Lindin - 01.04.2003, Qupperneq 10
LINDIN 2003
Fótboltaleikur á íþróttavelli. Péturssker
sést í vatninu, vinstra megin á myndinni.
Áþessaci stundu
eru ord sr. Fridriks
öfusjmæli!
Þórarinn Eldjárn rithöfundur rifjar
upp dvöl í Vatnaskógi
Þetta KFUM tímabil hafði þrátt fyrir allt vakið hjá
mér einn draum sem leitaði á mig aftur og aftur í
vöku og í svefni: Drauminn um Vatnaskóg. Ævin-
týralandið. Á fundum í hreyfingunni hafði oft verið
talað um þennan stað Vatnaskóg, ævinlega með
djúpri lotningu, og smámsaman hlóðst upp í manni
löngunin þangað, í þennan unaðsreit sem eftir
sögunum að dæma virtist vera einhverskonar
samruni úr Disneylandi og Paradís.'
Þannig komst Þórarinn Eldjárn rithöfundur
aö oröi fyrir margt löngu í smásögu sinni Ég
var eyland sem birtist í smásagnasafni hans
Ofsögum sagt. Þar segir á kersknifullan hátt
frá tíu ára gömlum dreng sem fer ásamt vini
sínum og nágranna til vikudvalar í Vatna-
skógi. Söguhetjan er yngstur drengjanna og
lendir hálf utanveltu í samfélagi þeirra. Jafn-
vel svo aö ferðafélagi hans og vinur snýr viö
honum bakinu og skilur hann einan eftir á
Pétursskeri (sem nefnt er Píka í sögunni)." Við
þá mannraun fær sá litli uppreisn æru í hópi
drengjanna þvi honum er bjargaö af skerinu
af amerískum hermönnum sem koma auga á
hann þar sem þeir eru á árabáti viö veiðar í
Eyrarvatni. Útsendari Lindarinnar er ekki
einn um aö hafa velt því fyrir sér hvort þessi
smásaga Þórarins greini frá sönnum atburð-
um og fékk forvitni sinni svalað yfir kaffibolla
á Subway í stuttu spjalli við rithöfundinn. Um
leið rifjaði Þórarinn upp eitt og annað tengt
KFUM og veru sinni í Vatnaskógi. Þórarinn
fær orðið:
Þegar ég var að alast upp sóttu langflestir
strákar í minu hverfi KFUM fundi á Amtmanns-
stíg 2b. Áfundunum var mikið líf og fjör, söng-
ur, upplestur og alls kyns skemmtilegheit. Ég
man eftir sr. Friðik sem þá var orðinn háaldrað-
ur, en ég kynntist honum nú ekki mikið. Eins og
flesta stráka sem heyra af slíkum stöðum sem
Vatnaskógi langaði mig að fara þangað og úr
því varð, sennilega sumarið 1959 eða '60, ég er
ekki viss. Við fórum saman ég og Leifur Agn-
arsson vinur minn og nágranni, en hann er ný-
látinn. Ég man eftir því að þegar við létum skrá
okkur til dvalarinnar sat sr. Magnús Runólfsson
við skráninguna. Þar gáfum við upp helstu per-
sónuupplýsingar eins og fæðingardag og ár.
Þegar Leifur sagði frá því hvenær hann var
fæddur mismælti hann sig og sagði 1848 í
staðinn fýrir 1948. Áður en hann náöi að leið-