Bæjarins besta - 26.11.1997, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997
Helgar-
dagskráin
Helgar-
veðrið
Helgar-
sportið
Karfa
Friðrik gegn
Hollendingum
í kvöld
Friðrik Stefánsson,
leikmaður KFÍ, hefur ver-
ið valinn í landslið Ís-
lands í körfuknattleik.
Á mánudag var hann
síðan valinn í tíu manna
hóp sem byrjar leikinn
gegn Hollendingum í Ev-
rópukeppni landsliða,
sem leikinn verður í dag í
Laugardalshöll.
Næsti leikur liðsins er
gegn Litháum ytra og fer
hann fram á sunnudag.
Eyrarhlíð
Tvær bifreiðar
lentu á ljósastaur
Rétt fyrir kl. 22 á mánu-
dagskvöld fékk lögreglan á
Ísafirði tilkynningu um að
tvær fólksbifreiðar með sjö
manns innanborðs hefði lent
á sitt hvorum ljósastaurnum á
veginum um Eyrarhlíð, milli
Ísafjarðar og Hnífsdals.
Að sögn lögreglunnar voru
báðar bifreiðarnar á leiðinni
út í Hnífsdal og mun önnur
þeirra hafa farið fram úr hinni
og beygt of snemma inn á
réttan vegarhelming, með
þeim afleiðingum að öku-
menn beggja bifreiðanna
misstu stjórn á þeim. Mikil
hálka var á veginum og mun
önnur bifreiðin hafa farið
heilan hring á götunni áður
en hún staðnæmdist á ljósa-
staurnum.
Fjórir þeirra sem í bifreið-
unum voru, leituðu aðhlynn-
ingar á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Ísafirði með minniháttar
meiðsl. Bifreiðarnar eru mikið
skemmdar.
Eins og sjá má er bifreiðin á stærri myndinni mikið skemmd eftir áreksturinn, ef ekki ónýt.
Bifreiðin á innfelldu myndinni er einnig mikið skemmd.
Ísafjarðarbær
Heimild veitt til
20 milljóna
króna lántöku
Bæjarstjórn Ísafjarðar-
bæjar hefur veitt bæjarstjór-
anum heimild til að taka 20
milljóna króna lán til greið-
slu innlausna íbúða í félags-
lega kerfinu.
Ekki mun vera mikið um
óafgreiddar umsóknir um
innlausnir eins og stendur,
en flótti fólks úr félagslega
kerfinu hefur engu að síður
verið mikill í Ísafjarðarbæ
undanfarin misseri, líkt og í
öðrum sveitarfélögum á
landsbyggðinni. Í Ísafjarð-
arbæ eru nú 92 félagslegar
íbúðir óseldar, en flestar
þeirra eru leigðar út. Á
yfirstandandi ári hafa 28
íbúðir verið innleystar, en
13 þeirra eru seldar aftur.
Að sögn Birgis Valdimars-
sonar húsnæðisfulltrúa Ísa-
fjarðarbæjar, er lántöku-
heimildin veitt til að hægt
verði að standa við skuld-
bindingar vegna nýinnleyst-
ra íbúða og þeirra sem kunna
að verða innleystar í nánustu
framtíð.
Tíðir húsbrunar í Hnífsdal
Slökkviliðs-
menn æfa sig
Húsið við Strandgötu 7 í
Hnífsdal, varð eldi að bráð á
laugardaginn. Fjölmennt lið
slökkviliðsmanna barðist við
eldinn fram eftir degi og náði
að ráða niðurlögum hans að
lokum. Reykkafarar voru
sendir inn í húsið sem reyndist
til allrar lukku mannlaust.
Skemmdir af völdum elds,
reyks og vatns eru miklar, en
það kemur þó ekki að sök,
vegna þess að húsið er eitt
þeirra sem keypt hafa verið
upp vegna hættu á snjóflóð-
um. Eldsupptök eru kunn, en
það var slökkviliðið sjálft sem
Frá æfingunni í Hnífsdal á laugardag. Myndina tók Þorkell
Ingvarsson.kveikti í húsinu og var þarna
um æfingu að ræða. Einhver
neisti hefur orðið eftir í
húsinu, því slökkviliðið var
kallað að því að nýju um
fimmleytið og réði þá endan-
lega niðurlögum eldsins
Að sögn Þorbjörns Sveins-
sonar, slökkviliðsstjóra í
Ísafjarðarbæ, hefur slökkvi-
liðið fengið fjögur hús á
hættusvæði í Hnífsdal til
æfinga, tvö hús við hlið þess
sem kveikt var í á laugardag-
inn og hús sem stendur ofan
við félagsheimilið. 25 slökk-
viliðsmenn Ísafjarðarbæjar,
meirihlutinn frá Þingeyri,
Flateyri og Suðureyri, tóku
þátt í æfingunni á laugardag,
en helgina áður var haldin
sambærileg æfing fyrir 12
slökkviliðsmenn frá Ísafirði
og 5 frá Bolungarvík. Þá var
reyndar kveikt í sama húsinu,
sem er nú farið að láta tölu-
vert á sjá.
