Lindin - 01.04.2003, Qupperneq 14
Fcéttir
LINDIN 2003
Pokasjóður styrkir Vatnaskóg
Skógarmenn KFUM fengu á síðastliðnu ári veglegan styrk frá
Pokasjóði verslunarinnar sem var veittur til skógræktar í Vatna-
skógi. Skógarmenn hafa á undanförnum árum lagt merkta
göngustiga um skóginn og Ijóst er að þessir fjármunir munu
nýtast vel til að skipuleggja skógrækt og auðvelda fólki að njóta
útivistar í Vatnaskógi.
POKRSJÓfllir
Ólafur Stefánsson, íþróttamaður ársins 2002, ásamt Einari
Þorsteini syni sínum, í Vatnaskógi.
Skógarmaður í heimsókn
Þann 24. júní síðastliðinn kom góður Skógarmaður i heimsókn í
Vatnaskóg með fjölskyldu sinni. Þar var á ferð handknattleiksmað-
urinn Olafur Stefánsson, sem leikur með þýska liðinu Magdeburg.
Ólafur er, eins og kunnugt er, íþróttamaður ársins á íslandi 2002 og
var valinn besti
handknattleiksmaður
þýsku úrvalsdeildar-
innar á liðnu ári. Ólafur
dvaldi dagpart í Vatna-
skógi með fjölskyldu sinni,
fór út á bát, brá á leik í
íþróttahúsinu, spjallaöi við
drengina og veitti margar eig
inhandaráritanir þann dag.
Sæludagar
Sæludagar eru fastur liður i starfi Vatnaskogar og eru
haldnir um verslunarmannahelgina, að þessu sinni 1. til
4. ágúst 2003. FHátíöin er öllum opin og er dagskráin
fjölbreytt, svo að fólk á öllum aldri ætti að finna þar
eitthvað við sitt hæfi. Meðal þess sem boðið er upp á
eru tónleikar, íþróttir, kvöldvökur, hæfileikakeppni og
leiktæki fyrir börnin.
í ár eru 80 ár liðin frá því að fyrsti flokkurinn lagði
af stað í Vatnaskóg þann 3. ágúst 1923 og verður
þess minnst með sérstökum hætti.
Góð tjaldstæði eru á staðnum og öll aðstaða hin
besta. Tilvalið er fyrir Skógarmenn á öllum aldri að
fara með fjölskyldu sína upp í Vatnaskóg og njóta
töfra skógarins í góðum félagsskap. Þeir sem ekki
k geta dvalið alla helgina geta staldrað skemur
m við. Taktu fjölskylduna með í Vatnaskóg þar
» sem allir geta notið sín.
Ólafur brá sér út á bát ásamt fjöl-
skyldu sinni, frá vinstri Helga Soffía,
Ólafur, Kristín Soffía og Einar Þor-
steinn.