Börn og menning - 01.04.2014, Side 21

Börn og menning - 01.04.2014, Side 21
Orðaleikir og öflugt bros 21 Mektarkötturinn Matthias og orðastelpan er sjálfstætt framhald fyrri bókanna og í henni er að finna gamalkunnar persónur.3 Arngrímur apaskott er í öllum bókunum og leiðir ömmu Sólrúnu um útklipptar ævintýralendur með hund á hælunum, en mektarköttinn Matthías höfum við ekki hitt fyrr. Á kápu bókarinnar kúrir kötturinn utan í stúlkunni Sólrúnu, sem við þekkjum úr fyrri bókunum, en Arngrímur api og hundurinn eru ekki langt undan. Á fyrstu opnu bókarinnar blasir amma Sólrún við. Hún ilmar af litríkum gróðri, býflugur suða í kringum hana og risavaxin sólin skín. Unaðsstemningin skilar sér vel bæði í áferðarfallegri myndinni og textanum, sem er einstaklega hljómfagur þegar hann er lesinn upphátt: Það er mildur síðsumardagur og rifsberin hanga blóðrauð og bústin á trjágreinunum í garði Sólrúnar ömmu. Blöðin á rifsberjarunnunum eru tekin að gulna og þau glóa í sólskininu. „Glóa eins og sóleyjar," hugsar amma og raular fyrir munni sér. Hlýleikinn skín af síðum bókarinnar þegar amman, stúlkan, apinn, hundurinn, hrafninn og kötturinn bregða á leik í skrjáfandi haustlaufum. Ævintýrið hefst svo fyrir alvöru þegar stúlkan Sólrún fer að glíma við að raða orðum saman á blöð og breytist í orðastúlku. Mektarkötturinn Matthías fer á flug í huganum og býr til eigin sögu. Myndmálið tekur við og sýnir okkur hugarsmíð hans þar sem lítil kónguló fær stórt hlutverk. Textinn tekur svo aftur við þegar Matthías er orðinn þreyttur á að hugsa. Svona er sagan HNU SINNT VAR KOLSVARTUÍ KWARSKUQQI. SKUGQINN SETTI UPP FEHCNA- STÓRA KRYPPU. ALUR URÐULCGiXDI HRJKDDIR NEMA FEYKIRÓFAN HUN SÓLRÖN KJÁNASTELPA- HÚNSifXíDI ORDUIC SEM VORU UNDARX-EGRI EN NOKKUR KATTARSKUGGI. OHSXCG KJÁNASTELPAN OG FEIKNASTÓRl SKUGGINN AF MEKTARKEnWJí KATTHIaSI VORU VINIR OG LÉKU SÉR ýmist sögð á sviði textans eða myndanna og skiptast texti og myndir á að fleyta atburðarásinni áfram. Mektarkötturinn Matthías er frekar athyglissjúkur en stúlkan Sólrún lætur hann ekki slá sig út af laginu og fer að leika sér að orðunum: Þau eru nærri því kringlótt í laginu, tekurðu eftir því? Eða þá undarleg orð eins og dalalæða og gul orð eins og sól. Það verður allt gult og skínandi I höfðinu á mér þegar ég segi sól. Sérstaklega ef ég hvísla mjög hægt. Þarna er alveg tilvalið að bregða á leik með barninu sem lesið er fyrir og máta orðin sem birtast í blómum á síðunni. Hvaða myndir kalla þau fram? Hvernig eru þau á litinn? Hvernig breytast þau ef maður hvíslar þau? Mektarkötturinn Matthías stekkur á blaðabunka Sólrúnar og saman sýna þau Sólrún okkur hvernig hægt er að búa til sögu úr orðarugli. Amman og apaskottið klappa og við tökum undir með þeim. Bókin reynist vera nokkurs konar sjálfssaga sem snýst um eigin tilurð á skemmtilegan hátt og kallar á þátttöku lesandans. Hljómur orðanna, litur þeirra og lögun bætist við lestrarupplifunina og býður upp á skapandi leik og jafnvel framhaldssögu ( meðförum lesenda. Sagan er römmuð inn með saurblöðum bókarinnar. Þar birtast hvít blöð Sólrúnar á flugi og uppátækjasamir lesendur geta jafnvel betrumbætt þau með eigin orðum. Öfugsnúningur Brosbókin er fyrsta myndabókin sem Jóna Valborg Árnadóttir og Elsa Nielsen vinna saman4, en bókin var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna í nýjum flokki barnabóka. Það er mikið fagnaðarefni að sá flokkur bóka skuli loksins fá verðskuldaða viðurkenningu á eigin forsendum. Við munum eflaust sjá áhrif þess á komandi árum því mig grunar að þetta muni virka hvetjandi á höfunda barnabóka og jafnvel útgefendur líka. Eins mun þetta gera barnabækur sýnilegri og auka faglega umfjöllun um þær. Ekki veitir af! Jóna Valborg skrifar texta Brosbókarinnar og á hugmyndina en Elsa Nielsen myndskreytir söguna, hannar bókina og sér um umbrot. Elsa er grafískur hönnuður og verkið nýtur góðs af því. Það er heilsteypt ( útliti allt frá kápu, saurblöðum og titilsíðum til innsíðna. Brugðið er á leik með framsetningu textans, sem verður oft hluti af myndunum. 3 Kristln Arngrímsdóttir, Mektarkötturinn Matthías (Reykjavík: Salka, 2013). 4 Jóna Valborg Árnadóttir og Elsa Nielsen, Brosbókin (Reykjavík: Salka 2013).

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.