Reykköfun og rétt viðbrögð
við yfirtendrun voru aðal
áhersluatriði æfinganna, en að
sögn Þorbjörns er yfirtendrun
þegar hitastig stigmagnast svo
af eldi að hann læsist í allt
sem brennanlegt er.
„Æfingar af þessu tagi fara
fram í sérstökum hitagámum,
en við höfum ekki yfir slíkum
búnaði að ráða hér. Þess vegna
sköpuðu húsin í Hnífsdal
okkur kjörið tækifæri til að
æfa þessa þætti við aðstæður
eins og þær geta orðið raun-
hæfastar, en það er auðvitað
besta æfingin,“ sagði Þor-
björn. Hann segir að í raun sé
verið að farga húsunum með
þessum hætti, en það sem eld-
urinn nær ekki að brenna,
verður fjarlægt.
FIMMTUDAGUR
16.15 Handboltakvöld
Endursýndur þáttur frá miðviku-
dagskvöldi.
16.45 Leiðarljós (776)
17.30 Fréttir
17.35 Auglýsingatími
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.30 Undrabarnið Alex (5:13)
19.00 Úr ríki náttúrunnar
Úr dagbók stóru kattardýranna (3:6)
Bresk fræðslumyndasyrpa þar sem
fylgst er með ljónum, hlébörðum
og blettatígrum í Kenýa
19.30 Íþróttir 1/2 8
19.50 Veður
20.00 Fréttir
20.30 Dagljós
21.05 Landsleikur í handbolta
Bein útsending frá seinni hálfleik í
viðureign Íslendinga og Júgóslava
sem fram fer í Laugardalshöll.
21.50 ...þetta helst
22.25 Ráðgátur (10:17)
Atriði í þættinum kunna að vekja
óhug barna.
23.15 Seinni fréttir
23.30 Króm
23.55 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
16.45 Leiðarljós (777)
17.30 Fréttir
17.35 Auglýsingatími.
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Þytur í laufi (19:65)
18.30 Fjör á fjölbraut (2:26)
19.30 Íþróttir 1/2 8
19.50 Veður
20.00 Fréttir
20.35 Dagsljós
21.10 Stockinger (1:14)
Nýr austurrískur sakamálaflokkur um
Stockinger sem var áður
samstarfsmaður Mosers í þáttunum
um lögregluhundinn Rex.
22.50 Halifax - Án samþykkis
Áströlsk sakamálamynd frá 1996 um
glímu réttargeðlæknisins Jane
Halifax við kynferðisafbrotamann
sem er nýlaus úr fangelsi og er
grunaður um að hafa nauðgað nokkr-
um konum.
00.25 Ráðgátur (10:17)
Atriði í þættinum kunna að vekja
óhug barna.
01.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
LAUGARDAGUR
09.00 Morgunsjónvarp barnanna
10.35 Viðskiptahornið
10.50 Þingsjá
11.15 Hlé
14.20 Þýska knattspyrnan
Bein útsending frá leik í fyrstu deild.
16.20 Íþróttaþátturinn
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Dýrin tala (11:39)
18.25 Fimm frækin (11:13)
18.50 Hvutti (12:17)
19.20 Króm
19.50 Veður
20.00 Fréttir
20.35 Lottó
20.50 Stöðvarvík
21.25 Með Nautilusi á Norðurpól
Bandarísk ævintýramynd frá 1996
gerð eftir sögu Jules Verne um
ævintýraferð ungs haffræðings með
kafbátnum Nautilusi undir stjórn
hins stórsnjalla en sérvitra Nemós
23.05 Hinir vammlausu
Bandarísk óskarsverðlaunamynd frá
1987 um baráttu Eliots Ness og
samstarfsmanna hans í Alríkislög-
reglunni við Al Capone og félaga
hans í undirheimum Chicago á bann-
árunum. Kvikmyndaeftirlit ríkisins
telur myndina ekki hæfa
FIMMTUDAGUR
09:00 Línurnar í lag
09:15 Sjónvarpsmarkaðurinn
13:00 Þorpslöggan (3:15) (e)
13:55 Stræti stórborgar (10:22) (e)
14:40 Fyndnar fjölskyldumyndir
15:05 Oprah Winfrey (e)
16:00 Ævintýri hvíta úlfs
16:25 Steinþursar
16:50 Með afa
17:40 Sjónvarpsmarkaðurinn
18:00 Fréttir
18:05 Nágrannar
18:30 Nágrannar
19:00 19>20
20:00 Ljósbrot
20:35 Systurnar (8:28)
21:30 Morðsaga (8:18)
22:30 Kvöldfréttir
22:50 Stræti stórborgar (11:22)
23:40 Af lífi og sál (e)
01:20 Eiturnaðran (e)
Linda Crandall er geðveikur rað-
morðingi sem hefur myrt fimm
eiginmenn sína á brúðkaups-
nóttinni.
