Lindin - 01.04.2003, Page 9
Lagt af stað í Víðavangshlaup í 6. flokki 1979
þann 24. júlí. í sumarflokkum eru hlaupin tvö
langhlaup, Brekkuhlaup sem er liðlega 2 km
og Víðavangshlaup sem er um 4 km. Á
myndinni hleypur Þórarinn Björnsson foringi
fremstur, Guðmundur Guðmundsson foringi
stendur við tröppur Gamla skála og Gunnar
Sigurjónsson forstöðumaður stendur efst í
þeim. Sigurvegari í haupinu var Svali Björg-
vinsson.
Á veislukvöldi eru veitt verðlaun fyrir góðan ár-
angur á ýmsum sviðum. Þá er einnig háð úr-
slitakeppni í biblíuspurningakeppni, en það er
vinsælt að geta hampað þeim bikar. Á þessari
mynd sem tekin er á veislukvöldi í 8. flokki
árið 1979 er keppt í spurningakeppni. Keppn-
ina vann Stefán Aðalsteinsson sem stendur
annar frá vinstri.
Lengi þótti vinsælt að sofa í Laufskálum,
en þar sváfu að jafnaði fjórir saman i her-
bergi. Þessi mynd er tekin í herbergi 9,
sem var við hliðina á foringjaherberginu, í
4. flokki árið 1981. Á myndinni eru Krist-
inn, Daníel og Kristján. Þeir virðast hafa
verið duglegir við að þrífa herbergið sitt
þessir sómapiltar.
Það þótti talsverð nýbreytni árið 1990 þegar stúlkum var í fyrsta sinn boðið að gerast dvalargestir í
unglingaflokki í Vatnaskógi. Síðan þá hafa stúlkur og konur átt þess kost að koma í unglingaflokk,
feðginaflokk eða í fjölskylduflokk. Þessar hressu stúlkur skelltu sér út á bát í 9. flokki árið 1999.
Hér stígur Oddgeir Sveinsson út út Ford TT
vörubíl, árgerð 1917, sem flutti nokkra fráa
Skógarmenn af Amtmannsstíg upp í Mosfells-
dal. Myndin ertekin í lokjúlí árið 1993 þegar
þess var minnst að 70 ár voru liðin frá fyrsta
skipulagða dvalarflokknum i Vatnaskógi árið
1923. Hópi ungra Skógarmanna var ekið af
Amtmannstíg og upp í Mosfellsdal á vörubíls-
palli, eins og gert var árið 1923. Þaðan gekk
hópurinn upp í Vatnaskóg á tveimur dögum,
eins og fyrstu dvalargestirnir. Oddgeir tók þátt í
að minnast þessa atburðar, enda hafði hann
dvalið í fyrsta flokki í Vatnaskógi 70 árum fyrr.
Síðastliðin ár hafa leikskólabörn komið í heim-
sókn í Vatnaskóg að vori til. Þeim hefur verið
boðið að skoða staðinn, fara í leiki og síðan á
stutta helgistund í kapellunni. Það hefur verið
ánægjulegt fyrir Skógarmenn að fá þessa
hópa í Vatnaskóg.
Á kvöldvökum er alltaf slegið á létta strengi
og hér ríkir greinilega mikil stemmning. Mynd-
in er tekin í 6. flokki árið 1995.
Lengi vel var starfrækt sjoppa í Vatnaskógi.
Hún var opinn stuttan tíma daglega í fyrstu,
en síðan tvo til þrjá daga í hverjum flokki.
Hverjum og einum var heimilt að kaupa sæl-
gæti fyrir takmarkaða upphæð i hvert skipti
sem sjoppan var opin. Nú er hins vegar engin
sjoppa í Vatnaskógi, en lögð er áhersla á heil-
brigðara fæði. Margir minnast þess að hafa
staðið í biðröð til að fá að komast í sjoppuna.
Þessir drengir biðu eftir að fá afgreiðslu í lúg-
unni sem var í kjallara Gamla skála.
I
9