Lindin - 01.04.2003, Page 26
Fjölskyldustarf í Vatnaskógi
Eins og lesendum Lindarinnar er kunnugt hefur verið boðiö upp
á sérstakar helgar fyrir feðga, feðgin og fjölskyldur. Hafa þessar
helgar verið vel sóttar og reynslan sýnt að margir koma aftur
og aftur, sem er vissulega góður vitnisburöur. Á þessum helg-
um er hefðbundin Vatnaskógardagskrá og mælist það vel fyrir.
Börn og fullorðnir
eru saman við leik
LINDIN 2003
Fréttii
Biskup íslands
heimsækir Vatnaskóg
Skógarmenn fá oft góða gesti í Vatnaskóg. Síðastliðið sumar
heimsótti biskup íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, Vatna-
skóg einn fagran sumardag í júlí. Koma herra Karls I Vatna-
skóg var hluti af
heimsókn hans um
Borgarfjarðarpró-
fastsdæmi, svo kall-
aðri vísitasíu. Með
biskupi komu pró-
fastur Borgarfjarðar-
prófastsdæma sr.
Þorbjörn Hlynur
Árnason og sr. Krist-
inn Jens Sigurþórsson
sóknarprestur i Saur-
bæ á Hvalfjarðar-
strönd. Biskup dvaldi í
Vatnaskógi frá kl. 18 og
fram eftir kvöldi og tók
þátt í dagskránni með drengjunum og endaðí siðan kvöldvöku
með hugleiðingu út frá Quðs orði. Að lokum tók hann þátt í
bænastund i kapellunni ásamt ríflega 50 drengjum. Var heimsókn
herra Karls sérlega ánægjuleg og skemmtileg.
og störf, taka sam-
an þátt I kvöld-
vöku, hlæja saman,
syngja saman og
allir eru jafnir.
Margir þátttak-
endur hafa upplif-
að dýrðartíma með
foreldrum sínum
eöa börnum. Á laugardegi er hópnum skipt í
tvennt, börn og fullorðna. Börnin taka þá þátt í
sérstakri barnadagskrá en hinir fullorðnu setj-
ast niður og ræða áhugaverð málefni sem
lúta aö foreldrahlutverkinu. Oftast er áætl-
aður klukkutími í þessa vinnu en dugar
sjaldnast til því mikið þarf að ræða og
margir hafa frá ýmsu að segja. Allir í
hópnum fá að segja frá reynslu sinni
og hugmyndum. Þessi vinna hefur
þótt afar gagnleg og eftirsóknar-
verð á þessum helgum. Hvetjum
við þá Skógarmenn, sem og
aðra, sem ekki hafa enn sótt
svona helgar, að skrá sig á
þessu ári. Leita má nánari
upplýsinga á skrifstof-
unni.
Fermingarnámskeið í fimm daga
Síðastliðið sumar var prófað að hafa fimm daga fermingarnámskeið í
Vatnaskógi. Komu hópar úr Húnavatnssýslum og frá Sauðárkróki. Nám-
skeiðið var frá hádegi á mánudegi
fram að kaffi á föstudegi. Dagskráin
var blanda af fræðslustundum, helgi-
haldi, skemmtun og frjálsum tíma. Nám-
skeiðið heppnaðist framar vonum og var
gaman að sjá aö börnin nutu þess að vera
lengi og læra mikið. Krakkarnir blönduðust
einstaklega vel saman og mynduðu góö tengsl
sín á milli. Aðstaöan í Vatnaskógi er auðvitað frábær fyrir svona námskeið, eins og Skóg-
armenn þekkja. Ljóst er að leikurinn verður endurtekinn í lok
næsta sumars.
Bæklingur
fermingarnám-
skeiðanna í
Vatnaskógi.
Vísindin efla alla dáð
Vísindin efla alla dáð,
orkuna styðja, viljann hvessa,
vonina glæða, hugann hressa,
farsældum vefja lýð og láð.
Tífaldar þakkir því ber færa
þeim, sem að guðdómseldinn skæra
vakið og glætt og verndað fá
viskunnar helga fjalli á.
Úr Ijóðinu til herra Páls Gaimard,
eftir Jónas Hallgrímsson.