Bönnuð börnum.
02.50 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
09:00 Línurnar í lag
09:15 Sjónvarpsmarkaðurinn
13:00 Geggjaður föstudagur (e)
Annabel Andrews er á gelgjuskeið-
inu.
14:30 Baugabrot (1:6) (e)
15:30 NBA tilþrif
16:00 Skot og mark
16:25 Steinþursar
16:50 Töfravagninn
17:15 Glæstar vonir
17:35 Sjónvarpsmarkaðurinn
18:00 Fréttir
18:05 Íslenski listinn
19:00 19>20
20:00 Lois og Clark (12:22)
21:00 Ævintýrasteinninn
Bönnuð börnum.
22:50 Flótti sakleysingjans
Sláandi spennutryllir um drenginn
Vito sem verður vitni að því þegar
fjölskylda hans er myrt.
00:40 Geggjaður föstudagur (e)
Annabel Andrews er á gelgjuskeið-
inu.
02:15 Bakkabræður í Paradís (e)
04.05 Dagskrárlok
LAUGARDAGUR
09:00 Með afa
09:50 Andinn í flöskunni
10:15 Bíbí og félagar
11:10 Geimævintýri
11:35 Gerð myndarinnar Hercules
12:00 Beint í mark með VISA
12:30 NBA molar
12:55 Sjónvarpsmarkaðurinn
13:20 Á síðustu stundu (e)
Skemmtileg mynd fyrir alla fjöl-
skylduna.
14:50 Enski boltinn
16:50 Oprah Winfrey
17:40 Glæstar vonir
18:10 Á slóðum litla drekans (e)
Fréttamaðurinn Karl Garðarsson
fjallar um pólitískt ástand og horfur
í Hong Kong og Tævan.
19:00 19>20
20:00 Vinir (15:25)
20:35 Cosby (7:25)
21:10 Á undan og eftir
Áhrifarík og vönduð bíómynd um
venjulega fjölskyldu á Nýja Englandi
sem lendir í hrikalegum og mjög
óvenjulegum aðstæðum. . Bönnuð
börnum.
23:05 Neðanjarðar
Víðfræg verðlaunamynd sem hlaut
Gullpálmann í Cannes 1995 sem besta
myndin. Stranglega bönnuð börn-
um.
00:45 Riddarar (e)
Framtíðartryllir um grimmar blóð-
sugur sem ríða um héruð og halda
öllumí heljargreipum.
Stranglega bönnuð börnum.
02:20 Dauðaþögn (e)
Mark Jannek er vinsæll útvarpsmaður
en þjakaður af martröðum um
aðkærasta hans sé myrt. Það er ekki
til að bæta líðan hans að kona í hópi
hlustenda hans ónáðar hann með
stöðugum upphringingum.
Bönnuð börnum.
03.50 Dagskrárlok
SUNNUDAGUR
09:00 Sesam opnist þú
09:25 Eðlukrílin
09:40 Disneyrímur
10:05 Stormsveipur
10:30 Aftur til framtíðar
10:55 Úrvalsdeildin
11:20 Ævintýrabækur Enid Blyton
11:45 Madison (9:39) (e)
12:10 Íslenski listinn (e)
13:00 Íþróttir á sunnudegi
16:30 Sjónvarpsmarkaðurinn
16:50 Húsið á sléttunni (1:22)
17:40 Glæstar vonir
18:00 Listamannaskálinn (e)
19:00 19>20
20:00 Seinfeld (10:24)
20:35 Skáldatími
Skáldkonan Kristín Ómarsdóttir er
til umfjöllunar.
21:10 Fúlir grannar
23:50 Frankenstein (e)
Kvikmynd Kenneth Branagh eftir
skáldsögu Mary Shelley um vísinda-
manninn Frankenstein og skrímsli
hans. Þetta e rtilkomumikil og vönduð
kvikmynd. Stranglega bönnuð börn-
um.
01.50 Dagskrárlok