftir.
Tablettae clopoxidi 5 mg, alls 7 rannsóknir á sýnum úr 7 framleiðslu
lotum. Þar af stóðust 2 rannsókn. Þrjár framleiðslulotur eru utan
vikmarka innihaldsmagns, ein framleiðslulota stóðst ekki hreinleika-
próf innihaldsefnis, og ein framleiðslulota stóðst ekki þungapróf.
Litur, stærð og lögun taflnanna var mjög mismunandi, enda um óstaðl-
aða framleiðslu að ræða.
Tablettae clopoxidi 10 mg, alls 9 rannsóknir úr 7 framleiðslulotum.
Þar af stóðust 3 rannsókn. Þrjár framleiðslulotur eru utan vik-
marka innihaldsmagns og ein framleiðslulota stóðst ekki þungapróf.
Litur, stærð og lögun taflnanna var mjög mismunandi, enda um óstaðl-
aða framleiðslu að ræða.
Tekin voru tvö sýni af framleiðslulotum 10 og 11. Annað sýna þess-
ara var í hvoru tilviki tekið hjá framleiðanda, en hitt annars stað-
ar.
Resoriblettae glyceryli nitratis 0,25 mg, alls 20 rannsóknir á sýn-
um úr 8 framleiðslulotum. Þar af stóðust 7 rannsókn. Ein fram-
leiðslulota (á 0,5 mg) reyndist utan vikmarka.
Gerðar voru nokkrar athugasemdir við umbúðir og áletrun í 11 tilvik-
um.
Lyfjaeftirlit þessa árs beindist að nokkru að öðrum þáttum lyfja-
mála, og var þar um nýbreytni að ræða í framkvæmd eftirlitsins.
Þannig voru skoðaðar sérstaklega 3 lyfjasölur héraðslækna, og voru
þær valdar með tilliti til umsvifa. Gerði eftirlitsmaður tillögu
um, að stofnaðar yrðu sjálfstæðar lyfjabúðir á tveimur þessara staða
Ennfremur voru kannaðar framleiðsluaðstæður í tveimur lyfjagerðum
og fylgst með nýbyggingu einnar lyfjaheildverslunar. Þá ber þess
að lokum að geta, að heimsóttar voru nokkrar lyfjaútsölur, sbr. 44.
gr. lyfsölulaga nr. 30 29. apríl 1963, en eftirlit með þeim hefur
ekki heldur verið á dagskrá lyfjabúðaeftirlits fram að þessu.
Afgreiðslutíma lyfjabúða í Reykjavík var breytt á árinu, þannig að
í stað næturafgreiðslu að Stórholti 1, var tekin upp svipuð tilhög-
un og verið hafði fram til ársins 1967. Þannig fólst í þessari
breytingu, að flestar lyfjabúðir á höfuðborgarsvæðinu skiptu með sér
nætur- og helgidagavörslu, hver þeirra eina viku í senn.