Lindin - 01.04.2003, Page 23
Stafarugl
Fyrirmynd
Ég var meö góöan og skemmtilegan hóp af
strákum á 4. borði, flestir um 12 ára gamlir.
Þetta voru hressir strákar og ég þurfti aö hafa
auga meö þeim. Ég þurfti aö minna þá á almenna
siöi og reglur og hafði ég tjáö þeim að við foringjarn-
ir ættum aö vera þeim til fyrirmyndar, þar með talið ég.
Þaö var vel liðið á flokkinn og strákarnir sátu inni í borð-
sal í kvöld-
kaffi. Verið var
að gefa borð-
unum stig fyrir
hegðun og alveg
grafarkyrrö ríkti
þar inni. Ég var inni
í stofu starfsmanna
þar sem ein eldhús-
stúlkan hafði verið aö
gantast í mér og hellt yfir mig glasi af vatni. Ég náði í stóra könnu,
fyllti hana af vatni og ætlaði nú aldeilis að skvetta á hana á móti. En
hún var snjöll og hljóp inn í matsal sem var griðastaður fyrir hana þar
sem ég færi ekki að raska alvarlegu andrúmsloftinu við stigagjöfina. En
ég stóðst ekki mátið og hellti yfir hana öllu vatninu, en við það ærðust
náttúrulega strákarnir og
klöppuðu og öskruðu. For-
stöðumaðurinn var ekki hinn
hressasti með þetta og gaf
mér vinalega áminningu eft-
ir að strákarnir voru farnir út.
Seinna um kvöldið, þegar ég
var að svæfa strákana mína í
Vatnasal, plötuðu þeir mig til
að standa við eina kojuna og
athuga eitthvað, en þá hellti skyndilega strákurinn úr efri kojunni vatni
yfir mig úr könnu og svo hlógu þeir. Ég var ekki beint hrifinn en þeir
sögðu: „Þú sagðir að við ættum að taka þig til fyrirmyndar!" Ég brosti og
hló inni í mér. Ég vissi upp á mig sökina. Ég skammaði þá ekki neitt fyrir
þessa aðför að foringja sínum.
Keimför
Rútan var á leiðinni heim í Vatnaskóg eftir sundferð. Allt i einu hróp-
aði einn foringinn og benti á tvo stráka sem voru að leika sér i fót-
bolta við hliöina á veginum. Rútan var stöðvuð og viðkomandi for-
ingi rauk út og byrjaði að segja drengjunum til syndanna fyrir að
hafa yfirgefið hópinn og sagði þeim aö koma sér strax inn i rútu.
Drengirnir urðu bæði undrandi og skelfingu lostnir. Foringinn
skildi ekkert í undrunarsvipnum á andlitum þeirra þar til ann-
ar náði að stynja upp úr sér: „já, en við eigum sko heima
hérna." Það var vandræðalegur foringi sem steig inn i rút-
una og mátti þola skellihlátur hinna.
Nöfn á sjö af foringjum sumarsins eru falin i þessu
stafarugli. Athugaðu hvort þú finnur þau. Sjá má nöfn
hjá flokkaskrá á bls. 17.