Lindin - 01.04.2003, Blaðsíða 13
1. Á björtum dýrðardegi
ég Drottni mæta fékk
við vatnið, þar sem vinir áttu fund.
Þar undir heiðum himni
hann hljóður framhjá gekk.
Eg gleymi' ei þeirri gæfuríku stund.
2. Hann kom, ég heyrði' hann kalla
með kærleiksmildum róm:
„Kom, fylg þú mér og menn í lið mitt vinn.”
Þá allt var yfirgefið,
því allt varð sorp og hjóm
á móts við það, að mig hann taldi sinn.
3. En stundum öldur æddu
með ofsa' um trylltan sjó.
Hann einnig þá viö vatnið hjá þeim var.
Og dýrð hans bjartast birtist,
er bauð hann: „Verði ró!"
I stafalogni bát að landi bar.
4. Til vatnsins eins og áður
ég oft og tíðum fer.
Eg veit: Þar fæ ég Mannsins son að sjá.
Þar Kristur á mig kallar
og kominn því ég er,
svo dýrðarstund ég Drottni eigi hjá.
1. Þegar logn er í Vatnaskógi hefur mér
alltaf þótt eftirsóknarvert aö fara niður að
spegilsléttu Eyrarvatninu og finna kyrrö-
ina og friðinn alit um kring. Það er eins og
að fara til fundar við Jesú. Hann gefur frið
í hjarta sem enginn annar getur gefið.
Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég
yður. Ekki gef ég yður eins og heimurinn
gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist.
Jóhannesarguðspjall 14. kafli vers 27
2. Jesús var á gangi með Galíleuvatni og sá
Símon og Andrés, bróður Símonar, vera
aö kasta netum í vatnið, en þeir voru
fiskimenn. Jesús sagði viö þá: „Komið og
fylgið mér, og mun ég lát yður menn
veiða." Og þegar í stað létu þeir eftir
netin og fylgdu honum.
Markúsarguðspjall 1. kafli vers 16-18
i Vatnaskógi fékk ég að heyra kall Jesú:
„Fylg þú mér." Ég tók þá ákvörðun aö hlýða
kalli hans. Ég hef fengið að ganga með
honum, læra af honum og vinna fyrir hann.
Enn hljómar kall hans til okkar mannanna:
„Fylg þú mér." Hefur þú svaraö?
Bjarni Eyjólfsson
3. Nú fór hann í bátinn og lærisveinar hans
fylgdu honum. Þá gjörði svo mikið veður
á vatninu, að bylgjurnar gengu yfir bát-
inn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja
hann og segja: „Herra, bjarga þú, vér
förumst." Hann sagði viö þá: „Hví eruð
þér hræddir, þér trúlitlír?" Síðan reis
hann upp og hastaði á vindinn og vatn-
ið, og varð stillilogn. Mennirnir undruð-
ust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta?
Jafnvel vindar og vatn hlýða honum."
Matteusarguðspjall 8. kafli vers 23-27
Við vorum tveir 10 ára kappar sem ákváð-
um að fara út á bát. Fyrir valinu varð
„Ormurinn langi", stór og þungur trékanó.
Þegar við komum út á Eyrarvatnið hvessti
og öldurnar ógnuðu allt í kring. Við réö-
um illa við bátinn og ég varð hræddur. Við
kölluöum á hjálp en enginn svaraöi. Nema
Jesús. Hann var við vatnið sem fyrr og
leiddi okkur heila í land.
Við getum kallað til Jesú í stormum lífs-
ins og treyst því aö hann svarar. Hann
hefur mátt til þess að kyrra vind og sjó í
lífi okkar. Það er stórkostlegt að þekkja
slíkan frelsara.
4. Vatnaskógur er staður helgaður Guði.
Þeir sem þangað koma fá tækifæri til
þess að hitta Jesú á sérstakan hátt, við
vatnið, í kapellunni eða annars staðar.
Við getum farið til fundar við frelsarann
hvar sem er. Sá fundur á sér stað i bæn
og lestri Guðs orðs. Þá er mikilvægt að
biðja Guð um að opna huga okkar og
hjarta fyrir því sem hann vill segja okkur.
Og í bæninni getum við sagt honum frá
öllu sem hvílir á okkur og þakkað gæsku
hans og náð. Þá eigum við dýrðarstund
hjá Drottni.
Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur
gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar
Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð.
Og friður Guðs, sem er æðri öllum skiln-
ingi, mun varðveita hjörtu yðar og hugs-
anir yöar í Kristi Jesú.
Bréf Páls postula til Filippímanna
4.kafli vers 6-7